Hlutafélög
Hlutafélög
Hlutafélög geta verið þrenns konar. Hlutafé í hlutafélagi (hf) skiptist í tvo eða fleiri hluti, einkahlutafélag (ehf) getur verið í eigu eins manns eða fleiri en opinbert hlutafélag (ohf) er ætíð í eigu hins opinbera, beint eða óbeint.
Yfirlit
Einkahlutafélag/ hlutafélag/ opinbert hlutafélag
- Í hlutafélagi ber enginn félagsmanna persónulega ábyrgð á heildarskuldbindingum heldur er fjárhagsleg ábyrgð þeirra takmörkuð við það hlutafé sem þeir leggja fram.
- Hlutafélagaformið hentar fyrst og fremst stærri og viðameiri rekstri sem ætlað er að skrá í kauphöll.
Félagaréttur á vef efnahags- og viðskiptaráðuneytis - Í einkahlutafélagi er ekkert hámark á hlutafé eða fjölda hluthafa og hentar því félagsformið jafnt stærri sem minni fyrirtækjum. Enginn félagsmanna ber persónulega ábyrgð á heildarskuldbindingum félagsins.
Stofnun og skráning einkahlutafélags (ehf) eins aðila, rsk.is - Opinbert hlutafélag er að öllu leyti í eigu hins opinbera, beint eða óbeint. Hluthafar eru einn eða fleiri.
- Hlutafélög, einkahlutafélög og opinber hlutafélög eru bókhaldsskyld og ber að halda tvíhliða bókhald.
Bókhald og tekjuskráning, rsk.is - Einkahlutafélag, hlutafélag og opinbert hlutafélag verður að skrá innan ákveðins tíma hjá hlutafélagaskrá. Óskráð félag getur hvorki öðlast réttindi né tekið á sig skyldur.
Eyðublöð
Umsóknareyðublöð vegna fyrirtækja- og hlutafélagaskrár
Umsóknareyðublöð vegna staðgreiðslu, tryggingargjalds og fjármagnstekna
- Fyrirtæki sem greiðir laun þarf að skrá á launagreiðendaskrá staðgreiðslu hjá ríkisskattstjóra eða skattstjóra viðkomandi umdæmis.
Skattyfirvöld á landinu - Forsvarsmönnum einkahlutafélags ber að reikna endurgjald, samanber viðmiðunarreglur um reiknað endurgjald.
Staðgreiðsla og reiknað endurgjald, rsk.is - Við stofnun og skráningu einkahlutafélags eins aðila, einkahlutafélags fleiri en eins aðila, hlutafélags og opinbers hlutafélags þarf að skila inn stofnskrá/stofnsamningi, samþykktum og stofngerð/stofnfundargerð til ríkisskattstjóra.
Stofnun og skráning einkahlutafélags (ehf) eins aðila, rsk.is
Stofnun og skráning hlutafélags (hf), rsk.is
Vert að skoða
- Almenn þjónusta hlutafélaga- og fyrirtækjaskrár rsk.is
- Félagaréttur á vef efnahags- og viðskiptaráðuneytis
- Lögbirtingablaðið

Mittsvæði
