Vegabréf

Vegabréf

Vegabréf eru öruggustu ferðaskilríkin og nauðsynlegt að hafa þau meðferðis til útlanda þó svo reglur krefjist þess ekki í öllum tilvikum.


Um vegabréf



Vegabréfsumsókn

  • Sótt er um vegabréf hjá sýslumanninum í Kópavogi og öðrum sýslumannsembættum utan þess í Reykjavík, óháð búsetu eða lögheimili umsækjanda.
    Umsóknarstaðir vegabréfa
  • Sækja þarf um í eigin persónu og framvísa skilríkjum. Myndataka fer fram á afgreiðslustöðum vegabréfa. Heimilt er að koma með stafræna mynd fullnægi hún settum skilyrðum.
    Upplýsingar vegna mynda
  • Börn undir 18 ára aldri fá útgefin sérstök vegabréf. Báðir foreldrar þurfa að sækja um eða samþykkja umsókn um vegabréf nema einungis annað foreldri fari með forsjá en þá þarf að framvísa gögnum því til sönnunar.
    Vegabréf fyrir börn
  • Íslendingar sem staddir eru erlendis og þurfa á vegabréfi að halda snúa sér til sendiráða eða ræðismanna Íslands.
    Útgáfa íslenskra vegabréfa erlendis

Vegabréfsáritanir

  • Í mörgum tilvikum þarf sérstakt leyfi eða áritun í vegabréf til að ferðast til annarra landa. Útgáfa vegabréfsáritana er í höndum sendiráða og ræðismanna þeirra ríkja sem ferðast á til.

Ferðaskilríki

  • Vegabréfa er ekki krafist á ferð um Norðurlönd en þau eru einu persónuskilríkin sem tekin eru fullgild erlendis og því full ástæða til að hafa þau meðferðis.

Um vegabréfsáritanir og fleira hagnýtt á vef utanríkisráðuneytis

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica