Óvígð sambúð

Óvígð sambúð

Með óvígðri sambúð er átt við sambúð fólks aðra en hjónaband. Engin heildarlög gilda um óvígða sambúð og það fer eftir aðstæðum og málaflokkum hver réttindi sambúðarfólks eru.

Skráning sambúðar

  • Fólk í óvígðri sambúð getur skráð sambúð sína í þjóðskrá.
    Beiðni um skráningu í þjóðskrá
  • Það getur skipt máli fyrir réttindi fólks hvort sambúðin er skráð eða ekki. Þegar sambúð er skráð öðlast fólk á ýmsan hátt skýrari stöðu gagnvart lögum en þeir sem ekki hafa skráð sambúð sína, en njóta þó ekki sömu réttinda og gift fólk.

Um skráða sambúð á vef Þjóðskrár

Réttindi í sambúð

  • Fólk í sambúð er ekki framfærsluskylt gagnvart maka og á ekki rétt á arfi eftir maka nema það sé tilgreint í erfðaskrá.
  • Félagsleg réttindi sambúðarfólks eru oft háð því að það eigi barn saman, sambúð hafi staðið yfir í vissan tíma og sé skráð í þjóðskrá. Á vissum sviðum gilda þó sjálfkrafa sömu reglur um sambúðarfólk og gift fólk. Með félagslegum réttindum er meðal annars átt við:
  • almannatryggingar,
  • vinnumarkaðsrétt,
  • skattamál og
  • félagsþjónustu sveitarfélaga.


Um fjármál í hjúskap á island.is
Um erfðarétt og erfðaskrá á island.is

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica