Veflyklar
Veflyklar
Allir Íslendingar 16 ára og eldri geta fengið veflykil. Hægt er að panta veflykil hjá ríkisskattstjóra og fá hann sendan í heimabanka.
Yfirlit
Hvað er veflykill?
- Veflykill ríkisskattstjóra er svokallaður varanlegur aðalveflykill, þ.e. veflykill sem þú valdir á skattur.is eða lykill sem ríkisskattstjóri hefur sent þér í heimabanka.
- Aðrir veflyklar, svo sem óbreyttur framtalsveflykill, skilalykill fagaðila eða veflyklar fyrir staðgreiðslu eða virðisauka, duga EKKI til auðkenningar á Ísland.is.
- Ef þú ert ekki viss um hvaða lykil þú hefur þá er rétt að skrá sig inn á skattur.is og kanna þar hvort viðkomandi lykill sé aðallykill. Sjá hér fyrir neðan.
- Ef lykillinn er ekki aðalveflykill þá er hann ekki nothæfur, jafnvel þótt hægt sé að skrá sig inn á skattur.is með honum. Þá er um tvennt að ræða, að breyta lyklinum í aðallykil eða óska eftir nýjum veflykli frá þinni kennitölu á skattur.is. Þar getur þú valið um að fá hann sendan í heimabankann þinn á netinu eða á lögheimili þitt.
- Athugið enn fremur að hjón eru hvort með sinn veflykil þó svo að annar veflykill hjóna hafi verið látinn duga til þess að skila skattframtali fyrir bæði hjá skattinum. Það er í raun undantekning, því almennt þarf fólk að framvísa sínum aðallykli til þess að fá aðgang að sínum gögnum.
Hvernig sæki ég um veflykil?
- Hafir þú gleymt eða glatað aðalveflykli þínum, þá er auðvelt að sækja um nýjan á skattur.is.
- Á skattur.is velur þú "Týndur veflykill" vinstra megin á skjánum og þá býðst þér að fá nýjan lykil sendan í heimabanka samstundis eða í pósti á lögheimili þitt.
- Ef þú ert með veflykil sem þú hefur fengið sendan í pósti, þá þarftu fyrst að fara inn á þjónustusíðu þína á skattur.is og breyta honum (þar með er hann orðinn varanlegur). Síðan getur þú nýtt hann til þess að auðkenna þig hér.
- Fyrirtækjum gefst einnig kostur á að óska eftir veflykli á skattur.is og berst hann innan nokkurra daga í bréfpósti.
Hvernig finn ég út hvaða veflykil ég er með?
- Ef þú færð villutilkynningu í auðkenningu á Ísland.is og þú telur þig hafa aðallykil þarftu að ganga úr skugga um það á vef skattsins. Skráðu þig inn á www.skattur.is og að þeim stað þar sem þú sérð hvaða veflykil þú hefur. Þetta er gert undir (Stillingar>Veflyklar) og eftirfarandi birtist notendum:

- Hér má sjá yfirlit yfir alla veflykla sem Ríkisskattstjóri notar. Þegar aðallykli sem aðili fékk úthlutað af ríkisskattstjóra er breytt í fyrsta sinn verður hann varanlegur. Aðallykill veitir jafnframt réttindi til að breyta lyklum og skrá sig inn á aðrar síður, t.d. í netskil á Ísland.is.
Veflyklar fyrirtækja
Fyrirtæki sem fá sendan veflykil í bréfpósti frá Ríkisskattstjóra verða að ganga úr skugga um að veflykillinn sé varanlegur aðallykill. Réttindi lykilsins eru stillt á skattur.is á sambærilegan hátt og myndin hér að ofan gefur til kynna. Ganga þarf úr skugga um að merkt sé í alla reiti.
Erfiðleikar við innskráningu þrátt fyrir að nýr veflykill hafi verið sóttur
- Notendur sem skrá sig inn með ógildum veflykli og sækja nýjan á vefsvæði Ríkisskattstjóra gætu lent í því að ná ekki að skrá sig inn með nýjum veflykli.
- Ástæðan fyrir því er að svokallað flýtiminni í þeim netvafra sem er í notkun (t.d. Mozilla Firefox, Microsoft Internet Explorer eða Safari) nær ekki að endurnýja sig. Hægt er að hreinsa flýtiminni vafrans með því að ýta á hnapp sem endurhleður síðunni (e. refresh) en halda þarf inni eftirfarandi tökkum á meðan það er gert:
- Windows: Ctrl + F5
- Mac/Apple: Apple + R eða command + R
- Linux: F5
- Ef ofangreint virkar ekki er best að slökkva á vafranum og opna nýjan og reyna aftur með nýja lyklinum.

Mittsvæði
