Fréttir

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna kjörs forseta Íslands - 4.5.2012

Innanríkisráðuneyti hefur sent sýslumönnum og utanríkisráðuneyti kjörgögn svo hefja megi atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hér á landi og í útlöndum

Lesa meira
 

Rafrænum íbúakosningum í Reykjavík lokið - 4.4.2012

Kjörsókn í rafrænum íbúakosningum í Reykjavík sem fram fóru dagana 29. mars – 3.apríl var 8,1%.

Lesa meira
 

Rafræn lýðræðisþróun á Íslandi - 29.3.2012

Reykjavíkurborg í samvinnu við Betri hverfi og Ísland.is þróar rafrænt lýðræði í borginni.

Lesa meira
 

Innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2012 - 13.3.2012

Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1996 eða síðar) er hafin og stendur til 30. mars.
Lesa meira
 

Vefframtal einstaklinga 2012 - 7.3.2012

Á vefnum skattur.is er búið að opna fyrir vefframtal einstaklinga 2012.
Lesa meira
 

Umboðsmaður skuldara á Akureyri - 6.2.2012

Útibú umboðsmanns skuldara á Akureyri hefur verið opnað. Útibúið er að Glerárgötu 26, 1. hæð og er opið alla virka daga frá klukkan 9 til 15.

Lesa meira
 

Innritun fatlaðra nemenda á haustönn 2012 - 30.1.2012

Innritun fatlaðra nemenda sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla á haustönn 2012, fer fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla.
Lesa meira
 

Fasteignagjöld 2012 - 27.1.2012

Fasteignaeigendum býðst nú að skoða álagningarseðla fasteignagjalda 2012 á Ísland.is

Lesa meira
 

Álagningarseðlar fasteignagjalda 2012 væntanlegir á mínum síðum - 16.1.2012

Fasteignaeigendur geta á næstu dögum og vikum skoðað álagningarseðla fasteignagjalda á 2012 á mínum síðum á Ísland.is.
Lesa meira
 

Gætum að dýrunum um áramót - 29.12.2011

Áramótin nálgast og þá er nauðsynlegt að muna sérstaklega eftir dýrunum enda mörg hver hrædd við sprengingar og læti sem fylgja flugeldum

Lesa meira
 

Aðstoð starfsmanna kirkjugarða fyrir jól - 21.12.2011

Á Þorláksmessu og aðfangadag milli klukkan 9 og 15 verða stafsmenn Kirkjugarða Reykjvíkurprófastsdæmis fólki til aðstoðar í Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði, Kópavogskirkjugarði og Hólavallagarði.

Lesa meira
 

Almenningssamgöngur um jól og áramót - 19.12.2011

Á aðfangadag og gamlársdag aka strætisvagnar á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt laugardagsáætlun til klukkan 14 en þá lýkur akstri.
Lesa meira
 

Ofan koma úr fjöllunum - 9.12.2011

Nú styttist óðum í að jólasveinarnir tínist til byggða. Fyrir þá sem farnir eru að ryðga í fræðunum er ekki úr vegi að rifja upp hverjir þeir eru og hvenær þeir koma.

Lesa meira
 

Tekjuáætlun lífeyrisþega 2012  - 23.11.2011

Lífeyrisþegar geta nú skoðað og lagað tillögu Tryggingastofnunar að tekjuáætlun 2012 inná Mínum síðum á vef Tryggingastonfunar. 

Lesa meira
 

Atvinnuleitendur fá desemberuppbót - 22.11.2011

Ákveðið hefur verið að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót. Óskert desemberuppbót til þeirra sem eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verður 63.457 krónur.

Lesa meira
 

Rjúpnaveiðitímabilið hafið - 28.10.2011

Rjúpnaveiðitímabilið í ár er hafið og stendur til sunnudagsins 27. nóvember. Vakin er athygli á því að veiðidagar í ár eru 9.

Lesa meira
 

Fyrstu skrefin á níu tungumálum - 26.10.2011

Upplýsingabæklingurinn Fyrstu skrefin er kominn út en hann er ætlaður innflytjendum jafnt sem einstaklingum, stofnunum eða öðrum sem vinna með eða koma að ráðgjöf til innflytjenda.
Lesa meira
 

Ný reiknivél fyrir aðflutningsgjöld - 29.9.2011

Opnuð hefur verið á vef Tollstjóra reiknivél og er henni ætlað að gefa hugmynd um hvað vara gæti kostað ef hún er keypt og flutt til landsins í dag.
Lesa meira
 

Breytt fyrirkomulag umsókna um styrki - 16.9.2011

Á árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til eins og verið hefur.

Lesa meira
 

Beint á þjónustuvefi - 9.9.2011

Notendum sem hafa auðkennt sig inn á mínar síður á Ísland.is stendur nú til boða að fara beint inn á nokkra opinbera þjónustuvefi án innskráningar. Auðkenning notenda er framsend til viðkomandi stofnana með öruggum hætti. Lesa meira
 

Útivistartími barna og unglinga breytist - 1.9.2011

Frá og með 1. september breytist útivistartími barna og unglinga hér á landi. Börn, 12 ára og yngri, mega þá ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20 á kvöldin nema í fylgd með fullorðnum.
Lesa meira
 

Álagning opinberra gjalda 2011 - 26.7.2011

Álagning opinberra gjalda á einstaklinga og þá sem stunda atvinnurekstur í eigin nafni fyrir árið 2011 liggur fyrir.

Lesa meira
 

Átakið Nám er vinnandi vegur - 15.7.2011

Umsóknarfrestur um þátttöku í átakinu Nám er vinnandi vegur rennur út 2. ágúst næstkomandi.

Lesa meira
 

Ákvæði laga um frestun rennur út - 28.6.2011

Fólk sem hyggjast sækja um greiðsluaðlögun til umboðsmanns skuldara er hvatt til þess að sækja um fyrir 1. júlí næstkomandi vilji það nýta sér tímabundið ákvæði laga um frestun greiðslna gagnvart kröfuhöfum. Lesa meira
 

Fasteignamat 2012 á Mínum síðum - 23.6.2011

Fasteignaeigendur geta skoðað tilkynningaseðil fasteignamats 2012 á Mínum síðum á island.is. Til þess þurfa þeir rafræn skilríki eða veflykil ríkisskattstjóra. Lesa meira
 

Bætur hækka - 7.6.2011

Bætur almanna- og atvinnuleysistrygginga hækka frá 1. júní sl. þannig að lífeyrisþegar og atvinnuleitendur njóti hliðstæðra kjarabóta og samið var um í kjarasamningum á almennum vinnumarkaði.
Lesa meira
 

Frjóofnæmi á sumrin - 1.6.2011

Fjölmargir landsmenn á þjáist af frjóofnæmi yfir sumarmánuðina, júní, júlí og ágúst, en stærsti hópurinn eru börn og ungt fólk á aldrinum 10 til 29 ára. Frjókornatíminn hér á landi er nokkuð breytilegur og háður veðurfari. Lesa meira
 

Skólinn opnar dyr - námskynning í Laugardalshöll 12. maí - 11.5.2011

Fimmtudaginn 12 maí verða námsmöguleikar í framhaldsskólum, frumgreinadeildum og háskólum auk tækifæra til fullorðinsfræðslu kynntir í Laugardalshöll milli kl. 11-16.
Lesa meira
 

Tannlækningar fyrir börn tekjulágra - 27.4.2011

Frá 1. maí til 26. ágúst verður starfrækt tannlæknaþjónusta fyrir börn af öllu landinu á tannlæknadeild Háskóla Íslands í Læknagarði í Reykjavík. Þjónustan er ætluð börnum tekjulágra, yngri en 18 ára sem eru sjúkratryggð.

Lesa meira
 

900 sumarstörf 2011 - 18.4.2011

Velferðarráðuneyti og Vinnumálastofnun standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur.

Lesa meira
 

Kjörfundarupplýsingar á vefjum sveitarfélaga - 8.4.2011

Sveitarfélög auglýsa kjörstaði í þjóðaratkvæðagreiðslunni laugardaginn 9. apríl og mörg þeirra birta einnig kjörfundarupplýsingar á vefjum sínum. Lesa meira
 

Þjóðskrá Íslands afgreiðir mál er varða mannanöfn - 29.3.2011

Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um mannanöfn nr. 45/1996 sem felur í sér að héðan í frá verði mál er varða mannanöfn afgreidd af Þjóðskrá Íslands en ekki ýmist þar eða hjá innanríkisráðuneyti eins og verið hefur um skeið. Lesa meira
 

Upplýsingar vegna kjörskrár og þjóðaratkvæðagreiðslu - 28.3.2011

Kjósendur geta nú kannað hvar þeir eru á kjörskrá í þjóðaratkvæðagreiðslunni 9. apríl næstkomandi á vefnum kosning.is
Lesa meira
 

Rafræn innritun í framhaldsskóla fyrir haustönn 2011 - 21.3.2011

Forinnritun nemenda í 10. bekk (fæddir 1995 eða síðar) hefst 21. mars og stendur til 1. apríl. Nemendur fá afhent, í grunnskóla sínum, bréf frá mennta og menningarmálaráðuneyti með veflykli og leiðbeiningum.
Lesa meira
 

Vefframtal einstaklinga 2011 - 7.3.2011

Á vefnum skattur.is er búið að opna fyrir vefframtal einstaklinga 2011. Frestur til að skila skattframtali rennur út 23. mars.

Lesa meira
 

LÍN á Ísland.is - 7.2.2011

Í síðustu viku bættist Lánasjóður íslenskra námsmanna í hóp þeirra sem nota auðkenninguna á Ísland.is. Notendur auðkenningarþjónustunnar eru þá orðnir níu talsins. Lesa meira
 

Átakið „Allir vinna“ framlengt - 21.1.2011

Ákveðið hefur verið að framlengja hvatningarátakið „Allir vinna“ til 1. janúar 2012. Þannig gefst fólki kostur á endurgreiðslu virðisaukaskatts og skattafrádrætti vegna framkvæmda við íbúðarhúsnæði/sumarhús þegar unnið er að viðhaldi eða endurbótum á byggingarstað.
Lesa meira
 

Flutningur Ísland.is - 10.1.2011

Ísland.is, upplýsinga- og þjónustuveita hins opinbera, fluttist frá forsætisráðuneytinu til Þjóðskrár Íslands þriðjudaginn 11. janúar 2011.

Lesa meira
 

Rjúpnaveiði að hefjast - 28.10.2010

Rjúpnaveiðitímabilið í ár hefst á morgun föstudaginn 29. október og stendur til sunnudagsins 5. desember. Lesa meira
 

Menntunarmeðlag ungmenna og barnalífeyrir - 28.9.2010

Þegar greiðslum meðlags og barnalífeyris lýkur við 18 ára aldur barns getur verið til staðar réttur á greiðslum til ungmennis sem er í námi. Lesa meira
 

Viðmiðunargengi við útreikning á greiðslum Tryggingastofnunar - 27.9.2010

Ef um erlendar tekjur er að ræða miðast útreikningur bóta Tryggingastofnunar á árinu 2010 við meðalgengi krónunnar eins og það var skráð samkvæmt Seðlabanka Íslands í október 2009. Lesa meira
 

Dánarorsakir 2009 - 21.9.2010

Hagstofa Íslands hefur nú birt dánarmein fyrir árið 2009. Gögnin byggja á dánarvottorðum allra einstaklinga sem létust á árinu 2009 og áttu lögheimili á Íslandi við andlát.

Lesa meira
 

Nafngiftir og fæðingardagar - 14.9.2010

Alexander var vinsælasta nafngift nýfæddra sveinbarna í fyrra en Anna hjá meybörnum. Afmælisdagar á Íslandi dreifast ekki jafnt yfir árið, þar sem algengast er að börn fæðist að sumri til og á hausti. Lesa meira
 

Sérþjónusta fyrir fólk með ólæknandi og lífsógnandi sjúkdóma - 13.9.2010

Markmið verkefnisins er að hverjum þeim sem glímir við slíka sjúkdóma bjóðist aðstoð sérhæfðs þjónusturáðgjafa við að nálgast réttindi sín innan kerfisins. Hópurinn sem verkefnið nær til takmarkast við krabbameinssjúklinga og MND  sjúklinga. Lesa meira
 

Fjölgun  sortuæxla tengd ljósabekkjanotkun - 10.9.2010

Talið er sennilegt að mikil aukning á sortuæxlum í húð hér á landi síðustu áratugi stafi einkum af notkun ljósabekkja, en einnig að hluta til af sólarlandaferðum. Þetta kemur fram í grein sem birtist í septemberhefti tímaritsins American Journal of Epidemiology. Lesa meira
 

Fjölsmiðja fyrir ungt fólk á Suðurnesjum - 9.9.2010

Undanfarna mánuði hefur á vegum Vinnumálastofnunar, Rauða kross Íslands og sveitarfélaganna á Suðurnesjum verið unnið að undirbúningi Fjölsmiðju fyrir ungt fólk. Hún verður af sama meiði og fyrri Fjölsmiðjur í Kópavogi og á Akureyri. Lesa meira
 

Útivistartími barna og unglinga styttist - 1.9.2010

Frá og með 1. september mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00 og 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00.

Lesa meira
 

Ný norræn upplýsingasíða um notendastýrða persónulega aðstoð - 31.8.2010

Norræna upplýsingasíðu um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlaða hefur verið tekin í gagnið. Allar Norðurlandaþjóðirnar stóðu að verkefninu undir stjórn Íslendinga. Lesa meira
 

Minni helgarumferð í sumar en í fyrra - 30.8.2010

Mesta umferðarhelgi sumarsins var 16.-18. júlí samkvæmt talningu Vegagerðarinnar.  Meðalhelgarumferð í sumar var 2,3% minni en í fyrra en 0,9% meiri en í hitteðfyrra.

Lesa meira
 

Kynungabók um jafnrétti kynja komin út - 25.8.2010

Mennta- og menningarmálráðuneytið hefur gefið út Kynungabók, upplýsingarit fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja.

Lesa meira
 

Örorkustyrkur - 24.8.2010

Þeir sem eru á aldrinum 18-67 ára geta átt rétt á örorkustyrk. Skilyrði er að umsækjandi hafi verið búsettur á Íslandi a.m.k. þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram eða í sex mánuði ef starfsorka var óskert þegar hann tók hér búsetu. Einnig þarf að liggja fyrir mat tryggingalæknis um að umsækjandi hafi misst a.m.k. 50% af starfsorku sinni en nái ekki 75% starfsorkumissi. Lesa meira
 

Endurútreikningur atvinnuleysisbóta vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóðum - 20.8.2010

Ef þú ert 60 ára eða eldri og hefur fengið greiðslur úr séreignarlífeyrissjóði á sama tíma og þú varst á atvinnuleysisskrá frá 1. mars 2009 og atvinnuleysisbætur þínar hafa verið skertar af þeim sökum, gætir þú átt rétt á endurgreiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nemur fjárhæð skerðingar. Lesa meira
 

Öryggi barna á leið til skóla - 19.8.2010

Nú er stutt í að skólar hefji göngu sína og margt sem hafa þarf í huga varðandi öryggi þeirra barna sem eru að hefja skólagöngu. Umferðarstofa minnir á nokkur atriði sem vert er að hafa í huga varðandi öryggi barnsins á leið til og frá skóla. Lesa meira
 

Matarúthlutun Hjálparstarfsins hefst aftur - 18.8.2010

Matarúthlutun Hjálparstarfs kirkjunnar hefst aftur eftir sumarlokun í dag, 18. ágúst frá klukkan 12-17. Lesa meira
 

Öryggis barna skal gætt við busavígslur - 17.8.2010

Umboðsmaður barna hvetur skólastjórnendur og nemendafélög framhaldsskólanna til að sjá til þess að komið verði fram við nýnema af virðingu og öryggis þeirra gætt við busavígslur. Lesa meira
 

Uppgjör endurreiknings TR fyrir árið 2009 - 29.7.2010

Tryggingastofnun ríkisins greiðir lífeyrisþegum bætur í hverjum mánuði á grundvelli áætlaðra árstekna hvers og eins. Bæturnar eru grunnlífeyrir, tekjutrygging, heimilisuppbót, aldurtengdar örorkubætur, orlofs- og desemberuppbætur og vistunarframlag.
Lesa meira
 

Er grillmatur varasamur? - 5.7.2010

 Á sólríkum dögum draga margir útigrillin úr geymslum og loftið fyllist af indælli grilllykt. Það er ekki sama hvernig er staðið að eldun á grilli. Við matreiðslu yfir opnum eldi er hætta á myndun krabbameinsvaldandi efna.
Lesa meira
 

Íslendingar nota netið minnst Norðurlandaþjóða með farsímum og netlyklum - 1.7.2010

Íslendingar sækja minna af gögnum á netið í gegn um farsíma og netlykla en aðrar þjóðir á Norðurlöndum og áskrifendur að gagnaflutningi um breiðband eru einnig fæstir hér miðað við höfðatölu. Lesa meira
 

Verð á mat og drykk á Íslandi við meðaltal ESB-landa - 29.6.2010

Hlutfallslegt verðlag matvæla á Íslandi er 4% hærra en að meðaltali í 27 aðildarríkjum Evrópusambandsins samkvæmt niðurstöðum úr evrópskri könnun á verði matvæla, áfengis og tóbaks, sem gerð var vorið 2009. Þetta er mikil breyting frá fyrri könnun, sem gerð var árið 2006, en þá var verðlag hæst á Íslandi eða 61% hærra en í Evrópusambandinu. Lesa meira
 

Öskufok/öskumistur – leiðbeiningar - 28.6.2010

Ákveðin hópur fólks er viðkvæmari fyrir svifryki en aðrir, t.d. fólk með hjarta- og lungnasjúkdóma. Hvað á að gera og hvað á ekki að gera í öskufoki? Lesa meira
 

Nú er hægt að reikna fjarskiptakostnað á vefnum - 22.6.2010

Póst- og fjarskiptastofnun opnaði vefinn Reiknivél PFS í dag. Tilgangur reiknivélarinnar er að auðvelda neytendum að átta sig á flóknum fjarskiptamarkaði og bera saman verð á þjónustuleiðum fjarskiptafyrirtækja fyrir heimasíma og farsíma og ADSL nettengingar.

Lesa meira
 

Frjóofnæmi á sumrin - 21.6.2010

Fjölmargir landsmenn á þjáist af frjóofnæmi yfir sumarmánuðina, júní, júlí og ágúst, en stærsti hópurinn eru börn og ungt fólk á aldrinum 10 til 29 ára.

Lesa meira
 

Evrópska sjúkratryggingakortið með í ferðalagið - 1.6.2010

Þeir sem ferðast í Evrópu og eru sjúkratryggðir á Íslandi eiga rétt á að fá nauðsynlega opinbera læknisþjónustu á sömu kjörum og íbúar viðkomandi lands. Lesa meira
 

Tilkynningar til barnaverndarnefnda á fyrsta ársfjórðungi - 28.5.2010

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 fjölgaði tilkynningum til barnaverndarnefnda um 3% samanborið við fyrstu þrjá mánuði ársins 2009. Nokkur munur er eftir landsvæðum en tilkynningum fækkaði lítillega á höfuðborgarsvæðinu en fjölgaði á landsbyggðinni um 10%. Lesa meira
 

Víst er gott að borða gulrótina - 6.5.2010

Lýðheilsustöð ítrekar að þrátt fyrir niðurstöður nýrrar rannóknar um tiltölulega litla þýðingu grænmetis- og ávaxtaáts til varnar krabbameini sé full ástæða til að borða fimm skammta af slíku á dag.

Lesa meira
 

Helsta orsök örorku eftir sjúkdómaflokkum - 4.5.2010

Í fyrra voru 15 þúsund einstaklingar með örorkumat í gildi hjá Tryggingastofnun, þ.e. með hærra örorkustigsmat eða yfir 75% örorku.

Lesa meira
 

Auglýsingaherferð Umferðarstofu skilar árangri - 3.5.2010

Með hækkandi sól fjölgar bifhjólum á götum landsins og því vert að minna alla á að gæta ítrustu varfærni í umferðinni. Bifhjólaslysum fækkaði um 16,8% í fyrra miðað við árið 2008. Lesa meira
 

Útivistartími barna og unglinga breytist - 30.4.2010

Frá og með 1. maí breytist útivistartími barna og unglinga hér á landi. Börn, 12 ára og yngri, mega þá ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22 á kvöldin nema í fylgd með fullorðnum. Lesa meira
 

Öskufall – Leiðbeiningar um viðbúnað fyrir, eftir og meðan á öskufalli stendur - 26.4.2010

Upplýsingabæklingur um viðbrögð við öskufalli er kominn út. Í bæklingnum, sem er þýddur og staðfærður, er að finna leiðbeiningar um viðbúnað fyrir, eftir og meðan á öskufalli stendur. Lesa meira
 

Án beltis eru 20 sinnum meiri líkur á banaslysi - 21.4.2010

Í slysaskýrslu Umferðarstofu fyrir árið 2009 kemur fram að af þeim 9 sem létust í bifreið utan þéttbýlis voru fimm ekki með öryggisbelti. Miðað við könnun sem Capacent vann fyrir Umferðarstofu má ætla að þeir sem einhverntíma taka þá áhættu að nota ekki öryggisbelti utan þéttbýlis eru í 20 sinnum meiri lífshættu en þeir sem undantekningarlaust spenna beltin. Lesa meira
 

Bráð áhrif gosösku á heilsufar - 20.4.2010

Vegna eldgoss í  Eyjafjallajökli hefur Landlæknisembættið birt upplýsingar um hvernig áhrif gosaska getur haft bráð áhrif á fólk. Askan er samsett úr ögnum af ýmsum stærðum. Um fjórðungur af ögnunum eru það smáar að þær geta borist niður í lungun. Lesa meira
 

Réttindi flugfarþega - 16.4.2010

Áhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á flugumferð veldur því að margir flugfarþegar komast ekki til áfangastaðar síns á réttum tíma eða jafnvel alls ekki. Reglugerð um réttindi flugfarþega getur að líta hér.

Lesa meira
 

Volcanic eruption - information in english - 15.4.2010

The force of the volcanic eruption under the Eyjafjallajökull glacier appears to be steady, although last night and this morning there has been explosive activity that is associated with volcanic ash fall.

The Police have restricted travel on roads into Vík and Myrdalsandur in the west, and to Kirkjubæjarklaustur in the east. Repair work continues on the bridges in Markarfljót .
 
International weather observatories in co-operation with the Icelandic Met Office are monitoring the weather conditions and the projected path of the volcanic ash cloud, which in the present conditions is being carried towards Europe and Scandinavia . Air travel restrictions have been implemented in several European countries.
Lesa meira
 

Krabbameinsleit tryggð til næstu fimm ára - 15.4.2010

Þjónustusamningur milli Krabbameinsfélags Íslands og Sjúkratrygginga Íslands um skipulagða leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum kvenna var undirritaður fyrir skemmstu. Lesa meira
 

Upplýsingavefir vegna eldgoss í Eyjafjallajökli - 14.4.2010

Upplýsingavefir sem komið geta að gagni vegna náttúruhamfara.

Lesa meira
 

Afsláttur vegna heilbrigðisþjónustu - 13.4.2010

Um 15.000 sjúkratryggðum einstaklingum hafa verið endurgreiddar 63 milljónir króna af Sjúkratryggingum Íslands vegna afsláttar sem ekki var hægt að borga út þegar heilbrigðisþjónusta var veitt á síðasta ári. Hægt er að nálgast greiðsluskjöl í Réttindagátt og senda bankareikning vegna endurgreiðslu á www.sjukra.is. Lesa meira
 

Háhraðanet á undan áætlun - 8.4.2010

Reiknað er með að unnt verði að tengja rúmlega 1.600 skilgreind lögheimili með heilsársbúsetu eða fasteignir með heilsársstarfsemi við háhraðanet fjórum mánuðum fyrr en áætlað var. Lesa meira
 

Kosningavefur fyrir sveitarstjórnarkosningar - 7.4.2010

Upplýsingavefur um sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi hefur verið opnaður. Á vefnum,  www.kosning.is, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar er lúta að framkvæmd kosninganna. Meðal annars upplýsingar fyrir kjósendur um kosningarrétt, kjörgengi og utankjörfundaratkvæðagreiðslu.

Lesa meira
 

Bráðabirgðauppgjör hjá TR vegna bótaréttar dánarbúa - 6.4.2010

Tryggingastofnun býður erfingjum dánarbúa að framkvæma bráðabirgðauppgjör vegna bótaréttar. Við einkaskipti á dánarbúum öðlast erfingjar réttindi búsins og gangast í ábyrgð fyrir skuldbindingum þess. Tilgangur bráðabirgðauppgjörs er að aðstandendur hins látna geti betur gert sér grein fyrir skuldastöðu hins látna hjá Tryggingastofnun og verið meðvitaðir um hvort von sé á kröfu eða inneign við framkvæmd uppgjörs.

Lesa meira
 

Páskafróðleikur - 1.4.2010

Óðum styttist í páskana og því ekki úr vegi að rifja upp það helsta sem á þá dagana dreif á sínum tíma samkvæmt guðspjöllunum.

Lesa meira
 

Bólusetningu barna við barnaveiki, stífkrampa og kikhósta flýtt um 1 ár - 31.3.2010

Sóttvarnalæknir hefur ákveðið að fimm ára bólusetning með Boostrix verði færð til fjögurra ára aldurs til samræmis við almennt ungbarnaeftirlit. Með Boostrix er bólusett með einni sprautu við barnaveiki, stífkrampa og kikhósta til að viðhalda grunnbólusetningu sem felst í 3 bólusetningum, við 3ja, 5 og 12 mánaða aldur. Lesa meira
 

Ríkisfangsbreytingar 2009 - 30.3.2010

Í fyrra fengu 728 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt en 914 árið áður. Aldrei höfðu fleiri fengið íslenskan ríkisborgararétt en þá. Til samanburðar má geta þess að árið 1991 fékk 161 einstaklingur íslenskan ríkisborgararétt en þeim hefur fjölgað jafnt og þétt síðan. 

Lesa meira
 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla vegna sveitarstjórnakosninga hefst 6. apríl - 24.3.2010

Almennar sveitarstjórnarkosningar verða haldnar laugardaginn 29. maí 2010. Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þriðjudaginn 6. apríl en frestur til að skila framboðslistum til yfirkjörstjórnar í viðkomandi sveitarfélagi er til kl. 12 á hádegi laugardaginn 8. maí. Lesa meira
 

Landlæknisembættið 250 ára - 18.3.2010

Landlæknisembættið á 250 ára afmæli í dag. Það var stofnað 18. mars 1760 er því með elstu embættum landsins af veraldlegum toga.Fyrsti landlæknirinn, Bjarni Pálsson, var skipaður í embættið með konungsúrskurði og var hann jafnframt fyrsti sérmenntaði læknirinn á Íslandi. Með skipun hans í embætti má segja að heilbrigðisþjónusta í nútímaskilningi hafi haldið innreið sína í landið. Lesa meira
 

Ráðgjafarhópur gagnrýnir nýjar innritunarreglur í framhaldsskóla - 17.3.2010

Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna hefur sent menntamálaráðherra bréf þar sem hann gagnrýnir það að ungmenni hafi ekki verið höfð með í ráðum áður en áfangaskýrsla starfshóps um innritun í framhaldsskóla var gefin út. Sérstaklega er vikið að hverfaskiptingu framhaldsskóla. Lesa meira
 

Íbúum landsins fækkar um hálft prósent milli ára - 16.3.2010

Fólksfækkun varð á landinu á árinu 2009 í fyrsta sinn frá lokum 19. aldar. Þann 1. janúar 2010 voru 317.630 íbúar með fasta búsetu á Íslandi, samanborið við 319.368 ári áður. Fækkunin nemur hálfu prósenti. Lesa meira
 

Hvaða rétt á neytandi? - 16.3.2010

Í tilefni af alþjóðadegi neytendaréttar í vikunni tók talsmaður neytenda nokkur dæmi um hvernig átta yfirlýst grundvallarréttindi neytenda endurspeglast í íslenskum lögum og framkvæmd á Íslandi. Lesa meira
 

Laussvæfir geitungar á útmánuðum - ráðist á húsmóður uppi í rúmi - 15.3.2010

Borið hefur á því að geitungar hafi rumskað af vetrarsvefni nú á útmánuðum 2010 í meiri mæli en áður hefur vitnast en slíkt svefnrask hefur heyrt til undantekninga á þessum árstíma. Hvort það stafar af einstakri veðurblíðu eða því að óvenju margar drottningar bíða nú vorsins kemur væntanlega í ljós í sumar. Lesa meira
 

Samanburður fasteignamats á nokkrum þéttbýlisstöðum - 15.3.2010

Byggðastofnun hefur fengið Fasteignaskrá Íslands til að reikna út fasteignamat á sömu fasteigninni  í 25 þéttbýlisstöðum vítt og breitt um landið. Af þeim stöðum sem skoðaðir voru þá er matið hæst í Keflavík 25,8 milljónir og á Akureyri 25,6 milljónir. Lægst er matið á Patreksfirði 7,9 milljónir, í Bolungarvík 8,8 milljónir og á Siglufirði 9,4 milljónir. Lesa meira
 

Skipulagsvefsjá – rafrænt gagnasafn skipulagsáætlana - 15.3.2010

Á vef Skipulagsstofnunar hefur verið opnuð Skipulagsvefsjá, rafrænt gagnasafn skipulagsáætlana sem varðveittar eru hjá stofnuninni.
Lesa meira
 

Gistinóttum fjölgar milli ára - 12.3.2010

Heildarfjöldi gistinátta á Íslandi var 2,9 milljónir árið 2009, en það er um 6,6% aukning frá fyrra ári. Gistinóttum fjölgaði milli ára á öllum tegundum gististaða nema hótelum og gistiheimilum, en þar var fjöldinn svipaður og áður. Lesa meira
 

Netframtalið aðgengilegt - 12.3.2010

Netframtal einstaklinga 2010 er nú aðgengilegt á þjónustuvefnum, skattur.is. Þar er einnig að finna margvíslegar leiðbeiningar um útfyllingu framtalsins, svör við ýmsum spurningum sem kvikna vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem nú eru á Íslandi og tengjast skattframtalinu og fleira og fleira. Lesa meira
 

Hættan er ljós: Ungt fólk á ekki að fara í ljósabekki - 11.3.2010

Átak sem beinist að fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki stendur nú yfir. Vakin er athygli á því að börn og unglingar séu næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól.

Lesa meira
 

Gagnagrunnur um íbúaþróun - 10.3.2010

Gagnagrunnur Byggðastofnunar um íbúaþróun hefur verið uppfærður með tölum frá 1. desember 2009. Þar er hægt að skoða á myndrænan hátt íbúaþróun áranna 1997-2009 eftir kyni og aldri í skráðum sveitarfélögum 1. desember 2009, einnig er hægt að skoða ákveðin landsvæði.

Lesa meira
 

Talsvert minni umferð í upphafi árs en á sama tíma í fyrra - 9.3.2010

Samkvæmt mælingum á 16 stöðum á Hringvegi hefur umferð minnkað um 4,3% í janúar og febrúar 2010 samanborið við sömu mánuði í fyrra. Fara þarf aftur til ársins 2006 til að finna minni akstur í upphafi árs. Lesa meira
 

Kötturinn í sekknum hjá Landgræðslunni - 8.3.2010

Líkt og aðrar stofnanir og ráðuneyti leitar Landgræðslan allra leiða til að spara og hagræða í rekstri. Meðal  70 sparnaðarhugmynda starfsmanna laut ein að því að draga úr rýrnun á landgræðslufræi sem mörg músin er mjög sólgin í. Til starfans var vitaskuld fenginn veiðiköttur.

Lesa meira
 

Ókeypis lögfræðiráðgjöf á bókasöfnum í borginni - 8.3.2010

Orator, félag laganema, býður lögfræðilega ráðgjöf ókeypis á bókasöfnum Reykjavíkurborgar næstu vikur.  Lesa meira
 

Rúmlega 230 þúsund manns á kjörskrá á morgun - 5.3.2010

230.014 kjósendur eru á kjörskrá vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar á morgun, 6. mars. Við alþingiskosningarnar 25. apríl 2009 voru 227.843 á kjörskrá og nemur fjölgunin 2.171 eða 0,9%. Lesa meira
 

Ungt fólk til athafna - 23.2.2010

Verkefnið Ungt fólk til athafna hefur fengið góðar viðtökur hjá ungmennum. Um 300-400 hafa fengið kynningu á vegum Vinnumálastofnunar og þurfa allir í kjölfarið að velja að minnsta kosti þrennt sem vekur áhuga.

Lesa meira
 

112 - þegar velferð barns er í húfi - 18.2.2010

Þér ber að hafa samband við barnaverndarnefnd ef þú hefur ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, það verði fyrir áreitni eða ofbeldi, að heilsu þess og þroska sé stefnt í alvarlega hættu. Ekki gera ráð fyrir að einhver annar sé búinn að tilkynna.

Lesa meira
 

Nýskráning ökutækja dregst mikið saman - 15.2.2010

Mun færri ökutæki hafa verið nýskráð hjá Umferðarstofu það sem af er árinu en á sama tíma í fyrra. 316 slík voru skráð frá upphafi þessa árs til 15. febrúar en á sama tíma árið 2009 voru þau 444. Lesa meira
 

Koffín fræðsla fyrir börn og fullorðna - 10.2.2010

Matvælastofnun hefur gefið út fræðsluefni um koffín með það að markmiði að upplýsa börn, unglinga og aðstandendur þeirra um áhrif koffíns á líkamann og þær hættur sem kunna að steðja af ofneyslu þess. Lesa meira
 

Getur þú hjálpað þegar á reynir?  - 9.2.2010

112-dagurinn verður haldinn víða um land næst komandi fimmtudag 11. febrúar. Þema dagsins er þátttaka venjulegs fólks á vettvangi slysa, veikinda og áfalla.

Lesa meira
 

Alþjóðlegi netöryggisdagurinn - 8.2.2010

Morgundagurinn, 9. febrúar, verður á alþjóðavísu helgaður netöryggi. Hér á landi verður meðal annars reynt að vekja fólk til umhugsunar hvers eðlis netið er, hvað  þangað á erindi og hvað ekki. Lesa meira
 

Tilkynningum til barnaverndarnefnda fjölgar - 5.2.2010

Fyrstu níu mánuði síðastliðins árs fjölgað tilkynningum til barnaverndarnefnda um 16% frá sama tíma árið 2008, eða úr 5.940 í 6.906. Á höfuðborgarsvæðinu er aukningin rúmlega 22% en rúmlega 4% á landsbyggðinni. Lesa meira
 

Umferðarþungi minnkar milli janúarmánaða - 4.2.2010

Umferðin á 16 talningarstöðum á Hringvegi var ríflega 3 prósentum minni í nýliðnum janúar en á sama tíma í fyrra. Mest dróst umferðin saman á Suðurlandi en hún jókst hinsvegar á Norður- og Austurlandi. Lesa meira
 

29 tilkynningar í fyrra um aukaverkanir vegna Pandemrix - 3.2.2010

Mikil fjölgun varð á tilkynningum um aukaverkanir lyfja á síðasta ári frá árinu 2008. Meðal annars bárust 29 tilkynningar af völdum Pandemrix, bóluefnis við inflúensu af stofni A(H1N1). Lesa meira
 

Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar - 13.1.2010

Um áramót tók gildi breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar. Þær snúa meðal annars að sjálfstætt starfandi einstaklingum, námsmönnum, tilfallandi vinnu og fleiru. Vinnumálastofnun bendir meðal annars á að þeir sem boðaðir eru til fundar bréfleiðis fá tilkynningu senda á lögheimili sitt.

Lesa meira
 

Kostnaður sjúkratryggðra vegna heilbrigðisþjónustu 2010 - 12.1.2010

Flokkun sjúkratryggðra breyttist um áramót og grunnupphæðir vegna heilbrigðisþjónustu og afsláttarviðmið hafa almennt hækkað nema vegna barna.

