Skattar á vöru og þjónustu

Skattar á vöru og þjónustu

Það eru ýmis gjöld og skattar sem leggjast á vöru og þjónustu. Þeir helstu eru virðisaukaskattur og vörugjöld.

Virðisaukaskattur

  • Virðisaukaskattur er almennur neysluskattur og leggst á öll viðskipti innan lands. Hann er einnig lagður á innflutta vöru og þjónustu.
  • Þrep virðisaukaskatts eru tvö, 7% og 25,5%.
  • Almennt er virðisaukaskatturinn 25,5%.
  • Öll matvæli bera 7% virðisaukaskatt ásamt afnotagjöldum, sölu tímarita, hjómdiska og bóka, jafnt frumsaminna sem þýddra, þ.m.t. nótnabóka með og án texta, sem og hljóðupptökur af lestri slíkra bóka, sölu geisladiska og öðrum sambærilegum miðlum með bókartexta, sölu rafrænna útgáfa slíkra bóka, sölu á heitu vatni , rafmagni og olíu til hitunar húsa og laugarvatns. Einnig ber veitinga- og hótelþjónusta 7% virðisaukaskatt.
  • Undanþegin virðisaukaskatti eru:
    • Heilbrigðisþjónusta og félagsleg þjónusta.
    • Rekstur skóla og ýmis kennsla.
    • Íþróttastarfsemi og ýmis menningarstarfsemi.
    • Fólksflutningar og póstþjónusta.
    • Fasteignaleiga og útleiga bifreiðastæða.
    • Vátryggingastarfsemi, þjónusta lánastofnana og verðbréfamiðlun.
    • Happdrætti og getraunastarfsemi.
    • Ýmis listastarfsemi og þjónusta ferðaskrifstofa.
    • Útfararþjónusta og prestþjónusta hvers konar.
Rafræn skil virðisaukaskatts
Um virðisaukaskatt, rsk.is

Vörugjöld

  • Almennt vörugjald er gjald sem leggst á vörur við innflutning eða framleiðslu innanlands. Vörugjöld á matvæli hafa verið afnumin nema á sykur og sætindi.
  • Greiða þarf áfengisgjald af neysluhæfu áfengi sem flutt er til landsins eða framleitt er hér á landi, hvort sem það er ætlað til sölu eða eigin nota.
  • Við innflutning ökutækja leggjast á vörugjöld eftir skráðri koltvísýringslosun.


Reiknivél Tollstjóra

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica