Ófrjósemi/tæknifrjóvgun

Ófrjósemi/tæknifrjóvgun

Þeir sem vilja leita meðferðar við ófrjósemi geta snúið sér beint til Læknastöðvarinnar ART Medica sem starfar með leyfi heilbrigðisráðuneytis. Einnig má leita til síns læknis eða sérfræðings.

Ófrjósemi/tæknifrjóvgun

  • Það fer eftir orsökum ófrjóseminnar hvaða meðferð er ráðlögð en tæknifrjóvgun er ein þeirra sem koma til greina.

  • Nokkrar takmarkanir eru á því hvaða konur mega gangast undir tæknifrjóvgun þar sem meðal annars er tekið tillit til aldurs, heilsu og félagslegra aðstæðna. Ekki skiptir máli hver hjúskaparstaða konunnar er.

  • Kostnaður við tæknifrjóvgunarmeðferð er samkvæmt gjaldskrá ART Medica.
  • Ýmiss fjárstuðningur er í boði svo sem:

  • endurgreiðslur vegna ferðakostnaðar innanlands,

  • stuðningur stéttarfélaga við sína félagsmenn.

  • Þeir sem gefa kynfrumur (sæði/egg) geta óskað eftir nafnleynd.

  • Barn sem getið er með tæknifrjóvgun getur óskað eftir upplýsingum um uppruna sinn þegar það nær 18 ára aldri, hafi gjafi ekki óskað nafnleyndar.

ART Medica - rannsóknir og meðferð
Um ferðakostnað á vef Sjúkratrygginga

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein



Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica