Bólusetningar og smitsjúkdómar
Bólusetningar hafa verið almennar hér lengi og þátttaka mikil, einkum í bólusetningu barna. Þetta er mikilvægt þar sem farsóttum verður ekki haldið í skefjum nema þorri fólks sé bólusettur.
Yfirlit
Bólusetning og smitsjúkdómar
- Börn, búsett hér á landi, eru bólusett við níu sjúkdómum frá þriggja mánaða til fjórtán ára aldurs.
- Ekki er ástæða til að endurtaka barnabólusetningar fullorðinna nema þegar haldið er til heimshluta þar sem smitsjúkdómar eru landlægir. Sjálfsagt er að láta bólusetja sig.
-
Læknar tilkynna smitsjúkdóma til sóttvarnarlæknis. Tilgangurinn er að hindra útbreiðslu þeirra og koma upplýsingum til almennings.
Bólusetningar á vef Landlæknisembættis
Bólusetningar barna á vef Landlæknisembættis
Smitsjúkdómar á vef Landlæknisembættis
Kynsjúkdómar, smitleiðir, einkenni, afleiðingar og meðferð (pdf, 200 kb)
Upplýsingar og fræðsla um kynsjúkdóma á vef Landlæknisembættis
Inflúensubólusetning
- Bólusett er við árlegri inflúensu á hverju hausti. Gera má ráð fyrir faraldri frá október fram í mars og gengur hann yfirleitt yfir á tveimur til þremur mánuðum.
- Mest hætta á alvarlegum fylgikvillum er hjá öldruðum og fólki með bælt ónæmiskerfi og er því fólki ráðlagt að láta bólusetja sig árlega.
Inflúensa á vef Landlæknisembættis
Munum eftir inflúensunni - ráðleggingar til ferðalanga (pdf 341kb)

