Forsjá barna og umgengni
Forsjá barna og umgengni
Sameiginleg forsjá er meginregla í lögum og við skilnað á að sjá til þess að börn fái notið umgengni og umhyggju beggja foreldra.
Barnaréttur - umgengni
Andlát forsjárforeldris á island.is
Forsjá barna
- Foreldrar fara sameiginlega með forsjá barna sinna eftir skilnað og slit skráðrar sambúðar nema annað sé ákveðið.
- Sameiginleg forsjá felst meðal annars í eftirfarandi:
- Foreldrar eiga að hafa samráð um allar meiriháttar ákvarðanir sem varða hag barnsins, eins og búsetu og skóla.
- Öðru foreldri er óheimilt að fara með barnið úr landi án samþykkis hins.
- Gert er ráð fyrir að foreldrar sammælist um lögheimili þar sem barnið dvelur að staðaldri.
- Ef foreldrar barns eru hvorki í hjúskap né skráðri sambúð við fæðingu barnsins fer móðirin ein með forsjána og barnið á lögheimili hjá henni.
- Ef foreldrar vilja breyta fyrirkomulagi forsjár þarf að leita til sýslumanns.
Forsjá barna: upplýsingar og eyðublöð á vef sýslumanna
Umgengni
- Reglur um umgengnisrétt eiga að tryggja að barn fái reglubundið að vera samvistum við það foreldri sem það býr ekki hjá. Þetta á við hvort sem forsjá barns er sameiginleg eða í höndum annars foreldris.
- Við skilnað eða slit sambúðar er foreldrum ætlað að komast að samkomulagi um umgengni. Fyrirkomulag umgengni er óháð því hvernig forsjá er háttað og ákvörðun tekin sérstaklega þar um.
- Umgengnissamningar geta bæði verið munnlegir og skriflegir. Hægt er að fara fram á að sýslumaður staðfesti skriflegan samning um umgengni.
- Engar formlegar reglur eru til um hvernig umgengni eigi að vera háttað.
Umgengnismál: upplýsingar og eyðublöð á vef sýslumanna
Deilur um forsjá eða umgengni
- Ef ágreiningur rís á milli foreldra um forsjá eða umgengni eiga þau kost á sérfræðiráðgjöf á vegum sýslumanns. Markmiðið með ráðgjöf er að aðstoða foreldra við að finna lausn á deilu sinni með tilliti til þess sem er barni fyrir bestu.
- Ef foreldrum tekst ekki að ná samkomulagi um forsjá, má höfða forsjármál fyrir dómi.
- Ef foreldrum tekst ekki að ná samkomulagi um umgengni, ákveður sýslumaður hvernig umgengni á að vera og byggir úrskurð sinn á hagsmunum barnsins.
- Úrskurð sýslumanns má kæra til innanríkisráðherra.
- Við vissar kringumstæður getur sýslumaður úrskurðað að umgengni fari fram undir eftirliti eða að höfð sé milliganga um að sækja og skila barni.
- Ef forsjárforeldri kemur í veg fyrir umgengni sem hefur verið ákveðin með dómi, úrskurði eða staðfestum samningi, er hægt að óska eftir að sýslumaður beiti þvingunarúrræðum.

