Greiðsluerfiðleikar
Greiðsluerfiðleikar
Allir geta lent í erfiðleikum með fjármál sín og óvænt atvik geta komið upp sem hafa áhrif á fjárhag fólks og afkomu. Það eru ýmis úrræði fyrir hendi í samfélaginu til að takast á við vandann, en brýnast er þó að gera eitthvað strax í málunum.
Yfirlit
Greiðsluerfiðleikar
- Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna veitir fólki sem á í greiðsluerfiðleikum endurgjaldslausa ráðgjöf. Ráðgjöfin felst í að aðstoða fólk við að fá yfirsýn yfir fjárhagsstöðuna eins og hún er í dag og leita leiða til úrbóta. Um fjárhagsvanda á vef Ráðgjafarstofu
- Íbúðalánasjóður býður upp á nokkur úrræði vegna greiðsluerfiðleika. Helstu leiðir eru samningar, skuldbreyting, frestun á greiðslum og lenging lánstíma.
- Meðlagsgreiðandi getur leitað úrræða hjá Innheimtustofnun sveitarfélaga vegna vanskila.
- Bankar og aðrar lánastofnanir og fjármálafyrirtæki, veita ráðgjöf um leiðir til að leysa úr greiðsluerfiðleikum.
-
Hægt er að sækja um réttaraðstoð til nauðasamninganefndar til að standa straum af kostnaði við að koma á nauðasamningi.
Upplýsingar og umsókn um réttaraðstoð til að leita nauðasamninga
Greiðsluerfiðleikaúrræði Íbúðalánasjóðs
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna
Vert að skoða
- Innheimtustofnun sveitarfélaga
- Nauðasamninganefnd
- Neytendasamtökin
- Neytendastofa
- Samkomulag um notkun ábyrgða á skuldum einstaklinga
- Talsmaður neytenda
- Upplýsingar um vanskil einstaklinga hjá Tollstjóranum í Reykjavík
- Kvörtun til úrskurðarnefndar um viðskipti við fjármálafyrirtæki (pdf, 64 kb)
- Vefur sýslumanna

