Slökkviðliðsmaður
...allt á einum stað

Helstu mál

Útivistartími barna og unglinga styttist

Frá og með 1. september mega 12 ára börn og yngri vera úti til klukkan 20.00 og 13 til 16 ára unglingar mega vera úti til klukkan 22.00. Lesa meira
 

Ný norræn upplýsingasíða um notendastýrða persónulega aðstoð

Norræna upplýsingasíðu um notendastýrða persónulega aðstoð fyrir fatlaða hefur verið tekin í gagnið. Allar Norðurlandaþjóðirnar stóðu að verkefninu undir stjórn Íslendinga. Lesa meira
 

Minni helgarumferð í sumar en í fyrra

Mesta umferðarhelgi sumarsins var 16.-18. júlí samkvæmt talningu Vegagerðarinnar.  Meðalhelgarumferð í sumar var 2,3% minni en í fyrra en 0,9% meiri en í hitteðfyrra.

Lesa meira
 

Kynungabók um jafnrétti kynja komin út

Mennta- og menningarmálráðuneytið hefur gefið út Kynungabók, upplýsingarit fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja.

Lesa meira
 

Örorkustyrkur

Þeir sem eru á aldrinum 18-67 ára geta átt rétt á örorkustyrk. Skilyrði er að umsækjandi hafi verið búsettur á Íslandi a.m.k. þrjú síðustu árin áður en umsókn er lögð fram eða í sex mánuði ef starfsorka var óskert þegar hann tók hér búsetu. Einnig þarf að liggja fyrir mat tryggingalæknis um að umsækjandi hafi misst a.m.k. 50% af starfsorku sinni en nái ekki 75% starfsorkumissi. Lesa meira
 

Endurútreikningur atvinnuleysisbóta vegna greiðslna úr séreignarlífeyrissjóðum

Ef þú ert 60 ára eða eldri og hefur fengið greiðslur úr séreignarlífeyrissjóði á sama tíma og þú varst á atvinnuleysisskrá frá 1. mars 2009 og atvinnuleysisbætur þínar hafa verið skertar af þeim sökum, gætir þú átt rétt á endurgreiðslu úr Atvinnuleysistryggingasjóði sem nemur fjárhæð skerðingar. Lesa meira
 

Öryggi barna á leið til skóla

Nú er stutt í að skólar hefji göngu sína og margt sem hafa þarf í huga varðandi öryggi þeirra barna sem eru að hefja skólagöngu. Umferðarstofa minnir á nokkur atriði sem vert er að hafa í huga varðandi öryggi barnsins á leið til og frá skóla. Lesa meira
 

Matarúthlutun Hjálparstarfsins hefst aftur

Matarúthlutun Hjálparstarfs kirkjunnar hefst aftur eftir sumarlokun í dag, 18. ágúst frá klukkan 12-17. Lesa meira
 



Rafræn skil Hvernig virka rafræn skil


Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica