Skattar einstaklinga
Skattar einstaklinga
Allir sem eru skattskyldir á Íslandi og hafa tekjur yfir skattleysismörkum greiða skatta af launum sínum sem fara í sameiginlegan sjóð landsmanna.
Persónuafsláttur
- Persónuafsláttur er skattaafsláttur. Allir sem eru 16 ára og eldri og eru heimilisfastir á landinu eiga rétt á persónuafslætti.
- Persónuafsláttur er að fullu millifæranlegur á milli hjóna eða sambúðarfólks.
- Persónuafslætti má safna upp á milli mánaða og eftir atvikum nýta afslátt sem maki hefur ekki nýtt sér.
- Uppsafnaður persónuafsláttur sem ekki er nýttur innan skattárs fellur niður við upphaf nýs árs.
Persónuafsláttur, á vef rsk.is
Skattkort
- Skattkort veitir rétt til persónuafsláttar og fá þeir sem eru 16 ára það sent. Það sama á við um þá sem flytja lögheimili sitt til landsins.
- Til að launagreiðandi geti tekið tillit til persónuafsláttar við útreikning á staðgreiðslu skatta, þarf að afhenda honum skattkort áður en kemur að fyrstu launagreiðslu.
Skattkort og staðgreiðsla, rsk.is - Gæta þarf þess að fá skattkort afhent þegar skipt er um vinnu og að réttar upplýsingar um nýtingu persónuafsláttar séu færðar inn á kortið.
- Hægt er að nýta persónuafslátt hjá fleiri en einum launagreiðanda með því að skipta skattkorti.
Umsókn um nýtt skattkort og aukaskattkort á þjónustuvef ríkisskattstjóra
Skattur af launum einstaklinga
- Skattur af launum einstaklinga skiptist annars vegar í tekjuskatt til ríkisins og hins vegar í útsvar til sveitarfélaga.
- Skattleysismörk taka mið af persónuafslætti og staðgreiðsluhlutfallinu og eru það mörkin sem miðað er við áður en skattur er greiddur af laununum.
- Atvinnurekandi dregur staðgreiðsluna af launum launþegans og skilar til innheimtumanns ríkissjóðs.
- Launþegar sem starfa á fleiri en einum stað þurfa að upplýsa atvinnurekendur um önnur launuð störf til að rétt hlutfall tekjuskatts sé dregið af launum.
- Tekjuskattsþrep launþega eru þrjú: 22,9%, 25,8% og 31,8%. Launaþegar greiða því:
-
- 22,9% af tekjum undir 230.000 á mánuði,
- 25,8% af tekjum frá 230.001 til 704.366 og
- 31,8% af tekjum yfir 704.367.
- Launþegar sem fá greidd laun fyrir sjómannsstörf á íslensku skipi eða skipi sem gert er út af íslensku skipafélagi njóta að auki sérstaks afsláttar og kallast hann sjómannaafsláttur.
- Útsvarið sem launþegar greiða af launum sínum er einn af tekjustofnum sveitarfélaga og er það mismunandi eftir sveitarfélögum.
- Við staðgreiðslu útsvars er miðað við meðalútsvar allra sveitarfélaga. Á árinu 2012 er lágmarksútsvar 12,44% en hámarksútsvar 14,48%.
- Staðgreiðsluhlutfall ársins er 37,34% á tekjur í fyrsta þrepi, 40,24% í öðru þrepi og 46,24% í þriðja þrepi.
- Allir 16 til 70 ára og með tekjur yfir skattleysismörkum greiða föst gjöld í framkvæmdasjóð aldraðra og til reksturs Ríkisútvarps. Þessi gjöld eru nefskattur en það er skattur sem leggst jafnt á alla.
- Börn yngri en 16 ára hafa sérstakt frítekjumark og greiða 6% af tekjum sem fara yfir frítekjumarkið í skatt.
Upplýsingar fyrir árið 2012:Persónuafsláttur á mánuði: 46.532 kr.Skattleysismörk á mánuði: 129.810 kr. miðað við launþega með 4% lífeyrissparnað, 124.617 kr. miðað við ellilífeyrisþega. Tekjuskattsprósenta: 22,9%, 25,8% og 31,8% Meðalútsvar: 14,44% Staðgreiðsluhlutfall*: 37,34%, 40,24% og 46,24% *Tekjuskattsprósenta + meðalútsvar. |
Skýring:Launþegi greiðir því 22,9% tekjuskatt af fyrstu 230.000 krónum launa. Hann greiðir 25,8% tekjuskatt af launahluta sem er frá 230.001 að 704.366 krónum. Launþegi greiðir 31,8% tekjuskatt af þeim launahluta sem fer yfir 704.367 á mánuði. Af laununum er einnig greitt útsvar sem er 14,44% að meðaltali árið 2012.Dæmi: Mánaðarlaun 350.000. kr - skattskyld greiðsla verður: 37,34% af 230.000 kr. og 40,24% af 120.000 kr. Mánaðarlaun 730.000. kr - skattskyld greiðsla verður: 37,34% af fyrstu 230.000 kr., 40,24% af næstu 474.357 kr. og 46,24% af síðustu 25.633 kr. |
|---|
Upplýsingar fyrir árið 2011:Persónuafsláttur á mánuði: 44.205 kr.Skattleysismörk á mánuði: 123.416 kr. miðað við launþega með 4% lífeyrissparnað, 118.480 kr. miðað við ellilífeyrisþega. Tekjuskattsprósenta: 22,9%, 25,8% og 31,8% Meðalútsvar: 14,41% Staðgreiðsluhlutfall*: 37,31%, 40,21% og 46,21% *Tekjuskattsprósenta + meðalútsvar. |
Skýring:Launþegi greiðir því 22,9% tekjuskatt af fyrstu 209.400 krónum launa. Hann greiðir 25,8% tekjuskatt af launahluta sem er frá 209.401 að 680.550 krónum. Launþegi greiðir 31,8% tekjuskatt af þeim launahluta sem fer yfir 680.551 á mánuði. Af laununum er einnig greitt útsvar sem er 14,41% að meðaltali árið 2011.Dæmi: Mánaðarlaun 350.000. kr - skattskyld greiðsla verður: 37,31% af 209.400 kr. og 40,21% af 120.000 kr. Mánaðarlaun 730.000. kr - skattskyld greiðsla verður: 37,22% af fyrstu 200.000 kr., 40,12% af næstu 471.150 kr. og 46,21% af síðustu 69.450 kr. |
|---|
Samsköttun við álagningu opinberra gjalda
- Samskatta skal við álagningu opinberra gjalda ef annar makinn (A) er með tekjur í skattþrepi 3 yfir 8.452.400 kr. og hinn makinn (B) er með tekjur undir 8.452.400 kr. en yfir 2.750.000 kr. í þrepi 2.
- 50% af því sem B nýtir ekki skal færa frá B til A og skattleggja hjá honum í skattþrepi 2 það sem umfram er 8.452.400 kr., þó að hámarki 2.846.200 kr.
Skattstigar, útreikningur á tekjuskatti og útsvari í staðgreiðslu 2011, rsk.is
Staðgreiðsla 2012 á vef ríkisskattstjóra
Skattframtalið
- Skylda er að skila inn skattframtali til ríkisskattstjóra í marsmánuði ár hvert. Á skattframtali eru gefnar upplýsingar um tekjur, eignir og skuldir frá fyrra ári.
- Almennt er skattframtali skilað með rafrænum hætti en sé það ekki unnt má skila því á pappírsformi.
- 1. ágúst fá einstaklingar senda innheimtu- og álagningarseðla frá ríkisskattstjóra. Á þeim koma fram upplýsingar um skattauppgjörið.
- Ef skattgreiðandi hefur greitt of mikið í skatt þá fær hann það greitt til baka. Ef of lítið hefur verið greitt í skatt, þá þarf skattgreiðandinn að greiða það sem á vantar.
Vefframtalinu er skilað á þjónustuvef ríkisskattstjóra (nýr gluggi)
Aðrir skattar
- Einstaklingar greiða 20% skatt af fjármagnstekjum.Þó skal ekki reikna tekjuskatt af heildarvaxtatekjum að fjárhæð 100.000 kr. á ári hjá manni og 30% af tekjum manns af útleigu íbúðarhúsnæðis.
- Fjármagnstekjur eru:
- Vaxtatekjur
- Arður
- Söluhagnaður
- Leigutekjur
- Auðlegðarskattur hefur verið lögfestur tímabundið í þrjú ár. Skatturinn er lagður á eignir einstaklinga í árslok 2011, 2012 og 2013 í tveimur þrepum. Af auðlegðarskattsstofni einstaklings frá og með 75 milljónum kr. til og með 150 milljónum kr. og samanlögðum auðlegðarskattsstofni hjóna frá og með 100 milljónum kr. til og með 200 milljónum kr. greiðist 1,5%. Af því sem umfram er 150 milljónir kr. hjá einstaklingi og 200 milljónir kr. hjá hjónum greiðist 2%.
- Erfðafjárskattur er 10% en ekki er greiddur skattur af fyrstu einni og hálfri milljóninni af skattstofni dánarbús.
- Sumir happdrættisvinningar eru skattlagðir. Listi yfir happdrætti sem greiða skattfrjálsa vinninga er birtur í leiðbeiningum með skattframtali einstaklinga.
Vert að skoða
- Fjármálaráðuneyti
- Ríkisskattstjóri
- Skattrannsóknarstjóri
- Útsvarsprósentur sveitarfélaga
- Útsvarpsprósentur sveitarfélaga 2011 og 2012
Lög og reglugerðir
- Lög um endurgreiðslu oftekinna skatta og gjalda
- Lög um erfðafjárskatt
- Lög um staðgreiðslu opinberra gjalda
- Lög um staðgreiðslu skatts á fjármagnstekjur
- Lög um tekjuskatt
- Reglugerð um arðsfrádrátt
- Reglugerð um greiðslu barnabóta
- Reglugerð um greiðslu vaxtabóta
- Reglugerð um launaafdrátt
- Reglugerð um persónuafslátt og sjómannaafslátt
- Reglugerð um réttindi og skyldur manna, sem dveljast erlendis við nám

