Barnabætur
Barnabætur
Barnabætur eru til þess ætlaðar að létta undir með barnafólki og jafna stöðu þess. Ákveðin upphæð er greidd til foreldra með hverju barni fram að 18 ára aldri.
Yfirlit
Greiðslufyrirkomulag barnabóta verður óbreytt, á vef fjármálaráðuneytis
Reiknivél til að áætla barnabætur og almennar upplýsingar á vef RSK
Barnabætur
- Með hverju barni undir 7 ára aldri greiðist föst upphæð án tillits til tekna en annars eru barnabætur tekjutengdar.
- Ekki þarf að sækja um barnabætur.
- Upphæð barnabóta fer eftir tekjum foreldra, hjúskaparstöðu og barnafjölda.
- Skattayfirvöld annast útreikning barnabóta sem grundvallast á skattframtali.
- Hafi foreldrar skilið að skiptum greiðast barnabætur greiðast því foreldri sem barnið hefur lögheimili hjá.
- Barnabætur eru greiddar út ársfjórðungslega. 1. febrúar, 1. maí, 1. ágúst og 1. nóvember.
- Barnabætur eru greiddar út af Fjársýslu ríkisins. Þær teljast ekki til tekna og eru ekki skattskyldar. Barnabætur má ekki taka upp í skattaskuldir einstaklinga.
Vert að skoða
Lög og reglugerðir
Hafirðu skoðun eða ábendingu um efni sem þér finnst vanta á vefinn, sendu hana þá á tölvupóstfangið: island@island.is

