Meðganga og fæðing

Meðganga og fæðing

Barnshafandi konur fá ókeypis mæðravernd, hafi þær átt skráð lögheimili hér á landi undangengna sex mánuði. Tilgangurinn er að stuðla að heilbrigði móður og barns með faglegri umönnun, stuðningi og fræðslu.

Mæðravernd

  • Heilbrigðar barnshafandi konur sækja skoðanir í mæðravernd á nærliggjandi heilsugæslustöð.
    Heilsugæslustöðvar á landinu
  • Mæðravernd er tilvonandi móður að kostnaðarlausu sé hún sjúkratryggð á Íslandi.
  • Konum sem taldar eru í áhættumeðgöngu er sinnt á kvennasviði Landspítalans (LS) og kvennadeild Sjúkrahússins á Akureyri.

Öllum konum sem geta orðið eða eru barnshafandi er eindregið ráðlagt að taka daglega inn fólat (fólasín/fólínsýru) og neyta fólatríkrar fæðu.
Fólat - bæklingur á vef Landlæknisembættis (pdf, 2048 kb)

  • Fyrsta skoðun fer fram við 8 - 12 vikna meðgöngu. Gert er ráð fyrir að konur sem eru að eignast sitt fyrsta barn fari í 10 skoðanir fram að fæðingu en aðrar í 7 skipti.
  • Ljósmæður annast mæðravernd í nánu samstarfi við lækna og aðra sérfræðinga.
  • Barnshafandi konum er boðin ómskoðun við 19 - 20 vikna meðgöngu. Sé meðgangan áhættusöm á einhvern hátt getur ómskoðun farið fram fyrr og oftar og fleiri rannsóknir gerðar eftir þörfum.
    Um ómskoðun og fleira hjá fósturgreiningardeild Landspítala
  • Eftirskoðun hjá lækni eða ljósmóður er æskileg 6 - 10 vikum eftir fæðingu. Þá er almennt heilsufar móður metið og ráðgjöf veitt.
  • Víða er verðandi foreldrum boðið upp á námskeið. Upplýsingar þar um er að fá hjá heilsugæslustöðvum og Miðstöð mæðraverndar.
    Foreldrafræðsla hjá Miðstöð mæðraverndar

Miðstöð mæðraverndar: alhliða upplýsingar um meðgöngu og mæðravernd

Fæðing

  • Konum er frjálst að fæða börn sín á hvaða sjúkrahúsi sem er, sé þar veitt fæðingarþjónusta. Ekkert gjald er tekið fyrir fæðingar sé móðirin sjúkratryggð á Íslandi.
  • Sængurlega er mislöng eftir eðli fæðingar, allt frá sólarhring upp í nokkra sólarhringa.
  • Eftir fæðingu vitja hjúkrunarfræðingar móður og barns á heimili þeirra en við 6 vikna aldur taka við skoðanir á heilsugæslustöðvum.
  • Hægt er að fara heim innan 36 klukkustunda frá fæðingu ef skilyrði um heilsu móður og barns eru uppfyllt. Hún nýtur þá heimaþjónustu ljósmóður næstu daga sér að kostnaðarlausu. Hafa þarf í huga að heimaþjónustu er ekki sinnt í öllum byggðarlögum landsins.

Heimafæðing

  • Kona getur fætt í heimahúsi ef heilsa hennar og barns og aðrar aðstæður leyfa. Ljósmæður sem annast mæðravernd veita upplýsingar um tilhögun heimafæðinga.
  • Móðir sem fæðir í heimahúsi á rétt á sjúkradagpeningum í 10 daga frá fæðingu barns.
    Um sjúkradagpeninga á vef Sjúkratrygginga

Ung- og smábarnaverndarsvið Þróunarstofu

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica