Hjúskapur og sambúð

Efnisflokkar

Fjármál í hjúskap

Æskilegt er að gift fólk þekki stöðu sína og rétt gagnvart lögum. Það getur haft mikið að segja um fjárhagslega afkomu ef breytingar verða á aðstæðum. 

Forsjá barna og umgengni

Sameiginleg forsjá er meginregla í lögum og við skilnað á að sjá til þess að börn fái notið umgengni og umhyggju beggja foreldra.

Hjónaband

Við 18 ára aldur getur fólk gengið í hjónaband. Í gildandi lögum er meðal annars sagt til um gagnkvæmar skyldur.

Meðlag

Meðlag tilheyrir barni og á að nota í þess þágu en það foreldri sem fær meðlag með barni sínu tekur við greiðslum þess í eigin nafni. Foreldrum ber að framfæra barn sitt til 18 ára aldurs.

Óvígð sambúð

Með óvígðri sambúð er átt við sambúð fólks aðra en hjónaband. Engin heildarlög gilda um óvígða sambúð og það fer eftir aðstæðum og málaflokkum hver réttindi sambúðarfólks eru.

Skilnaður og sambúðarslit

Skilnaður hefur oftast í för með sér félagslegar breytingar og andlegt álag. Opinber málsmeðferð er í höndum sýslumanna en ráðgjafar og aðstoðar má meðal annars leita hjá félagsráðgjöfum, sálfræðingum, trúfélögum, lögmönnum og heimilislæknum.


Persónulegar aðstæður og gildi ráða því hvernig sambúð fólk kýs sér en réttur þess getur verið misjafn eftir sambúðarformum. Þetta á sérstaklega við um fjármál og málefni barna.



Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica