Andlát

Efnisflokkar

Andlát ber að

Við andlát ættingja og vina verða þáttaskil sem marka spor í líf fólks. Sorg og önnur viðbrögð við andláti eru mismunandi og einstaklingsbundin og taka oft mið af aðdraganda andláts, sem getur verið langur eða alls enginn.

Andlát forsjárforeldris

Í barnalögum er kveðið á um að verði barn forsjárlaust vegna andláts foreldra hverfi forsjá til barnaverndarnefndar. Þetta á bara við ef báðir forsjárforeldrar eru látnir og stjúpforeldri ekki til staðar.

Erfðamál

Við andlát þarf að skipta dánarbúi samkvæmt lögum. Dánarbú er lögaðili sem tekur við fjárhagslegum skyldum og réttindum sem bundin eru við persónu hins látna.

Legstaður

Kirkjugarðar og grafreitir eru friðhelgir samkvæmt lögum. Ekki má í nánd við kirkjugarða reisa mannvirki, starfrækja stofnanir eða reka fyrirtæki sem frá stafar hávaði eða ys.

Útför skipulögð

Við skipulagningu útfarar er æskilegt að fara að óskum hins látna ef þær liggja fyrir og taka nauðsynlegar ákvarðanir í ljósi þeirra. Útfarir geta farið fram í kirkjum, kapellum, bænhúsum, samkomuhúsum trúfélaga, heimahúsum og ýmsum öðrum samkomustöðum.

Útförin

Útför er kveðjuathöfn samfélagsins. Við útfarir sýnir fólk hinum látna þakklæti sitt og virðingu og aðstandendum samúð.




Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica