Hlutafélög
Hlutafélög
Hlutafélög geta verið þrenns konar. Hlutafé í hlutafélagi (hf) skiptist í tvo eða fleiri hluti, einkahlutafélag (ehf) getur verið í eigu eins manns eða fleiri en opinbert hlutafélag (ohf) er ætíð í eigu hins opinbera, beint eða óbeint.
Yfirlit
Einkahlutafélag/ hlutafélag/ opinbert hlutafélag
- Í hlutafélagi ber enginn félagsmanna persónulega ábyrgð á heildarskuldbindingum heldur er fjárhagsleg ábyrgð þeirra takmörkuð við það hlutafé sem þeir leggja fram.
- Hlutafélagaformið hentar fyrst og fremst stærri og viðameiri rekstri sem ætlað er að skrá í kauphöll.
Félagaréttur á vef efnahags- og viðskiptaráðuneytis - Í einkahlutafélagi er ekkert hámark á hlutafé eða fjölda hluthafa og hentar því félagsformið jafnt stærri sem minni fyrirtækjum. Eigandi ber beina og ótakmarkaða ábyrgð sem er að öllu leyti sambærileg persónulegum skuldbindingum.
Stofnun og skráning einkahlutafélags (ehf) eins aðila, rsk.is - Opinbert hlutafélag er að öllu leyti í eigu hins opinbera, beint eða óbeint. Hluthafar eru einn eða fleiri.
- Hlutafélög, einkahlutafélög og opinber hlutafélög eru bókhaldsskyld og ber að halda tvíhliða bókhald.
Bókhald og tekjuskráning, rsk.is - Einkahlutafélag, hlutafélag og opinbert hlutafélag verður að skrá innan ákveðins tíma hjá hlutafélagaskrá. Óskráð félag getur hvorki öðlast réttindi né tekið á sig skyldur.
Eyðublöð
Umsóknareyðublöð vegna fyrirtækja- og hlutafélagaskrár
Umsóknareyðublöð vegna staðgreiðslu, tryggingargjalds og fjármagnstekna
- Fyrirtæki sem greiðir laun þarf að skrá á launagreiðendaskrá staðgreiðslu hjá ríkisskattstjóra eða skattstjóra viðkomandi umdæmis.
Skattyfirvöld á landinu - Forsvarsmönnum einkahlutafélags ber að reikna endurgjald, samanber viðmiðunarreglur um reiknað endurgjald.
Staðgreiðsla og reiknað endurgjald, rsk.is - Við stofnun og skráningu einkahlutafélags eins aðila, einkahlutafélags fleiri en eins aðila, hlutafélags og opinbers hlutafélags þarf að skila inn stofnskrá/stofnsamningi, samþykktum og stofngerð/stofnfundargerð til ríkisskattstjóra.
Stofnun og skráning einkahlutafélags (ehf) eins aðila, rsk.is
Stofnun og skráning hlutafélags (hf), rsk.is
Vert að skoða
- Almenn þjónusta hlutafélaga- og fyrirtækjaskrár rsk.is
- Félagaréttur á vef efnahags- og viðskiptaráðuneytis
- Lögbirtingablaðið
- Stofnun fyrirtækja - Formreglur, réttindi og skyldur

