Skilnaður og sambúðarslit
Skilnaður og sambúðarslit
Skilnaður hefur oftast í för með sér félagslegar breytingar og andlegt álag. Opinber málsmeðferð er í höndum sýslumanna en ráðgjafar og aðstoðar má meðal annars leita hjá félagsráðgjöfum, sálfræðingum, trúfélögum, lögmönnum og heimilislæknum.
Yfirlit
Hjónaskilnaður
- Gengið er frá hjónaskilnaði hjá sýslumanni sem gefur út skilnaðarleyfi. Nái fólk ekki sáttum um skilnað er málinu vísað til dómstóla.
- Fyrst er venjulega veittur skilnaður að borði og sæng en lögskilnaður að liðnum umþóttunartíma og ef öðrum skilyrðum er fullnægt.
- Við vissar kringumstæður má óska eftir lögskilnaði án þess að skilnaður að borði og sæng fari á undan, svo sem vegna hjúskaparbrots, langavarandi samvistarslita vegna ósamlyndis eða vegna ofbeldis sem átt hefur sér stað gagnvart maka eða barni.
- Fólk sem á börn undir 18 ára aldri verður að leita sátta hjá presti, forstöðumanni trúfélags eða sýslumanni, sé það utan söfnuða.
- Atriði sem þarf að taka afstöðu til áður en skilnaðarleyfi er gefið út varða meðal annars:
- forsjá og lögheimili barna,
- umgengni,
- meðlagsgreiðslur,
- lífeyrisgreiðslur milli hjóna og
- fjárskipti, það er hvernig skipta á sameiginlegum eignum.
Um fjármál í hjúskap og við skilnað á island.is
Um reglur og meðferð hjónaskilnaða á vef sýslumanna
Sambúðarslit
- Við sambúðarslit fólks sem ekki á börn saman nægir að tilkynna um breytt heimilisfang til Þjóðskrár Íslands. Flutningstilkynning á vef Þjóðskrár
- Fólk í skráðri sambúð sem á börn saman þarf að leita til sýslumanns, tilkynna um sambúðarslit og ganga frá lögheimili barna sinna og meðlagsgreiðslum. Sýslumaður getur einnig staðfest samkomulag um umgengni.
Um reglur og meðferð sambúðarslita á vef sýslumanna
Vert að skoða
- Félagsráðgjöf hjá Reykjavíkurborg
- Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
- Lögfræðiaðstoð Orators - ókeypis ráðgjöf
- Lögmannavaktin: ókeypis lögfræðiráðgjöf
- Lögskilnaður I á vef sýslumanns í Reykjavík
- Lögskilnaður II á vef sýslumanns í Reykjavík
- Skilnaður að borði og sæng á vef sýslumanns í Reykjavík
- Sýslumenn eftir landshlutum

