Einyrkjar

Einyrkjar

Einyrkjar/verktakar eru sjálfstætt starfandi atvinnurekendur en ekki launamenn. Einstaklingsfyrirtæki er fyrirtæki sem einstaklingur á og rekur á eigin kennitölu.

Einyrkjar/verktakar

  • Einyrkjar/verktakar njóta hvorki réttar til launa frá verkkaupa, til dæmis í veikinda- og slysatilfellum, né mótframlags í lífeyrissjóði, slysatrygginga eða orlofsréttar.
  • Einyrkjar/verktakar verða sjálfir að standa skil á ýmsum launatengdum og rekstrartengdum sköttum og gjöldum samkvæmt lögum. Þá er þeim sem stunda atvinnurekstur og öllum launþegum skylt að eiga aðild að lífeyrissjóði frá 16 ára til 70 ára aldurs.
  • Mikill munur er á stöðu verktaka og launþega gagnvart atvinnurekanda sínum, eða verkkaupa. Við gjaldþrot verkkaupa eiga verktakar til dæmis ekki rétt á greiðslum úr Ábyrgðasjóði launa.
  • Einyrkjar/verktakar fá atvinnuleysisbætur að uppfylltum vissum skilyrðum.

Landssamtök lífeyrissjóða
Lán til landsbyggðarfyrirtækja á vef Byggðastofnunar

Skattar og gjöld, einstaklingar, rsk.is
Skattar og gjöld, rekstur og félög, rsk.is
Styrkir og stuðningsverkefni Impru á vef Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands

Tollstjórinn í Reykjavík, almennar upplýsingar fyrir einstaklinga
Tryggingasjóður sjálfstætt starfandi einstaklinga á vef Vinnumálastofnunar

Eyðublöð:
Umsóknareyðublöð vegna fyrirtækja- og hlutafélagaskrár
Umsóknareyðublöð vegna staðgreiðslu, tryggingargjalds og fjármagnstekna


Efst á síðu

Einstaklingsfyrirtæki

  • Ábyrgð einstaklings á skuldbindingum einstaklingsfyrirtækis er bein og ótakmörkuð og að öllu leyti sambærileg öðrum persónulegum skuldbindingum.
  • Lagaumhverfi einstaklingsfyrirtækis er einfalt, sjálfstæði eigenda mikið og stofnkostnaður oft lítill.
  • Fyrirtæki einstaklings á að bera fullt nafn hans en skammstafa má skírnarnafn. Einstaklingsfyrirtæki þarf að skrá í fyrirtækjaskrá.
    Almenn þjónusta fyrirtækja og hlutafélagaskrár rsk.is
  • Ef einstaklingsfyrirtæki er undir öðru nafni en eigandans þarf að skrá fyrirtækið í firmaskrá hjá sýslumanni viðkomandi umdæmis.
    Upplýsingar um firmaskráningu á vef sýslumanna
  • Einstaklingsfyrirtæki sem greiðir laun þarf að skrá á launagreiðendaskrá staðgreiðslu skattstjóra viðkomandi umdæmis.
    Skattayfirvöld
  • Laun manns sem stundar eigin atvinnurekstur kallast reiknað endurgjald og við ákvörðun á fjárhæð skal fara eftir viðmiðunarreglum um reiknað endurgjald. Standa þarf skil á staðgreiðslu skatta af reiknuðu endurgjaldi mánaðarlega. Ef maki og börn starfa við atvinnnureksturinn þarf einnig að reikna þeim endurgjald.
  • Virðisaukaskattur er vörsluskattur og almennur neysluskattur. Rekstaraðilum ber að innheimta og skila virðisaukaskatti af allri sölu á vörum og þjónustu nema hún sé sérstaklega undanþegin í lögum. Í gildi eru tvö virðisaukaskattsþrep.


Skattar á vöru og þjónustu á island.is


Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein



Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica