Kort og gjaldeyrir
Kort og gjaldeyrir
Á heildina litið hefur innlend greiðslumiðlun milli bankastofnana og viðskiptavina gengið vel.
Yfirlit
Greiðslumiðlun innanlands og utan
- Á heildina litið hefur innlend greiðslumiðlun milli bankastofnana og viðskiptavina gengið vel.
Kreditkort
- Upplýsingar um hámarksheimildir úttekta á kreditkort er að finna á vefjum kortafyrirtækja og banka.
Erlendir seðlar
- Erlendur gjaldeyrir er afgreiddur í bönkum og er hámarksúttekt fyrir hvern farseðil 350.000 kr. á mánuði.
Notkun greiðslukorta í erlendri mynt
- Kort útgefin af íslenskum bönkum og sparisjóðum virka með eðilegum hætti, jafnt innanlands sem utan.
- Greiðslukortafyrirtæki notast við gengisskráningu á þeim degi sem úttekt berst frá söluaðila erlendis, en það getur verið allt að þremur dögum eftir að kaup voru gerð.
- Athuga þarf að gengi á greiðslukortum getur verið frábrugðið seðlagengi. Hægt er að nálgast upplýsingar um gengi á hverjum degi hjá kortafyrirtækjum.
Flutningur peninga milli landa
- Mikilvægt er að fylgt sé ráðleggingum Seðlabankans og fullnægjandi skýringar fylgi greiðslufyrirmælum til þess að koma í veg fyrir að greiðslur tefjist.

Mittsvæði