Lesa meira
 

Lesum fylgiseðla lyfja - 12.1.2010

Mikilvægi þess að notendur lyfja kynni sér vel og vandlega upplýsingar í fylgiseðlunum verður aldrei ofmetið. Ef þörf er fyrir frekari upplýsingar en þar koma fram er mikilvægt að leita til læknis eða lyfjafræðings. Lesa meira
 

Greiðslur til lifandi líffæragjafa - nýr bótaflokkur hjá Tryggingastofnun - 11.1.2010

Nú er hægt að sækja um greiðslur úr nýjum bótaflokki hjá Tryggingastofnun sem er ætlað að tryggja lifandi líffæragjöfum tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir geta hvorki stundað vinnu né nám vegna líffæragjafar.

Lesa meira
 

Mataræði á nýju ári - 8.1.2010

Í upphafi árs leiða margir hugann að því hvað þeir geti gert til að stuðla að bættu heilsufari. Með góðu fæðuvali má draga úr líkunum á ýmsum sjúkdómum. Það er því ekki úr vegi að rifja upp ráðleggingar Lýðheilsustöðvar – manneldisráðs um mataræði og næringarefni en markmiðið með þeim er meðal annars að draga úr líkunum á ýmsum sjúkdómum og stuðla að sem bestri líðan landsmanna. Lesa meira
 

Farþegum um Keflavíkurflugvöll fækkar um 1/6 milli ára - 7.1.2010

Samkvæmt tölum frá Keflavíkurflugvelli fóru tæplega 1,7 milljónir farþega um völlinn á nýliðnu ári sem er um 16,7% fækkun á frá 2008. Lesa meira
 

Meira ekið 2009 en 2008 - 7.1.2010

Umferðin á 16 völdum talningarstöðum á Hringvegi var 2,2 prósentum meiri á árinu 2009 en árinu 2008 samkvæmt bráðabirgðatölum Vegagerðarinnar. Lesa meira
 

Fræðsluefni um líffæragjafir á vef landlæknis - 4.1.2010

Á vef Landlæknisembættisins hefur verið opnuð ný vefsíða um líffæragjafir. Á síðunni er meðal annars hægt að opna og skoða fræðslumynd um líffæragjafir á Íslandi. Í myndinni er fjallað um fyrirkomulag slíkra gjafa hér á landi. Læknar og aðrir fagaðilar útskýra hvernig þær ganga fyrir sig og aðstandendur líffæragjafa og líffæraþega greina frá reynslu sinni. Lesa meira
 

Gætum að dýrunum um áramót - 29.12.2009


Áramótin nálgast og þá er nauðsynlegt að muna sérstaklega eftir dýrunum enda mörg hver logandi hrædd við sprengingar og læti sem fylgja flugeldum. 
Lesa meira
 

Bætur og frítekjumörk breytast ekki - 29.12.2009

Fyrir jól voru samþykkt lög um breytingar á lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um málefni aldraðra sem taka gildi við upphaf nýs árs.

Lesa meira
 

Uppgreiðslugjald af keyptum eða yfirteknum lánum hjá Íbúðalánasjóði - 29.12.2009

Stjórn Íbúðalánasjóðs hefur samþykkt reglur um uppgreiðslugjald af þeim lánum sem sjóðurinn hefur keypt eða yfirtekið af öðrum fjármálastofnunum.
Lesa meira
 

Staðfesting Lyfjastofnunar Evrópu á öryggi bóluefna við inflúensu og veiruvarnarlyfja - 28.12.2009

Í fréttatilkynningu frá Lyfjastofnun Evrópu (EMA) kemur fram að nýjustu gögn staðfesti að bóluefnin sem fengið hafa markaðsleyfi á Evrópska efnahagssvæðinu séu örugg og mikill ávinningur sé af notkun þeirra. Lesa meira
 

Þjónusta Vegagerðarinnar um jól og áramót - 23.12.2009

Á aðfangadag og jóladag er gert ráð fyrir þjónustu til kl. 14 en ef þörf krefur til kl. 17 nema á lengstu leiðum. Á jóla- og nýársdag verður Vegagerðin einungis á ferðinni þar sem þjónusta er alla daga vikunnar að jafnaði. Stefnt er að því að þær leiðir verði almennt færar fyrir kl. 10.
Lesa meira
 

Slysum vegna ölvunaraksturs fækkar um fjórðung á milli ára - 22.12.2009

Samkvæmt tölum frá lögreglu höfuðborgarsvæðisins eru umferðaróhöpp sem rakin eru til ölvunaraksturs það sem af er árinu rúmlega 26% færri en á sama tímabili í fyrra. Lesa meira
 

Inflúensufaraldurinn haustið 2009 - 22.12.2009

Þótt mjög hafi dregið úr fjölda þeirra sem greinast með inflúensulík einkenni er enn lögð áhersla á að bólusetja sem flesta landsmenn á næstu mánuðum til að koma í veg fyrir annarri bylgju síðar í vetur eða næsta haust.
Lesa meira
 

Fjórir af hverjum fimm fluttu aftur heim frá útlöndum - 16.12.2009

Allt að 79% Íslendinga sem fluttu til útlanda á árunum 1986-2008 fluttu aftur heim. Að meðaltali eftir 2,4 ára búsetu erlendis. Lesa meira
 

Ofan koma úr fjöllunum - 11.12.2009

Nú styttist óðum í að jólasveinarnir tínist til byggða. Fyrir þá sem farnir eru að ryðga í fræðunum er ekki úr vega að rifja upp hverjir þeir eru og hvenær þeir koma.

Lesa meira
 

Enginn greinst enn með árlega inflúensu - mjög hefur dregið úr svínaflensusmiti - 11.12.2009

Það sem af er hausti hefur enginn greinst með hefðbundna árlega inflúensu og aðeins einn af 23 sem rannsakaðir voru í síðustu viku reyndist smitaður af svínaflensu. Lesa meira
 

Jólagjafir að utan - 9.12.2009

Í ákveðnum tilvikum þarf ekki að greiða tolla og önnur aðflutningsgjöld af jólagjöfum sem sendar eru til landsins. Þetta á þó aðeins við um gjafir sem gefandi búsettur erlendis hefur með sér eða sendir hingað til lands, en gildir hins vegar ekki um innflutning í atvinnuskyni. Lesa meira
 

Vetrarakstur - nokkur góð ráð - 8.12.2009

Þjónustudeild Vegagerðarinnar gaf út fyrir nokkrum árum leiðbeiningar um vetrarakstur sem eru enn í góðu gildi. Vitaskuld þarf alltaf að aka í samræmi við aðstæður því þrátt fyrir hálkuvarnir og snjómokstur má búast við ýmsu að vetri til. Lesa meira
 

Ábyrg notkun sýklalyfja - 7.12.2009

Efnt var til vitunardvakningar í Evrópu 18. nóvember síðast liðinn um þá hættu sem mönnum stafar af sýklalyfjaónæmum sýklum og hvatt til ábyrgrar notkunar sýklalyfja. Lesa meira
 

Innflytjendur og einstaklingar með erlendan bakgrunn - 4.12.2009

Þann 1. janúar 2009 voru 28.644 innflytjendur á Íslandi eða 9,0% mannfjöldans. Pólverjar eru langfjölmennasti hópur innflytjenda hér á landi. Í byrjun árs áttu 11.575 einstaklingar uppruna í Póllandi eða 40,4% allra innflytjenda. Lesa meira
 

Utanlandsferðir Íslendinga í nóvember innan við helmingur þess sem var í sama mánuði 2007 - 3.12.2009

Ferðum Íslendinga til útlanda um Leifsstöð fjölgaði um 15,5% í nýliðnum nóvember miðað við sama mánuð í fyrra. Í nóvember árið 2007 fóru Íslendingar í tæplega 110% fleiri ferðir en nú.

Lesa meira
 

Vönduð tekjuáætlun, réttari greiðslur - 2.12.2009

Nú geta lífeyrisþegar skoðað og lagað tillögu Tryggingastofnunar að tekjuáætlun 2010 inná þjónustuvefnum tryggur.is.

Lesa meira
 

Jólaaðstoð hjálparsamtaka - 2.12.2009

Fyrir jólin veita Reykjavíkurdeild Rauða krossins, Hjálparstarf kirkjunnar og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur sameiginlega jólaaðstoð. Sækja þarf um aðstoðina fyrirfram. Lesa meira
 

Nýr upplýsingavefur um heilsuvernd barna - 2.12.2009

Fyrir skömmu fór vefurinn 6h.is í loftið. Markmiðið með honum er að útvega áreiðanlegar upplýsingar frá fagfólki um heilsutengda þætti fyrir börn, unglinga og foreldra.

Lesa meira
 

Jóladagatal kirkjunnar - 1.12.2009

Á vef kirkjunnar er nú að finna jóladagatal fyrir hvern dag aðventunnar. Í gluggunum leynist fróðleikur um aðventu og jól, skemmtilegar sögur, hugmyndir fyrir fjölskyldusamverur, föndur, sálmar og bænir og samverustundir við aðventukransinn. Lesa meira
 

PFS undirbýr reiknivél fyrir verð á fjarskiptaþjónustu - 1.12.2009

Póst- og fjarskiptastofnun hefur undanfarna mánuði unnið að gerð reiknivélar fyrir neytendur þar sem þeir geta borið saman verð á síma- og netþjónustu miðað við þrjú fyrirfram gefin notkunarstig; litla, meðal eða mikla notkun. Lesa meira
 

Kaldur bíll? - 30.11.2009

Bíll í lausagangi mengar mun meira en við akstur. Nú þegar kólnað hefur í veðri freistast sumir til að setja bílinn í gang og hita áður en lagt er af stað. Til eru önnur ráð sem eru betri fyrir umhverfið og má þar nefna að klæða sig sérstaklega vel. Lesa meira
 

Góð ráð í jólabakstrinum um geymsluþol og aðferðir - 27.11.2009

Á vef Leiðbeiningastöðvar heimilanna er að finna margan fróðleiksmolann um heimilishald. Þar getur meðal annars að líta hollráð um geymslu góðgætisins sem bakað er fyrir jólin. Lesa meira
 

Áætlanir um bólusetningu vegna inflúensunnar A(H1N1) raskast vegna tafa á afhendingu bóluefnis - 27.11.2009

Fyrirsjáanlegt er að áætlun um bólusetningu almennings gegn inflúensunni A(H1N1) raskast verulega vegna þess að minna berst til landsins af bóluefni en gert var ráð fyrir og afhending dregst. Lesa meira
 

Aðventan á næsta leiti - 26.11.2009

Aðventan hefst næst komandi sunnudag, 29. nóvember. Orðið aðventa er dregið af latnesku orðunum Adventus Domini, sem þýða „koma Drottins“. Lesa meira
 

Tillögur um úrræði fyrir ungt fólk án atvinnu - 26.11.2009

Vinnuhópur sem settur var á fót í september til að fjalla um aðgerðir til að stuðla að virkni atvinnulausra hefur skilað tillögum sínum.

Lesa meira
 

Fimmtungur 65 ára og eldri naut félagslegrar heimaþjónustu sveitarfélaga í fyrra - 25.11.2009

Árið 2008 fengu 7.864 heimili félagslega heimaþjónustu sveitarfélaga og hafði heimilum fjölgað um 238 eða 3,1% frá árinu á undan. Rúmlega þrjú af hverjum fjórum þessara heimila voru heimili aldraðra eða 6.019. Lesa meira
 

Heimilum sem fá fjárhagsaðstoð hjá sveitarfélögum fjölgaði í fyrra - 25.11.2009

Árið 2008 fengu 5.029 heimili fjárhagsaðstoð sveitarfélaga og hafði heimilum sem þáðu slíkar greiðslur fjölgað um 749 eða 17,5% frá árinu áður. Lesa meira
 

Eldvarnaátakið 2009 - 24.11.2009

Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna efnir til eldvarnaátaks um og í aðdraganda aðventu. Slökkviliðsmenn heimsækja átta ára börn í grunnskólum landsins þessa vikuna og fræða börnin og fjölskyldur þeirra um helstu atriði eldvarna. Lesa meira
 

Stökkbreytingar á svínainflúensuveirunni - 24.11.2009

Stökkbreytingum á svínainflúensuveirunni hefur verið lýst á nokkrum stöðum í heiminum þ. á m. í Noregi. Engin ástæða er til að óttast að svínainflúensubóluefnið sem notað er á Íslandi verndi ekki gegn hinum nýju afbrigðum veirunnar.
Lesa meira
 

Greiðslur atvinnuleysistrygginga í desember - 23.11.2009

Vegna fyrirspurna um það hvernig greiðslum atvinnuleysistrygginga verður háttað í desember vill Greiðslustofa kynna eftirfarandi skipulag.

Lesa meira
 

Stór sending af bóluefni væntanleg um helgina - þriðjungur þjóðarinnar ónæmur gagnvart inflúensunni A(H1N1) - 20.11.2009

20.000 skammtar af bóluefni gegn inflúensunni A(H1N1) eru væntanlegir til landsins um helgina og þeim verður dreift strax til heilsugæslustöðva. Bólusetning  almennings ætti því að geta hafist víðast hvar strax eftir helgi, eins og ráð var fyrir gert en nokkur óvissa ríkti um hvort hægt yrði að standa við tímaáætlanir vegna tafa á afhendingu bóluefnis frá framleiðanda ytra. Lesa meira
 

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna tvítugur - 20.11.2009

Í dag eru 20 ár liðin frá því að allsherjarnefnd Sameinuðu þjóðanna samþykkti Samninginn um réttindi barnsins eða Barnasáttmálann.  Flestar þjóðir heims hafa staðfest hann og hefur enginn annar mannréttindasamningur verið staðfestur af jafn mörgum þjóðum.

Lesa meira
 

Ungbarnadauði fátíðastur á Íslandi - 19.11.2009

Hvergi í heiminum var ungbarnadauði fátíðari en á Íslandi árið 2007 eða 1,5 af 1.000 lifandi fæddum börnum. Lesa meira
 

IÐAN fræðslusetur virkjar iðnaðarmenn í atvinnuleit - 16.11.2009

Náms- og starfsráðgjafar IÐUNAR-fræðsluseturs taka nú þátt í að hvetja iðnaðarmenn í atvinnuleit, sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins, til virkni samkvæmt samningi Vinnumálastofnunar, IÐUNAR og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur.
Lesa meira
 

Framlenging lífeyrisgreiðslna - 13.11.2009

Hvað er hægt að gera þegar lífeyrisgreiðslur falla niður vegna sjúkrahúsvistar eða vegna dvalar á hjúkrunar- og dvalarheimilum en lífeyrisþegi þarf að standa við fjárhagslegar skuldbindingar? Lesa meira
 

Útlán hjá Íbúðalánasjóði minnkuðu um tæp 40% milli mánaða - 12.11.2009

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmlega 1,8 milljörðum króna í október. Það sem af er árinu eru útlán helmingi minni en á sama tíma í fyrra.  Lesa meira
 

Börnum og ungmennum verði bannað að nota ljósabekki - 12.11.2009

Geislavarnastofnanir Finnlands, Svíþjóðar, Íslands og Noregs leggja til að 18 ára aldursmark verði sett á notkun ljósabekkja. Lesa meira
 

Metfjöldi umsókna afgreiddur hjá Ráðgjafarstofu í fyrra - 11.11.2009

Aldrei hafa fleiri umsóknir verði afgreiddar á einu ári en í fyrra hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna að því er fram kemur í ársskýrslu stofunnar fyrir árið 2008.

Lesa meira
 

Bóluefni seinkar - 11.11.2009

Seinkun hefur orðið á afhendingu bóluefnis gegn svínainflúensu hingað til lands í þessari viku auk þess sem minna kemur af því en gert hafði verið ráð fyrir. Bólusetningu einstaklinga með undirliggjandi sjúkdóma sem ráðgerð hafði verið í þessari og næstu viku getur því seinkað. Lesa meira
 

Nýr upplýsingavefur fyrir börn og unglinga - 9.11.2009


Í tilefni tvítugs afmælis Barnaheilla hafa samtökin opnað barna- og unglingavefinn heyrumst.is sem gerir börnum og unglingum kleift að koma skoðunum sínum á framfæri. Einnig geta þau sótt stuðning og upplýsingar á sínum eigin forsendum með fullvissu um trúnað.

Lesa meira
 

Almenn bólusetning gegn inflúensu A(H1N1) hefst 23. nóvember - 6.11.2009

Frá og með mánudeginum 16. nóvember geta allir landsmenn pantað tíma á heilsugæslustöðvum fyrir bólusetningu gegn inflúensu A(H1N1) en byrjað verður að bólusetja mánudaginn 23. nóvember. Lesa meira
 

Tilkynnið aukaverkanir af völdum inflúensulyfja - 5.11.2009

Lyfjastofnun hvetur til þess að aukaverkanir af völdun inflúensulyfjanna Tamiflu og Relenza, verði tilkynntar til stofnunarinnar.

Lesa meira
 

Kvenkyns veiðimönnum fjölgar um helming á áratug - 4.11.2009

Hlutfall kvenna í hópi veiðimanna, það er handhafa veiðikorta, hefur hækkað um 50% á áratug eða farið úr tæpum 2% árið 2000 í tæp 3% í ár. Lesa meira
 

Aukin aðstoð á vegum Vinnumálastofnunar - 4.11.2009

Náms- og starfsráðgjafar á vegum fræðslu- og símenntunarmiðstöðva taka nú þátt í að hvetja atvinnuleitendur til virkni samkvæmt samningi Vinnumálastofnunar, Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins um náms- og starfsráðgjöf fyrir atvinnuleitendur og KVASIS - samtaka fræðslu- og símenntunarmiðstöðva. Lesa meira
 

Útlit fyrir að almenn bólusetning við inflúensunni geti hafist fyrr en reiknað var með - 3.11.2009

Horfur eru á að unnt verði að hefja almenna bólusetningu við inflúensunni A(H1N1)v 2009 í síðari hluta nóvember í stað desember þar sem meira berst af bóluefni til landsins næstu daga og vikur en reiknað var með í upphaflegum áætlunum. Lesa meira
 

Kraftur Íslendinga virkjaður í alþjóðlegri athafnaviku - 3.11.2009

Alþjóðleg athafnavika verður haldin á Íslandi dagana 16. - 22. nóvember og á sama tíma í yfir 100 löndum. Henni er sérstaklega ætlað að virkja þjóðina til jákvæðra verka, vekja athygli á mikilvægi frumkvöðlastarfs og gefa Íslendingum tilefni til að horfa björtum augum fram á veginn. Lesa meira
 

Notkun nagladekkja formlega heimil - 2.11.2009

Frá og með 1. nóvember og til og með 15. apríl er ekki bannað samkvæmt reglugerð að aka á negldum hjólbörðum. Lesa meira
 

Óskað eftir athugasemdum um siðareglur embættismanna og ráðherra - 30.10.2009

Nú eru 10 dagar þar til frestur til að skila inn athugasemdum við drög að siðareglum fyrir embættismenn og ráðherra á vef stjórnarráðsins rennur út. Til 9. nóvember gefst öllum kostur á að gera athugasemdir og koma með ábendingar um hvað megi betur fara í drögunum. Lesa meira
 

Næsthæsta viðbúnaðarstig á Landspítala vegna inflúensunnar - 29.10.2009

Viðbúnaður á Landspítala var í dag færður á svokallað virkjunarstig, samkvæmt viðbragðsáætlun spítalans, vegna aukins álags af völdum inflúensufaraldursins. Þetta er næstefsta stig af fjórum sem skilgreint er í áætluninni; efst er neyðarstig. Á „virkjunarstigi“ verða hugsanlega færri sjúklingar lagðir inn en ella og aðgerðum frestað sem unnt er. Lesa meira
 

Rjúpnaveiðar hefjast - 29.10.2009

Rjúpnaveiðitímabilið í ár hefst á morgun föstudaginn 30. október og stendur til sunnudagsins 6. desember. Veiðar eru heimilar föstudaga, laugardaga og sunnudaga á tímabilinu.

Lesa meira
 

Átak gegn einelti - 28.10.2009

Átaki gegn einelti var ýtt úr vör í gær með útgáfu nýs fræðsluheftis fyrir foreldra um einelti og viðamikilli kynningu og viðtölum í fjömiðlum. Heftinu er ætlað að auka þekkingu á einelti og hjálpa foreldrum að öðlast betri skilningi á líðan barna sinna. Lesa meira
 

Svínaflensa - 28.10.2009

Að gefnu tilefni er tekið fram á vef Matvælastofnunar að svínaflensa berst ekki með matvælum og því stafar engin hætta af neyslu svínakjöts þótt flensa greinist í dýrunum. Lesa meira
 

Tvöföld bólusetning við inflúensu af stofni A(H1N1) - 27.10.2009

Lyfjastofnun Evrópu hefur staðfest  að skömmtunarleiðbeiningar vegna bólusetningar við inflúensu af stofni A(H1N1)skuli haldast óbreyttar. Bólusetja skuli tvisvar með að minnsta kosti þriggja vikna millibili. Lesa meira
 

Þjónustuver Ráðgjafarstofu heimilanna flytur - 26.10.2009

Í dag opnaði Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna þjónustuver sitt sem verið hefur í Sóltúni 26 á nýjum stað, Hverfisgötu 6, jarðhæð. Lesa meira
 

Íslenskir unglingar standa sig vel í samanburði við evrópska jafnaldra - 23.10.2009

Dregið hefur úr reykingum íslenskra unglinga og neyslu þeirra bæði á löglegum og ólöglegum vímuefnum. Þetta kemur fram í reglulegri samanburðarrannsókn á vímuefnaneyslu 15-16 ára unglinga í 35 Evrópu löndum. Lesa meira
 

Óskað eftir athugasemdum við fjölmiðlafrumvarp - 23.10.2009

Drög að nýju fjölmiðlafrumvarpi hafa verið lögð fram til kynningar á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins og er óskað eftir athugasemdum við það. Frumvarpið felur í sér að sameinaðar og samræmdar eru reglur sem ná annars vegar til hljóð-og myndmiðla og hins vegar prentmiðla.

Lesa meira
 

Tímapantanir í bólusetningu vegna H1N1 inflúensu - 22.10.2009

Frá og með deginum í dag geta þungaðar konur og þeir sem eru með svokallaða undirliggjandi sjúkdóma haft samband við heilsugæslustöðvar landsins og pantað sér bólusetningu við inflúensunni A(H1N1). Lesa meira
 

Langlífir Íslendingar - 22.10.2009

Íslenskar konur lifa að meðaltali í 83 ár og íslenskir karla í 79,6 ár. Þeir verða elstir kynbræðra sinna á Norðurlöndum og þær næst elstar sinna kynsystra.
Lesa meira
 

Tilkynnið aukaverkanir af völdum inflúensubóluefnis - 21.10.2009

Lyfjastofnun hvetur til þess að aukaverkanir af völdun Pandemrix, bóluefnis gegn H1N1 inflúensu, verði tilkynntar til stofnunarinnar.

Lesa meira
 

Símaþjónusta vegna inflúensu - 20.10.2009

Ef upp koma veikindi sem benda til inflúensu má hringja á dagvinnutíma í heilsugæslustöðina á heimasvæði viðkomandi sjúklings. Eftir dagvinnutíma, frá kl.16:00 til 08:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar, er hægt að hringja ýmist í vaktþjónustu viðkomandi landshluta eða Læknavaktina í síma 1770.

Lesa meira
 

Bagalegur raki - 19.10.2009

Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur gefið út hagnýtar ábendingar um hvernig taka skal á vanda af völdum raka í húsnæði. Lesa meira
 

Bólusetning þungaðra kvenna og sjúklinga í forgangshópum fyrir H1N1 inflúensu hefst í byrjun nóvember - 16.10.2009

Gert er ráð fyrir því að bólusetja alls 75.000 manns til loka nóvembermánaðar, þ.e.a.s. starfsfólk í heilbrigðisþjónustu, starfsmenn í öryggisþjónustu og í lykilhlutverkum af ýmsu tagi í opinberri stjórnsýslu og sjúklinga í skilgreindum forgangshópum. Lesa meira
 

Áhrif efnahagssamdráttar á raforkunotkun - 15.10.2009

Almenn notkun á forgangsraforku hefur dregist mun meira saman á þessu ári en raforkuhópur Orkuspárnefndar gerði ráð fyrir.

Lesa meira
 

Vanrækslugjald fyrirbyggjandi - 9.10.2009

Nær 30% fleiri ökutæki hafa verið færð til skoðunar undanfarið ár en á sama viðmiðunartímabili í fyrra. Leiða má líkur að því að vanrækslugjald sem lagt var á ökutæki sem ekki eru skoðuð á tilsettum tíma hafi sitt að segja. Lesa meira
 

Lífeyrisþegar erlendis - 8.10.2009

Lágt gengi íslensku krónunnar hefur vakið spurningar um afkomu íslenskra lífeyrisþega sem búa erlendis. Upplýsingar úr kerfum Tryggingastofnunar sýna að þrátt fyrir gengisþróunina fjölgar  lífeyrisþegum sem skráðir eru erlendis frá því í fyrra.

Lesa meira
 

Geðheilbrigðisdagurinn 10. október - 8.10.2009

Líkt og undanfarin ár verður geðheilbrigðisdagurinn 10. október hátíðlegur haldinn, að þessu sinni undir yfirskriftinni Öflugri og aðgengilegri geðheilbrigðisþjónusta.

Lesa meira
 

Helmingi minni útlán Íbúðalánasjóðs – á þriðja þúsund umsóknir vegna greiðsluerfiðleika - 7.10.2009

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs hafa minnkað um helming það sem af er þessu ári miðað við sama tíma í fyrra og eru nú 24,4 milljarðar króna. Umsóknum vegna greiðsluerfiðleika fækkaði um 35% milli ársfjórðunga. Lesa meira
 

Notkun heimila og einstaklinga á tölvum og neti 2009 - 7.10.2009

Níu af hverjum tíu íslenskum heimilum er nettengd. Á helmingi heimila er flatskjár og tvö sjónvarstæki eða fleiri. Lesa meira
 

Yfir þúsund rafræn eyðublöð aðgengileg á island.is - 6.10.2009

Vert er að vekja athygli á að hér á vefnum er að finna á annað þúsund eyðublöð sem tilheyra stjórnsýslunni á Íslandi. Hluta þeirra er unnt fylla út rafrænt og senda beint til viðkomandi ráðuneytis, stofnunar og fleiri. Lesa meira
 

Örugg netnotkun barna og unglinga - 5.10.2009

Til að auka öryggi barna og unglinga á netinu hefur ungmennaráði verið komið á fót á vegum SAFT verkefnisins og fræðsluefni fyrir börn með 10 netheilræðum sett saman. Lesa meira
 

Fjölskyldumorgnar á Borgarbókasafninu - 1.10.2009

Á Borgarbókasafni Reykjavíkur er nú efnt til fjölskyldumorgna tvisvar í viku þar sem fjölskyldum með börn á aldrinum 0-6 ára er boðið að koma og eiga góða samverustund. Lesa meira
 

Forvarnardagur í grunnskólum - 30.9.2009

Forvarnardagur 2009 verður haldinn í öllum grunnskólum landsins í dag, 30. september. Dagurinn er helgaður nokkrum heillaráðum sem geta forðað börnum og unglingum frá fíkniefnum, ráðum sem eiga erindi við allar fjölskyldur í landinu. Lesa meira
 

Ísland með þriðju bestu heilbrigðisþjónustuna í Evrópu samkvæmt nýrri athugun - 28.9.2009

