Andlát forsjárforeldris

Andlát forsjárforeldris

Í barnalögum er kveðið á um að verði barn forsjárlaust vegna andláts foreldra hverfi forsjá til barnaverndarnefndar. Þetta á bara við ef báðir forsjárforeldrar eru látnir og stjúpforeldri ekki til staðar.

Andlát forsjárforeldris


Með samningi eða dómi er hægt að fela öðrum forsjá barns en þeim sem fær hana sjálfkrafa samkvæmt barnalögum, sé það barninu fyrir bestu.

  • Fari báðir foreldrar með forsjá barns og annað fellur frá heldur hitt foreldrið áfram að fara með forsjá. Þetta á við um foreldra sem eru í hjónabandi, skráðri sambúð eða hafa samið um sameiginlega forsjá.
  • Látist foreldri sem fer eitt með forsjá barns færist forsjá til hins foreldrisins nema hið látna forsjárforeldri hafi verið í hjónabandi eða skráðri sambúð í eitt ár.
  • Þegar foreldri sem fer eitt með forsjá barns gengur í hjónaband eða skráir sig í sambúð verður forsjá barns einnig hjá maka forsjárforeldrisins. Látist forsjárforeldri fer maki áfram með forsjá barns.
  • Ef foreldri fær forsjá barns eftir andlát hins foreldrisins og er í skráði sambúð eða hjónabandi gildir það sama.
  • Forsjárskylda maka með barni varir á meðan á hjónabandi eða sambúð stendur.
  • Samkvæmt lögum geta forsjárforeldrar eða forsjárforeldri útbúið skriflega yfirlýsingu um það hver skuli fara með forsjá barns að þeim látnum. Yfirlýsingin hefur aðeins gildi ef hún stenst lög og er í samræmi við hagsmuni barnsins.
  • Nauðsynlegt er að yfirlýsingin sé staðfest af sýslumanni eða héraðsdóms- eða hæstaréttarlögmanni.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein



Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica