Kjörfjölskyldur
Kjörfjölskyldur
Kjörfjölskyldur eru fjölskyldur þar sem barn eða börn hafa verið ættleidd.
Yfirlit
Kjörfjölskyldur
- Almenna reglan er að hjón sem hafa verið í samfelldri sambúð í þrjú ár eða par sem hefur verið í óvígðri sambúð í minnsta kosti fimm ár geta ættleitt barn.
- Sé kjörbarn yngra en 8 ára við ættleiðingu öðlast kjörforeldrar rétt á fæðingar- og foreldraorlofi þegar barnið kemur inn á heimilið.
- Kjörforeldrum ber að segja kjörbörnum sínum frá ættleiðingu þegar þau hafa þroska til og að jafnaði ekki síðar en við 6 ára aldur barns.
- Við 18 ára aldur hefur kjörbarnið rétt á að fá allar þær upplýsingar sem tiltækar eru um hverjir séu kynforeldrar þess eða fyrri kjörforeldrar. Upplýsingarnar fást hjá dómsmála- og mannréttindaráðuneyti.
- Kjörforeldrar eiga rétt á að fá stuðning hjá viðkomandi barnaverndarnefnd áður en þeir upplýsa kjörbarn sitt um ættleiðingu.
Barnaverndarnefndir í sveitarfélögum - Við ættleiðingu öðlast kjörbarn sömu réttarstöðu gagnvart kjörforeldrum, ættmennum þeirra og þeim sem eru í kjörsifjum við þá eins og væri það eigið barn kjörforeldra, nema lög mæli annan veg.
- Frá sama tíma falla niður lagatengsl barnsins við kynforeldra þess, önnur ættmenni og þá sem eru í kjörsifjum við þá, nema lög kveði á um annað.
Um ættleiðingar á vef dómsmála- og mannréttindaráðuneytis

