Heilsa og öryggi
Heilsa og öryggi
Gott er kynna sér hvernig best er að tryggja öryggi og heilsu á ferðalögum og hvaða rétt landsmennn hafa til heilbrigðisþjónustu í útlöndum.
Yfirlit
Heilsa og öryggi á ferðalögum erlendis
Heilsa og tryggingar
- Oft er nauðsynlegt að láta bólusetja sig gegn sjúkdómum sem landlægir eru í ýmsum löndum. Sumar bólusetningar þarf að gera með góðum fyrirvara.
Um bólusetningar og heilsu á ferðalögum á vef Landlæknis - Þeir sem vegna sjúkdóma verða að hafa meðferðis lyf sem innihalda ávana- og fíkniefni þurfa að hafa sérstakt vottorð í fórum sínum sé ferðast milli Schengen-landa. Slíkt vottorð gefa læknar út og landlæknir staðfestir.
Um Schengen lyfjavottorð á vef Landlæknis - Evrópska sjúkratryggingakortið tryggir rétt til ákveðinnar heilbrigðisþjónustu á ferðalögum í löndum EES og Sviss. Ríkisborgarar Íslands og annarra EES-landa sem eru búsettir og sjúkratryggðir á Íslandi geta fengið kortið hjá TR.
Aðgengilegar upplýsingar vegna svínainflúensu á vef Landlæknis
Evrópska sjúkratryggingakortið á vef Sjúkratrygginga
- Ferðamenn í löndum utan EES þurfa yfirleitt að greiða að fullu fyrir veitta læknisaðstoð en sækja má um endurgreiðslu sjúkrakostnaðar hjá TR við heimkomu. Ráðlegt er að hafa tryggingaryfirlýsingu frá TR meðferðis þegar ferðast er til þessara landa.
Hagnýtar upplýsingar fyrir ferðamenn á vef Sjúkratrygginga
- Almannatryggingar greiða ekki fyrir heimflutning vegna alvarlegra veikinda eða andláts.
- Tryggingafélög bjóða ferðatryggingar sem tryggja fleiri þætti en íslensk sjúkratrygging og veita aðgang að neyðarþjónustu eða neyðarnúmeri sem hringja má í.
- Þegar ferðast er til annarra landa á eigin bifreið þarf að hafa alþjóðlegt ábyrgðarkort, svokallað grænt kort. Kortið er staðfesting á ábyrgðartryggingu bílsins sem gildir í ríkjum EES auk nokkurra annarra.
Öryggi
- Ef Íslendingur á ferðalagi lendir í neyð getur hann snúið sér til sendiráða og ræðisskrifstofa Íslands, sem og utanríkisráðuneytisins.
Íslensk sendiráð og ræðisskrifstofur - Ferðamönnum er ráðlagt að ferðast ekki til landa þar sem öryggi þeirra getur stafað hætta af átökum, stjórnmálaástandi eða öðru.
Ferðaleiðbeiningar og viðvaranir á vef utanríkisráðuneytis - Öll lönd Evrópusambandsins og ýmis önnur Evrópu-lönd hafa neyðarnúmerið 112. Upplýsingasíða um neyðarnúmer í löndum Evrópu og tengt efni (á ensku)
Skráning fyrir Íslendinga sem dvelja í lengri eða skemmri tíma erlendis
Fréttatilkynning utanríkisráðuneytis

