Eitt foreldri

Eitt foreldri

Fjölskylda þar sem maður eða kona býr með barni sínu eða börnum er nefnd einforeldrisfjölskylda. Stundum er fjölskylduformið tímabundið.

Yfirlit

Eitt foreldri

  • Mæðralaun/feðralaun er heimilt að greiða einstæðum foreldrum, búsettum hér á landi sem hafa á framfæri tvö börn eða fleiri undir 18 ára aldri.
    Um mæðralaun/feðralaun á vef Tryggingastofnunar ríkisins
  • Einstæðir foreldrar og námsmenn geta sótt um niðurgreiðslu daggæslu- og leikskólagjalda. Í flestum sveitarfélögum þurfa einstæðir foreldrar að skila inn vottorði um hjúskaparstöðu og búsetuvottorði.
  • Námsmenn þurfa að skila inn vottorði skóla um fullt nám og skal vottorðið endurnýjað á hverri önn. Nánari upplýsingar um niðurgeiðslur fást á vefjum sveitarfélaga.
    Sveitarfélög á landinu
  • Barnalífeyrir er greiddur með börnum yngri en 18 ára ef annað foreldra er látið eða nýtur örorku- eða endurhæfingarlífeyris. Tvöfaldur barnalífeyrir er greiddur fyrir hvert barn ef báðir foreldrar eru látnir eða eru örorkulífeyrisþegar. Þá er greiddur barnalífeyri með ungmenni 18 til 20 ára vegna náms eða starfsþjálfunar.
    Um barnalífeyri á vef TR
  • Hjá fjölskyldu- og félagsþjónustu sveitarfélaganna er hægt að sækja um húsaleigubætur og fjárhagsaðstoð.
    Félagsþjónusta sveitarfélaga á vef félags- og tryggingamálaráðuneytis
  • Húsaleigubætur eru til þess hugsaðar að lækka húsnæðiskostnað tekjulágra leigjenda og draga úr aðstöðumun á húsnæðismarkaði. Við útreikning húsaleigubóta er tekið mið af leigufjárhæð, tekjum, eignum að frádregnum skuldum og framfærslu barna.
    Almennar upplýsingar um húsaleigubætur á vef félags- og tryggingamálaráðuneytis
  • Markmið félagsþjónustu sveitarfélaga er meðal annars að tryggja fjárhagslegt öryggi íbúanna. Rétt á fjárhagsaðstoð eiga þeir sem eiga lögheimili í sveitarfélaginu og hafa tekjur undir ákveðnum viðmiðunarmörkum.
  • Þegar sótt er um aðstoð metur Félagsþjónustan þörfina, en tilgangur aðstoðarinnar er að hjálpa einstaklingnum eða fjölskyldunni til sjálfshjálpar. Aðstoðin getur verið lán eða styrkur. Öll fjárhagsaðstoð til framfærslu er skattskyld.

Um meðlag á vef Innheimtustofnunar sveitarfélaga
Upplýsingar um meðlag á vef sýslumanna

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein



Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica