Fasteignaeigendum býðst nú að skoða álagningarseðla fasteignagjalda 2012 á Ísland.is
Áramótin nálgast og þá er nauðsynlegt að muna sérstaklega eftir dýrunum enda mörg hver hrædd við sprengingar og læti sem fylgja flugeldum
Á Þorláksmessu og aðfangadag milli klukkan 9 og 15 verða stafsmenn Kirkjugarða Reykjvíkurprófastsdæmis fólki til aðstoðar í Fossvogskirkjugarði, Gufuneskirkjugarði, Kópavogskirkjugarði og Hólavallagarði.
Nú styttist óðum í að jólasveinarnir tínist til byggða. Fyrir þá sem farnir eru að ryðga í fræðunum er ekki úr vegi að rifja upp hverjir þeir eru og hvenær þeir koma.
Lesa meiraLífeyrisþegar geta nú skoðað og lagað tillögu Tryggingastofnunar að tekjuáætlun 2012 inná Mínum síðum á vef Tryggingastonfunar.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að greiða atvinnuleitendum desemberuppbót. Óskert desemberuppbót til þeirra sem eru að fullu tryggðir innan atvinnuleysistryggingakerfisins verður 63.457 krónur.
Rjúpnaveiðitímabilið í ár er hafið og stendur til sunnudagsins 27. nóvember. Vakin er athygli á því að veiðidagar í ár eru 9.
Á árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi hættir úthlutunum á styrkjum til ýmissa verkefna til eins og verið hefur.
Álagning opinberra gjalda á einstaklinga og þá sem stunda atvinnurekstur í eigin nafni fyrir árið 2011 liggur fyrir.
Lesa meiraUmsóknarfrestur um þátttöku í átakinu Nám er vinnandi vegur rennur út 2. ágúst næstkomandi.
Frá 1. maí til 26. ágúst verður starfrækt tannlæknaþjónusta fyrir börn af öllu landinu á tannlæknadeild Háskóla Íslands í Læknagarði í Reykjavík. Þjónustan er ætluð börnum tekjulágra, yngri en 18 ára sem eru sjúkratryggð.
Velferðarráðuneyti og Vinnumálastofnun standa í sumar fyrir átaksverkefni til að fjölga störfum fyrir námsmenn og atvinnuleitendur.
Á vefnum skattur.is er búið að opna fyrir vefframtal einstaklinga 2011. Frestur til að skila skattframtali rennur út 23. mars.
Lesa meiraÍsland.is, upplýsinga- og þjónustuveita hins opinbera, fluttist frá forsætisráðuneytinu til Þjóðskrár Íslands þriðjudaginn 11. janúar 2011.
Hagstofa Íslands hefur nú birt dánarmein fyrir árið 2009. Gögnin byggja á dánarvottorðum allra einstaklinga sem létust á árinu 2009 og áttu lögheimili á Íslandi við andlát.
Lesa meiraFrá og með 1. september mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00 og 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00.
Lesa meiraMesta umferðarhelgi sumarsins var 16.-18. júlí samkvæmt talningu Vegagerðarinnar. Meðalhelgarumferð í sumar var 2,3% minni en í fyrra en 0,9% meiri en í hitteðfyrra.
Lesa meiraMennta- og menningarmálráðuneytið hefur gefið út Kynungabók, upplýsingarit fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja.
Lesa meiraPóst- og fjarskiptastofnun opnaði vefinn Reiknivél PFS í dag. Tilgangur reiknivélarinnar er að auðvelda neytendum að átta sig á flóknum fjarskiptamarkaði og bera saman verð á þjónustuleiðum fjarskiptafyrirtækja fyrir heimasíma og farsíma og ADSL nettengingar.
Fjölmargir landsmenn á þjáist af frjóofnæmi yfir sumarmánuðina, júní, júlí og ágúst, en stærsti hópurinn eru börn og ungt fólk á aldrinum 10 til 29 ára.
Lesa meiraLýðheilsustöð ítrekar að þrátt fyrir niðurstöður nýrrar rannóknar um tiltölulega litla þýðingu grænmetis- og ávaxtaáts til varnar krabbameini sé full ástæða til að borða fimm skammta af slíku á dag.
Lesa meiraÍ fyrra voru 15 þúsund einstaklingar með örorkumat í gildi hjá Tryggingastofnun, þ.e. með hærra örorkustigsmat eða yfir 75% örorku.
Lesa meiraÁhrif eldgossins í Eyjafjallajökli á flugumferð veldur því að margir flugfarþegar komast ekki til áfangastaðar síns á réttum tíma eða jafnvel alls ekki. Reglugerð um réttindi flugfarþega getur að líta hér.
Lesa meiraUpplýsingavefir sem komið geta að gagni vegna náttúruhamfara.
Lesa meiraUpplýsingavefur um sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí næstkomandi hefur verið opnaður. Á vefnum, www.kosning.is, er að finna fróðleik og hagnýtar upplýsingar er lúta að framkvæmd kosninganna. Meðal annars upplýsingar fyrir kjósendur um kosningarrétt, kjörgengi og utankjörfundaratkvæðagreiðslu.
Lesa meiraTryggingastofnun býður erfingjum dánarbúa að framkvæma bráðabirgðauppgjör vegna bótaréttar. Við einkaskipti á dánarbúum öðlast erfingjar réttindi búsins og gangast í ábyrgð fyrir skuldbindingum þess. Tilgangur bráðabirgðauppgjörs er að aðstandendur hins látna geti betur gert sér grein fyrir skuldastöðu hins látna hjá Tryggingastofnun og verið meðvitaðir um hvort von sé á kröfu eða inneign við framkvæmd uppgjörs.
Lesa meiraÓðum styttist í páskana og því ekki úr vegi að rifja upp það helsta sem á þá dagana dreif á sínum tíma samkvæmt guðspjöllunum.
Lesa meiraÍ fyrra fengu 728 einstaklingar íslenskan ríkisborgararétt en 914 árið áður. Aldrei höfðu fleiri fengið íslenskan ríkisborgararétt en þá. Til samanburðar má geta þess að árið 1991 fékk 161 einstaklingur íslenskan ríkisborgararétt en þeim hefur fjölgað jafnt og þétt síðan.
Átak sem beinist að fermingarbörnum og forráðamönnum þeirra þar sem bent er á hættuna sem fylgir því að ungt fólk fari í ljósabekki stendur nú yfir. Vakin er athygli á því að börn og unglingar séu næmari en aðrir fyrir skaðlegum áhrifum geislunar frá ljósabekkjum og sól.
Lesa meiraGagnagrunnur Byggðastofnunar um íbúaþróun hefur verið uppfærður með tölum frá 1. desember 2009. Þar er hægt að skoða á myndrænan hátt íbúaþróun áranna 1997-2009 eftir kyni og aldri í skráðum sveitarfélögum 1. desember 2009, einnig er hægt að skoða ákveðin landsvæði.
Lesa meiraLíkt og aðrar stofnanir og ráðuneyti leitar Landgræðslan allra leiða til að spara og hagræða í rekstri. Meðal 70 sparnaðarhugmynda starfsmanna laut ein að því að draga úr rýrnun á landgræðslufræi sem mörg músin er mjög sólgin í. Til starfans var vitaskuld fenginn veiðiköttur.
Lesa meiraVerkefnið Ungt fólk til athafna hefur fengið góðar viðtökur hjá ungmennum. Um 300-400 hafa fengið kynningu á vegum Vinnumálastofnunar og þurfa allir í kjölfarið að velja að minnsta kosti þrennt sem vekur áhuga.
Þér ber að hafa samband við barnaverndarnefnd ef þú hefur ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, það verði fyrir áreitni eða ofbeldi, að heilsu þess og þroska sé stefnt í alvarlega hættu. Ekki gera ráð fyrir að einhver annar sé búinn að tilkynna.
112-dagurinn verður haldinn víða um land næst komandi fimmtudag 11. febrúar. Þema dagsins er þátttaka venjulegs fólks á vettvangi slysa, veikinda og áfalla.
Lesa meiraUm áramót tók gildi breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar. Þær snúa meðal annars að sjálfstætt starfandi einstaklingum, námsmönnum, tilfallandi vinnu og fleiru. Vinnumálastofnun bendir meðal annars á að þeir sem boðaðir eru til fundar bréfleiðis fá tilkynningu senda á lögheimili sitt.
Lesa meiraFlokkun sjúkratryggðra breyttist um áramót og grunnupphæðir vegna heilbrigðisþjónustu og afsláttarviðmið hafa almennt hækkað nema vegna barna.
Lesa meiraNú er hægt að sækja um greiðslur úr nýjum bótaflokki hjá Tryggingastofnun sem er ætlað að tryggja lifandi líffæragjöfum tímabundna fjárhagsaðstoð á meðan þeir geta hvorki stundað vinnu né nám vegna líffæragjafar.
Lesa meiraFyrir jól voru samþykkt lög um breytingar á lögum um almannatryggingar, lögum um félagslega aðstoð og lögum um málefni aldraðra sem taka gildi við upphaf nýs árs.
Lesa meiraNú styttist óðum í að jólasveinarnir tínist til byggða. Fyrir þá sem farnir eru að ryðga í fræðunum er ekki úr vega að rifja upp hverjir þeir eru og hvenær þeir koma.
Lesa meiraFerðum Íslendinga til útlanda um Leifsstöð fjölgaði um 15,5% í nýliðnum nóvember miðað við sama mánuð í fyrra. Í nóvember árið 2007 fóru Íslendingar í tæplega 110% fleiri ferðir en nú.
Lesa meiraNú geta lífeyrisþegar skoðað og lagað tillögu Tryggingastofnunar að tekjuáætlun 2010 inná þjónustuvefnum tryggur.is.
Lesa meiraFyrir skömmu fór vefurinn 6h.is í loftið. Markmiðið með honum er að útvega áreiðanlegar upplýsingar frá fagfólki um heilsutengda þætti fyrir börn, unglinga og foreldra.
Lesa meiraVinnuhópur sem settur var á fót í september til að fjalla um aðgerðir til að stuðla að virkni atvinnulausra hefur skilað tillögum sínum.
Lesa meiraVegna fyrirspurna um það hvernig greiðslum atvinnuleysistrygginga verður háttað í desember vill Greiðslustofa kynna eftirfarandi skipulag.
Lesa meiraÍ dag eru 20 ár liðin frá því að allsherjarnefnd Sameinuðu þjóðanna samþykkti Samninginn um réttindi barnsins eða Barnasáttmálann. Flestar þjóðir heims hafa staðfest hann og hefur enginn annar mannréttindasamningur verið staðfestur af jafn mörgum þjóðum.
Lesa meiraAldrei hafa fleiri umsóknir verði afgreiddar á einu ári en í fyrra hjá Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna að því er fram kemur í ársskýrslu stofunnar fyrir árið 2008.
Lesa meiraÍ tilefni tvítugs afmælis Barnaheilla hafa samtökin opnað barna- og unglingavefinn heyrumst.is sem gerir börnum og unglingum kleift að koma skoðunum sínum á framfæri. Einnig geta þau sótt stuðning og upplýsingar á sínum eigin forsendum með fullvissu um trúnað.
Lesa meiraLyfjastofnun hvetur til þess að aukaverkanir af völdun inflúensulyfjanna Tamiflu og Relenza, verði tilkynntar til stofnunarinnar.
Lesa meiraRjúpnaveiðitímabilið í ár hefst á morgun föstudaginn 30. október og stendur til sunnudagsins 6. desember. Veiðar eru heimilar föstudaga, laugardaga og sunnudaga á tímabilinu.
Lesa meiraDrög að nýju fjölmiðlafrumvarpi hafa verið lögð fram til kynningar á vef mennta- og menningarmálaráðuneytisins og er óskað eftir athugasemdum við það. Frumvarpið felur í sér að sameinaðar og samræmdar eru reglur sem ná annars vegar til hljóð-og myndmiðla og hins vegar prentmiðla.
Lesa meiraLyfjastofnun hvetur til þess að aukaverkanir af völdun Pandemrix, bóluefnis gegn H1N1 inflúensu, verði tilkynntar til stofnunarinnar.
Lesa meiraEf upp koma veikindi sem benda til inflúensu má hringja á dagvinnutíma í heilsugæslustöðina á heimasvæði viðkomandi sjúklings. Eftir dagvinnutíma, frá kl.16:00 til 08:00 virka daga og allan sólarhringinn um helgar, er hægt að hringja ýmist í vaktþjónustu viðkomandi landshluta eða Læknavaktina í síma 1770.
Lesa meiraAlmenn notkun á forgangsraforku hefur dregist mun meira saman á þessu ári en raforkuhópur Orkuspárnefndar gerði ráð fyrir.
Lesa meiraLágt gengi íslensku krónunnar hefur vakið spurningar um afkomu íslenskra lífeyrisþega sem búa erlendis. Upplýsingar úr kerfum Tryggingastofnunar sýna að þrátt fyrir gengisþróunina fjölgar lífeyrisþegum sem skráðir eru erlendis frá því í fyrra.
Lesa meiraLíkt og undanfarin ár verður geðheilbrigðisdagurinn 10. október hátíðlegur haldinn, að þessu sinni undir yfirskriftinni Öflugri og aðgengilegri geðheilbrigðisþjónusta.
