Blóðbanki, lífsskrá og líffæragjöf
Blóðbanki, lífsskrá og líffæragjöf
Fjöldi fólks gefur blóð í Blóðbankann en framlagið er ómissandi fyrir ýmsa starfsemi á sjúkrahúsum. Þá getur fólk fyllt út kort vegna líffæragjafa eftir andlát og gengið frá lífsskrá, skjali sem geymir óskir fólks varðandi lífslok.
Yfirlit
Blóðbankinn
- Blóðbankinn, sem er eina sérhæfða stofnunin á sínu sviði í landinu, tekur við blóði heilbrigðra einstaklinga til hjálpar sjúkum.
- Þeir sem koma til greina sem blóðgjafar eru á aldrinum 18 til 60 ára, yfir 50 kíló, heilsuhraustir og lyfjalausir.
- Blóðbankinn er opinn alla virka daga og hefur hann einnig yfir að ráða blóðsöfnunarbíl sem safnar blóði á höfuðborgarsvæðinu og í nágrannabyggðum.
Lífsskrá og líffæragjöf
- Lífsskrá er skjal sem geymir óskir fólks um meðferð við lífslok geti það ekki sjálft, vegna andlegs eða líkamlegs ástands, tekið þátt í ákvörðunum.
- Með því að skrifa undir lífsskrá getur fólk sjálft haft stjórn á ákvörðunum sem teknar eru um meðferð við lok lífs þeirra og létt ákvarðanatöku af nánustu aðstandendum.
- Í líffæragjöf felst að líffæri eða önnur lífræn efni eru fjarlægð úr látinni manneskju og grædd í sjúkling sem þarfnast þeirra.
- Landlæknisembættið sér um að gefa út líffærakort sem menn geta fyllt út að eigin ósk. Æskilegt er að líffærakort séu geymd með öðrum persónuskilríkjum.
Líffæragjafi - bæklingur á vef Landlæknisembættis (pdf, 468 kb)
Líffæragjafi - fræðslumynd um líffæragjafir á Íslandi
Upplýsingar um lífsskrá og eyðublað á vef Landlæknisembættis

