Unglingar
Með aldri og þroska öðlast hver og einn ýmis réttindi. Að sama skapi þarf sá hinn sami að axla ábyrgð og uppfylla ýmsar skyldur.
Yfirlit
“Börn á aldrinum 13 til 16 ára, skulu ekki vera á almannafæri eftir klukkan 22, enda séu þau ekki á heimferð frá viðurkenndri skóla-, íþrótta- eða æskulýðssamkomu. Á tímabilinu 1. maí til 1. september lengist útivistartími barna um tvær klst. Aldursmörk þessa ákvæðis miðast við fæðingarár en ekki fæðingardag.” Úr Barnaverndarlögum.
Réttindi og skyldur
- Réttindi segja til um hvers einstaklingurin getur krafist af samfélaginu, en skyldur segja til um hvaða kröfur samfélagið getur gert til einstaklingsins.
- Meðal réttinda einstaklingsins er rétturinn til framfærslu, mál- og skoðanafrelsi og ríkisborgararéttur.
- Unglingi á aldrinum 13 - 18 ára er skylt að hlýða fyrirmælum foreldra, virða skoðanir annarra og hlýta lögum samfélagsins.
- Við 18 ára aldur fæst lögræði, það er fjárræði og sjálfræði, sem þýðir að unglingur ræður eigin eignum og búsetu en missir réttindi til framfærslu.
- Heimilt er að úrskurða foreldri til að greiða barni sínu framlag til menntunar eða starfsþjálfunar þar til það nær 20 ára aldri.
Réttindi og skyldur barna og unglinga á vef umboðsmanns barna
Réttindi 14 til 18 ára unglinga á vef umboðsmanns barna
Nám og vinna
Nám
- Börnum og unglingum á aldrinum 6 - 16 ára er lögum samkvæmt skylt að sækja grunnskóla, en skólagangan er ókeypis.
- Þeir sem ljúka grunnskólanámi með grunnskólaprófi eða hafa náð framhaldsskólaaldri geta sótt um vist í framhaldsskóla. Samkvæmt lögum er fræðsluskylda til 18 ára aldurs.
Inntökuskilyrði í framhaldsskóla - Innritun framhaldsskólanema á haustönn fer fram á vef Menntagáttar og er síðasti umsóknardagur í júní ár hvert. Innritun nema á vorönn fer ýmist fram í hverjum skóla fyrir sig eða á vef Menntagáttar.
- Ýmsar upplýsingar um sérskóla, sérdeildir, starfsbrautir og annað námsframboð fyrir fötluð börn og unglinga má finna á vef Menntagáttar.
Framhaldsskólanám á island.is
Jöfnunarstyrkur ætlaður framhaldsskólanemum
Menntagáttin
Framhaldsskólanám
Framhaldsskólar á landinu
Hitt húsið, menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólks
Vinna
- Börn í skyldunámi má aðeins ráða til vinnu í störf af léttara tagi.
- Börn yngri en 13 ára mega aðeins taka þátt í menningar- og listviðburðum og íþrótta- og auglýsingastarfsemi og þá með leyfi Vinnueftirlitsins.
- Börn á aldrinum 13 - 14 ára má ráða í störf af léttara tagi, nema þau sem teljast hættuleg eða líkamlega mjög erfið.
- Vinnutími 15 - 17 ára má vera 8 klst. á dag eða 40 klst. á viku á þeim tíma þegar skóli er ekki.
- Næturvinna barna og unglinga er bönnuð.
- Flest stærri sveitarfélög reka vinnuskóla eða unglingavinnu nokkrar vikur á sumrin fyrir elstu grunnskólanemana.
- Nokkrar atvinnumiðlanir sérhæfa sig í að aðstoða ungt fólk við að finna vinnu.
- Ungt fólk hvaðanæva af Norðurlöndunum á þess kost að sækja um sumarstörf í grannríkjunum.
Fjölsmiðjan, vinnusetur fyrir ungt fólk sem stendur á krossgötum
Fjölsmiðjan Akureyri
Nordjobb
Skapandi sumarstörf hjá Hinu húsinu
Skattar einstaklinga á island.is
Stúdentamiðlun
Sveitarfélög á landinu
Veggspjald Vinnueftirlitsins um vinnu barna og unglinga (pdf, 363 kb)
Kynþroski og kynlíf
- Aldur við upphaf kynþroska virðist stjórnast af erfðum og umhverfisþáttum.
- Upphaf kynþroska hefur farið lækkandi og eru aðal ástæður þess taldar vera betra næringarástand og betri heilbrigðisþjónusta.
- Samkvæmt almennum hegningarlögum er það lögbrot að hafa samræði eða önnur kynferðismök við barn sem er yngra en 15 ára.
Ástráður, forvarnarstarf læknanema
Bæklingar Landlæknisembættis: Samskipti foreldra og barna um kynlíf og Kynlíf, unglingar
Bæklingur Landlæknisembættis: Kynsjúkdómar, smitleiðir, einkenni, afleiðingar og meðferð (pdf, 205 kb)
Kynfræðsla, á vef Landlæknisembættis
Áfengi og vímuefni
- Áfengis- og vímuefnaneysla getur haft alvarlegar afleiðingar í för með sér.
- Oftast er neyslan í byrjun fikt sem sjaldan verður stórvandamál. En sá sem hefur fiktað er kominn yfir ákveðin mörk og hætta er á að fiktið verði að fíkn.
-
Fíkn er skildgreind með eftirfarandi hætti af Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni:
- Sterk löngun eða áráttukennd þörf fyrir efnið.
- Stjórnlaus neysla. Tíðari, meiri eða varir lengur en gert var ráð fyrir.
- Líkamleg fráhvarfseinkenni þegar dregið er úr neyslu.
- Aukið þol – meira magn þarf til að ná sömu áhrifum og áður.
- Meiri tími fer í að nálgast efnið, neyta þess eða ná sér eftir neyslu.
- Neyslu er haldið áfram þrátt fyrir líkamlegan eða sálrænan skaða.
- Fíkn er til staðar ef þrjú af sex ofangreindum einkennum hafa verið til staðar um eitthvert skeið á síðastliðnum tólf mánuðum.
- Samkvæmt lögum er bannað að selja, veita eða afhenda ungmennum yngri en 20 ára áfengi.
Flott án fíknar
Fræðsla um áfengi og vímuefni á vef Landlæknisembættis
Fræðslumiðstöð í fíknivörnum
Vímulaus æska
Lotugræðgi og lystarstol
- Átröskunarsjúkdómar geta orðið mjög alvarlegir og lífshættulegir.
- Sjúklingar þjást af sjúklegum ótta við að fitna, þrátt fyrir að vera í eðlilegri þyngd eða jafnvel horaðir.
- Ástandinu fylgir andleg og líkamleg vanlíðan og sjúklingurinn þarf meðferð til að ná bata.
- Ungar stúlkur eru í mestri áhættu á að veikjast en drengir og einstaklingar á öllum aldri geta fengið átraskanir.
- Undanfari átraskana eru oft megrun, áföll af ýmsu tagi, erfiðleikar í félagahópnum, þunglyndi og önnur veikindi.
- Brýnt er að grípa strax inn í og leita aðstoðar ef átröskun er að þróast.
- Oft áttar einstaklingurinn sig ekki á því að eitthvað er að og þess vegna verður fjölskyldan að vera vakandi fyrir einkennum sjúkdómsins.
BUGL, barna- og unglingageðdeild Landspítala
Landspítali Hvítaband, átröskun
Upplýsingar um átraskanir á vef Tótalráðgjafar
Vert að skoða
Réttindi og skyldur
Nám og vinna
- Iðan - fræðsluvefur um iðnstörf
- Rettindi.is, vefur um réttindi ungs fólks á vinnumarkaði
- Spurningar og svör á vefnum Framhaldsskólar - nám að loknum grunnskóla
- Vinna barna og unglinga á vef ASÍ
- Vinna barna og unglinga á vef umboðsmanns barna
- Vinnueftirlitið: vinna barna og unglinga
Kynþroski og kynlíf
- Alnæmissamtökin á Íslandi
- Kvennadeildir Landspítala
- Stígamót
- Um kynlíf á vef umboðsmanns barna
- Ungar konur á meðgöngu
- Ungliðahópur Samtakanna 78
Áfengi og vímuefni
- AA samtökin
- Maríta á Íslandi, forvarnarsvið Samhjálpar
- Samanhópurinn
- SÁÁ
- Stuðlar, meðferðarstöð ríkisins (nýr gluggi)
Annað
- Auður býr í barni hverju, bæklingur um áhrif fátæktar á börn og leiðir til að bæta aðstæður (pdf)
- Betra fjölskyldulíf, fjölskylduráðgjöf
- Ef bara ég hefði vitað, upplýsingabæklingur Rauða kross Íslands
- Félagsleg ráðgjöf á vef Reykjavíkurborgar
- Fjölskylduþjónusta kirkjunnar
- Geðhjálp
- Heilsuvefurinn H6, unglingar
- Heyrumst.is, barna- og unglingavefur Barnaheilla
- Hitt húsið
- Hjálparsími Rauða krossins 1717
- Hugarafl
- Ráðgjöf og stuðningur, Hinu húsinu
- Stjórnlög unga fólksins
- Stuðningur við þá sem eru í sjálfsvígshugleiðingum
- Tótalráðgjöf, ráðgjafar- og upplýsingaveita fyrir ungt fólk
- Vefleikurinn Galactor, fræðsluvefur fyrir unglinga um réttindi neytenda
- Vettvangur unga fólksins á vef Landlæknisembættis

