Ófrjósemi/tæknifrjóvgun
Þeir sem vilja leita meðferðar við ófrjósemi geta snúið sér beint til Læknastöðvarinnar ART Medica sem starfar með leyfi velferðarráðuneytis. Einnig má leita til síns læknis eða sérfræðings.
Yfirlit
Ófrjósemi/tæknifrjóvgun
-
Það fer eftir orsökum ófrjóseminnar hvaða meðferð er ráðlögð en tæknifrjóvgun er ein þeirra sem koma til greina.
-
Nokkrar takmarkanir eru á því hvaða konur mega gangast undir tæknifrjóvgun þar sem meðal annars er tekið tillit til aldurs, heilsu og félagslegra aðstæðna. Ekki skiptir máli hver hjúskaparstaða konunnar er.
- Kostnaður við tæknifrjóvgunarmeðferð er samkvæmt gjaldskrá ART Medica.
-
Ýmiss fjárstuðningur er í boði svo sem:
endurgreiðslur vegna ferðakostnaðar innanlands,
stuðningur stéttarfélaga við sína félagsmenn.
-
Þeir sem gefa kynfrumur (sæði/egg) geta óskað eftir nafnleynd.
-
Barn sem getið er með tæknifrjóvgun getur óskað eftir upplýsingum um uppruna sinn þegar það nær 18 ára aldri, hafi gjafi ekki óskað nafnleyndar.
ART Medica - rannsóknir og meðferð
Ferðakostnaður á vef Sjúkratrygginga