Ísland hafnaði í þriðja sæti í samanburði á heilbrigðisþjónustu 33ja Evrópuríkja með 811 stig af 1000 mögulegum. Holland hreppti fyrsta sæti og Danmörk annað. Lesa meira
 

Vilt þú vera með í ráðgjafahópi umboðsmanns barna? - 25.9.2009

Umboðsmaður barna óskar eftir umsóknum frá ungmennum 13 – 17 ára til starfa í ráðgjafahópi sínum. Hlutverk hópsins er að veita umboðsmanni ráðgjöf í málefnum líðandi stundar sem og að koma með athugasemdir um þau mál sem brenna á börnum og ungmennum hverju sinni.
Lesa meira
 

Stefnumót við vísindamenn - 24.9.2009

Efnt verður til Vísindavöku í Listasafni Íslands föstudaginn 25. september kl. 17:00-22:00. Vísindavaka er árlegur viðburður þar sem almenningi gefst kostur á að hitta vísindamenn sem stunda rannsóknir í hinum ýmsu greinum og kynnast viðfangsefnum þeirra. Lesa meira
 

Greiðsluseðlar atvinnuleysisbóta á rafrænu formi - 23.9.2009

Frá og með næstu mánaðarmótum verða greiðsluseðlar atvinnuleysisbóta ekki sendir út með pósti á pappírsformi, heldur aðeins birtir rafrænt á heimasvæði einstaklinga á umsóknarvef Vinnumálastofnunar og hjá Tryggingastofnun undir rafrænar greiðslur. Lesa meira
 

Ókeypis tónleikar í Salnum - 23.9.2009

Í tilefni af tíu ára afmæli Salarins í Kópavogi er boðið upp á sex ókeypis tónleika síðdegis á fimmtudögum í haust. Jónas Ingimundarson fær til sín söngvara í fremstu röð og kynnir íslenskar einsöngsperlur. Lesa meira
 

Heimsfaraldur inflúensu - Farsóttafréttir - 21.9.2009

Líklegt er talið að heimsfaraldur inflúensu (H1N1) nái hámarki í bili hér á landi nú í september, en önnur bylgja geti risið síðar í haust eða vetur. Þetta er mat Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar og kemur fram í Farsóttafréttum Landlæknisembættisins. Lesa meira
 

Breyting á auðkenningu hjá Íbúðalánasjóði - 21.9.2009


Frá og með deginum í dag 21. september þurfa viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs að auðkenna sig með veflykli RSK eða rafrænum skilríkjum til að gera greiðslumat og sækja um lán hjá Íbúðalánasjóði. Þessi breyting er gerð í samstarfi við island.is.

Lesa meira
 

Skotveiðar að hausti og vetri - 17.9.2009

Skotveiðitímabil haustsins er hafið af krafti og því rétt að minna veiðimenn á að gæta ítrustu varúðar og fara að lögum og reglum. Breytingar hafa verið gerðar á fyrirkomulagi rjúpnaveiða á komandi veiðitímabili. Lesa meira
 

Hugum að öryggi barna - 17.9.2009

Starfsemi grunnskóla er nú komin í fullan gang með tilheyrandi umferð. Sjaldan hafa fleiri börn hafið grunnskólanám hér á landi og því er mikil ástæða til að beina athygli að öryggi þeirra og umhverfi. Lesa meira
 

Hollur er heimafenginn baggi - 16.9.2009

Í gegnum tíðina hafa Íslendingar gjarnan viðað að sér alls kyns nauðsynjum á haustin. Þá er aðaluppskerutíminn og tilvalið að taka slátur, tína ber, sulta, frysta og sjóða niður grænmeti og svo framvegis.

Lesa meira
 

Rafræn skilríki - 14.9.2009

Rafræn skilríki eru nú óðum að ryðja sér til rúms í netheimum en með þeim geta notendur auðkennt sig líkt þeir hafi framvísað vegabréfi á netinu. Þau duga bæði til auðkenningar og undirskriftar og koma í stað notendanafns og lykilorðs.

Lesa meira
 

Frístundastarf í Reykjavík í vetur - 10.9.2009

Á vef ÍTR hefur nú verið safnað saman upplýsingum um íþrótta- og tómstundastarf í Reykjavík sem börnum og unglingum 6-18 ára stendur til boða í vetur. Vísað er á um 150 félög, skóla, kirkjur, frístundamiðstöðvar og fleiri sem bjóða þessum aldurshópi upp á slíkt. Lesa meira
 

Vanrækslugjald lagt á vegna óskoðaðra ökutækja og ferðavagna - 7.9.2009

Um næstu mánaðamót verður lagt vanrækslugjald á eigendur óskoðaðra húsbíla, bifhjóla og ferðvagna en til þeirra teljast hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagnar.

Lesa meira
 

Útivistartími barna og unglinga breytist - 1.9.2009

Frá og með 1. september breytist útivistartími barna og unglinga hér á landi. Börn, 12 ára og yngri, mega þá ekki vera á almannafæri eftir klukkan 20 á kvöldin nema í fylgd með fullorðnum. Börn og unglingar á aldrinum 13 til 16 ára, mega ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22, nema þau séu  heimleið frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Lesa meira
 

Aðgengilegar upplýsingar vegna svínainflúensu á vef Landlæknis - 25.8.2009

Staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) veirunnar eða svínainflúensu skipta nú tug þúsundum víða um heim. Hennar var fyrst vart í Mexíkó, en nú hefur hún breiðst til annarra landa og heimsálfa. Einkenni svínainflúensunnar er svipuð einkennum árstíðarbundinnar inflúensu, skyndilegur hiti, særindi í hálsi, vöðvaverkir og einkenni frá öndunarfærum.

Lesa meira
 

Húsin í bænun - ráðuneyti opin almenningi á Menningarnótt - 21.8.2009

Húsakynni forsætisráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðuneytis og utanríkisráðuneytis verða öllum opin á Menningarnótt.

Lesa meira
 

Hús unga fólksins í Austurbæjarbíói - 8.7.2009

Miðstöð fyrir ungt fólk sem vill virkja krafta sína í frjóu og hvetjandi umhverfi hefur verið opnuð í Austurbæjarbíói við Snorrabraut. Þangað er öllum frjálst að koma á sínum eigin forsendum og taka þátt í verkefnum með öðrum í góðu umhverfi.

Lesa meira
 

Frjóofnæmi á sumrin - 5.7.2009

Fjölmargir landsmenn á þjáist af frjóofnæmi yfir sumarmánuðina, júní, júlí og ágúst, en stærsti hópurinn eru börn og ungt fólk á aldrinum 10 til 29 ára. Frjókornatíminn hér á landi er nokkuð breytilegur og háður veðurfari.

Lesa meira
 

Samningur SÞ um réttindi fatlaðs fólks - 16.6.2009

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur gefið út, á íslensku, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks ásamt valfrjálsri bókun við samninginn. Ísland undirritaði samninginn og bókunina sama dag og þau voru tekin til undirritunar eða 30. mars 2007.

Lesa meira
 

Námskeið og frístundir fyrir alla aldurshópa sumarið 2009 - 20.5.2009

Rauði kross Íslands heldur í samstarfi við fleiri aðila utan um upplýsingar fyrir almenning á öllum aldri um frísundir og námskeið sem kosta lítið eða ekki neitt. Upplýsingarnar er að finna á vefnum Hvað er í boði?

Lesa meira
 

Innritun í Skólagarða á höfuðborgarsvæðinu að ljúka - 19.5.2009

Innritun 6 til 13 ára barna í Skólagarða á höfuðborgarsvæðinu lýkur á allra næstu dögum. Starfsemi í görðunum hefst í byrjun júní og stendur til ágústloka. Skólagarðarnir hafa þann megintilgang að kenna börnum umgengni við náttúruna og ræktun matjurta undir handleiðslu leiðbeinenda. Allir fá úthlutað garði, fræi, útsæði og grænmetisplöntum til ræktunar og fara fyrstu tvær vikurnar í gróðursetningu og sáningu.

Lesa meira
 

Almenn innritun í framhaldsskóla - 15.5.2009

Búið er að opna fyrir almenna innritun í framhaldsskóla landsins. Sú breyting verður nú á innritunarferlinu að samræmd próf í lok grunnskóla hafa verið lögð niður. Framhaldsskólar innrita nú nemendur einungis á grundvelli vitnisburðar viðkomandi grunnskóla.  Framhaldsskólar skilgreina sjálfir í samráði við menntamálaráðuneytið inntökuskilyrði á einstakar námsbrautir. Inntökuskilyrði eru birt í skólanámskrá hvers framhaldsskóla.

Lesa meira
 

Ókeypis tannlæknaþjónusta fyrir börn og unglinga - 8.5.2009

Tannlæknadeild Háskóla Íslands og Tannlæknafélag Íslands bjóða, laugardaginn 23. maí, barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör upp á ókeypis tannlæknaþjónustu í fjórða sinn.

Lesa meira
 

Innritun fatlaðra nemenda í framhaldsskóla - 5.5.2009

Ákveðið hefur verið að innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fari fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Þetta er gert til þess að skólarnir fái meira svigrúm til að vinna úr umsóknum og undirbúa komu viðkomandi nemenda.

Lesa meira
 

Eldra efni


Netskil Evrópsk viðskiptatækifæri




Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica