Ökunám og -réttindi
Ökuréttindi fást að loknu ökunámi hjá ökukennara og í ökuskóla en almennur ökuprófsaldur hér á landi er 17 ár.
Ökunám
- Ökunám á fólksbifreið getur hafist við 16 ára aldur en ökuréttindi eru fyrst veitt við 17 ára aldur. Réttindaaldur fyrir létt bifhjól (skellinöðru) er 15 ár og fyrir dráttarvél 16 ár.
- Til að hefja ökunám þarf að hafa samband við löggiltan ökukennara. Ökukennari hefur umsjón með bæði verklegum og bóklegum hluta námsins og vísar á ökuskóla þar sem bóklegt nám fer fram.
- Ökunemar geta stundað æfingaakstur á bifreið með leiðbeinanda öðrum en ökukennara. Skilyrði fyrir leyfi til æfingaaksturs eru að:
- nemandi hafi að minnsta kosti lokið fyrri hluta bóklegs náms og hlotið næga verklega þjálfun að mati ökukennara,
- leiðbeinandi sé orðinn 24 ára og hafi að minnsta kosti 5 ára aksturseynslu,
- leiðbeinandi hafi leyfi sem sótt er um til sýslumanna á hverjum stað en í Reykjavík til lögreglustjórans.
Fræðsluefni og ökupróf á Netinu fyrir ökunema og aðra sem vilja rifja upp og bæta við þekkingu sína og hæfni í umferðinni.
Ökupróf
- Ökupróf eru haldin reglulega á vegum Frumherja sem hefur þjónustustaði um allt land og sér um framkvæmd prófa í umboði Umferðastofu.
- Að loknu bóklegu námi er skriflegt próf þreytt. Heimild til próftöku þarf að liggja fyrir en hún fæst með því að sækja um ökuskírteini til sýslumanns en í Reykjavík til sýslumannsins í Kópavogi.
- Eyðublöð fást þar og í ökuskólum og hægt er að sækja um hvar sem er á landinu óháð búsetu.
- Verklegt próf getur farið fram að loknu verklegu námi og þegar skriflegu prófi er náð.
Allt um ökunám og ökuréttindi hjá Umferðarstofu
Framkvæmd ökuprófa hjá Frumherja
Kennslumiðstöð Ökukennarafélags Íslands
Umsókn og afhending ökuskírteina í Reykjavík
Ökuréttindi
- Þeir sem standast ökupróf geta fengið útgefna bráðabirgðaakstursheimild samdægurs hjá lögreglustjóra gegn framvísun ökunámsbókar með áritun prófdómara.
- Ökuskírteini er afhent innan nokkura daga frá því ökupróf er tekið. Fyrsta ökuskírteini er til bráðabirgða og gildir í þrjú ár.
Útlit og gerð ökuskírteinis - Fullnaðarskírteini er gefið út í fyrsta lagi eftir eitt ár frá ökuprófi. Sækja þarf um fullnaðarskírteini hjá sýslumannsembættum en í Reykjavík hjá sýslumanninum í Kópavogi.
- Skilyrði fyrir útgáfu fullnaðarskírteinis er að ökumaður hafi ekki hlotið refsipunkta vegna umferðarlagabrota undangengið ár og hafi farið í akstursmat sem ökukennarar annast.
Endurnýjun
- Almenn ökuréttindi gilda til 70 ára aldurs en eftir það þarf að endurnýja ökuréttindi reglulega. Endurnýjun ökuréttinda eldri borgara
- Ef meira en tvö ár líða frá því að ökuréttindi renna úr gildi verður að taka hæfnispróf áður en réttindin fást endurnýjuð.
- Þeir sem sviptir hafa verið ökuleyfi verða að standast ökupróf að nýju ef svipting hefur staðið lengur en eitt ár.
- Byrjendur með bráðabirgðaskírteini, sem sviptir eru ökuréttindum eða hljóta akstursbann, verða að sækja sérstakt námskeið og standast ökupróf til að fá ökuréttindi á ný.
Umferðarlagabrot; akstursbann, refsipunktar og fleira á island.is
Réttindaflokkar
- Almenn ökuréttindi eru tilgreind sem B-réttindi í ökuskírteini og veita réttindi til að stjórna ýmsum ökutækjum auk fólksbifreiða.
Flokkar ökuréttinda - Til að öðlast aukin ökuréttindi, svo sem réttindi á vörubíla, rútur, eftirvagna og til farþegaflutninga í atvinnuskyni þarf að sækja þar til gerð námskeið í ökuskólum.
- Réttindi á vinnuvélar fást hjá Vinnueftirlitinu.
Réttindanámskeið hjá Vinnueftirlitinu
Vert að skoða
- Erlend ökuréttindi á Íslandi á vef Fjölmenningarseturs
- Umferðarráð
- Ökukennarafélag Íslands
- Ökuréttindi erlendis

