Íþróttir og tómstundir
Íþróttir og tómstundir
Rannsóknir sýna að þátttaka barna og unglinga í skipulögðu frístundastarfi, undir stjórn ábyrgs leiðbeinanda, hefur forvarnargildi og veitir þeim líkamlega og andlega vellíðan.
Yfirlit
Frístundir
Frístundakortið - styrkjakerfi í frístundastarfi fyrir 6 til 18 ára börn og unglinga í Reykjavík
- Víðsvegar um landið stunda börn og unglingar íþróttir, tónlistar- og dansnám og taka þátt í margskonar námskeiðum sem oftar en ekki vekja hjá þeim áhuga á frekari ástundun.
- Sum sveitarfélög greiða niður þátttökugjöld vegna íþrótta-, lista- og æskulýðsstarfsemi yngri íbúa sinna. Misjafnt er eftir sveitarfélögum hvaða reglur gilda um niðurgreiðslu. Nánari upplýsingar er að finna á vefjum sveitarfélaga.
Sveitarfélög - Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands, ÍSÍ, eru heildarsamtök íþróttahreyfingarinnar hér á landi. ÍSÍ
- Samkvæmt íþróttalögum er landinu skipt í íþróttahéruð og í hverju þeirra skal vera eitt héraðssamband eða íþróttabandalag allra íþróttafélaga í héraðinu. Innan ÍSÍ er fjöldi sérsambanda íþróttafélaga og íþróttanefndir.
Sambandsaðilar ÍSÍ
- Fjöldi skátafélaga eru starfandi um land allt.
Bandalag íslenskra skáta - Innan margra félagadeilda Rauða krossins er starfrækt barna- og ungmennastarf.
Barna- og ungmennastarf RKÍ -
Unglingadeildir eru starfandi innan Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.
- Tónlistarskólar á landinu eru reknir af sveitarfélögum og einkaaðilum. Á vefjum þeirra má fá upplýsingar um starfsemi og nám og þar eru einnig umsóknareyðublöð.
Tónlistarskólar - Kennsla í listdansi hér á landi er í höndum einkaaðila.
- Í fjölmörgum grunnskólum eru starfræktar skólahljómsveitir. Á vefjum skólanna er nánari upplýsingar um hljómsveitirnar.
- Skákíþróttin er iðkuð af fólki á öllum aldri hér á landi.
- Barna- og unglingastarf er í flestum trúfélögum, jafnt innan sem utan þjóðkirkjunnar.
- Í stærri sveitarfélögum er boðið upp á sumarnámskeið fyrir börn. Á námskeiðunum er tekist á við fjölbreytt og skemmtileg viðfangsefni. Upplýsingar um námskeiðin má fá á vefjum sveitarfélaga, íþróttafélaga og félagsmiðstöðva.
- Gæsluleikvellir eru starfræktir í flestum stærri sveitarfélögum yfir sumartímann. Þeir eru ætlaðir yngri börnum og er aldurtakmark misjafnt. Nánari upplýsingar finnast á vefjum sveitarfélaganna.
Vert að skoða
- Félagsmiðstöðvar - Samband íslenskra félagsmiðstöðva
- Grunnskólar
- Hitt húsið - menningar- og upplýsingamiðstöð ungs fólks
- Hverfið mitt, hverfavefir Reykjavíkurborgar
- Listdansskólar
- Rauði kross Íslands
- Samband íslenskra lúðrasveita
- Skáksamband Íslands
- Tónlistarskólar
- Ungmennahús víða um land
- Upplýsingavefur fyrir íþrótta- og tómstundastarf í Reykjavík