Lesa meiraFrá og með deginum í dag 21. september þurfa viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs að auðkenna sig með veflykli RSK eða rafrænum skilríkjum til að gera greiðslumat og sækja um lán hjá Íbúðalánasjóði. Þessi breyting er gerð í samstarfi við island.is.
Lesa meiraÍ gegnum tíðina hafa Íslendingar gjarnan viðað að sér alls kyns nauðsynjum á haustin. Þá er aðaluppskerutíminn og tilvalið að taka slátur, tína ber, sulta, frysta og sjóða niður grænmeti og svo framvegis.
Lesa meiraRafræn skilríki eru nú óðum að ryðja sér til rúms í netheimum en með þeim geta notendur auðkennt sig líkt þeir hafi framvísað vegabréfi á netinu. Þau duga bæði til auðkenningar og undirskriftar og koma í stað notendanafns og lykilorðs.
Lesa meiraUm næstu mánaðamót verður lagt vanrækslugjald á eigendur óskoðaðra húsbíla, bifhjóla og ferðvagna en til þeirra teljast hjólhýsi, fellihýsi og tjaldvagnar.
Lesa meiraStaðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) veirunnar eða svínainflúensu skipta nú tug þúsundum víða um heim. Hennar var fyrst vart í Mexíkó, en nú hefur hún breiðst til annarra landa og heimsálfa. Einkenni svínainflúensunnar er svipuð einkennum árstíðarbundinnar inflúensu, skyndilegur hiti, særindi í hálsi, vöðvaverkir og einkenni frá öndunarfærum.
Lesa meiraHúsakynni forsætisráðuneytis, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðuneytis og utanríkisráðuneytis verða öllum opin á Menningarnótt.
Lesa meiraMiðstöð fyrir ungt fólk sem vill virkja krafta sína í frjóu og hvetjandi umhverfi hefur verið opnuð í Austurbæjarbíói við Snorrabraut. Þangað er öllum frjálst að koma á sínum eigin forsendum og taka þátt í verkefnum með öðrum í góðu umhverfi.
Lesa meiraFjölmargir landsmenn á þjáist af frjóofnæmi yfir sumarmánuðina, júní, júlí og ágúst, en stærsti hópurinn eru börn og ungt fólk á aldrinum 10 til 29 ára. Frjókornatíminn hér á landi er nokkuð breytilegur og háður veðurfari.
Lesa meiraFélags- og tryggingamálaráðuneytið hefur gefið út, á íslensku, samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks ásamt valfrjálsri bókun við samninginn. Ísland undirritaði samninginn og bókunina sama dag og þau voru tekin til undirritunar eða 30. mars 2007.
Rauði kross Íslands heldur í samstarfi við fleiri aðila utan um upplýsingar fyrir almenning á öllum aldri um frísundir og námskeið sem kosta lítið eða ekki neitt. Upplýsingarnar er að finna á vefnum Hvað er í boði?
Lesa meiraInnritun 6 til 13 ára barna í Skólagarða á höfuðborgarsvæðinu lýkur á allra næstu dögum. Starfsemi í görðunum hefst í byrjun júní og stendur til ágústloka. Skólagarðarnir hafa þann megintilgang að kenna börnum umgengni við náttúruna og ræktun matjurta undir handleiðslu leiðbeinenda. Allir fá úthlutað garði, fræi, útsæði og grænmetisplöntum til ræktunar og fara fyrstu tvær vikurnar í gróðursetningu og sáningu.
Lesa meiraBúið er að opna fyrir almenna innritun í framhaldsskóla landsins. Sú breyting verður nú á innritunarferlinu að samræmd próf í lok grunnskóla hafa verið lögð niður. Framhaldsskólar innrita nú nemendur einungis á grundvelli vitnisburðar viðkomandi grunnskóla. Framhaldsskólar skilgreina sjálfir í samráði við menntamálaráðuneytið inntökuskilyrði á einstakar námsbrautir. Inntökuskilyrði eru birt í skólanámskrá hvers framhaldsskóla.
Lesa meiraTannlæknadeild Háskóla Íslands og Tannlæknafélag Íslands bjóða, laugardaginn 23. maí, barnafjölskyldum sem búa við kröpp kjör upp á ókeypis tannlæknaþjónustu í fjórða sinn.
Lesa meiraÁkveðið hefur verið að innritun fatlaðra nemenda, sem óska eftir skólavist á starfsbrautum framhaldsskóla, fari fram fyrr en innritun almennt í framhaldsskóla. Þetta er gert til þess að skólarnir fái meira svigrúm til að vinna úr umsóknum og undirbúa komu viðkomandi nemenda.
Lesa meira