Netskil
Ég á erfitt með að vista skjalið á tölvunni minni
Mikilvægt er að notendur visti skjalið á tölvu sinni áður en það er fyllt út. Það er öruggara að gera það frekar en að opna skjalið beint í vafra, betra er að hafa eyðublaðið tilbúið vistað á tölvunni frekar en að byrja að fylla það út óvistað á vefnum ef vandamál koma upp síðar í ferlinu.
Skjöl á vefnum má vista á tölvu með því að hægrasmella á skjalið (tengilinn) og velja Vista sem, Save target as, Save link as eða Save as. Nákvæmur texti fer eftir því hvaða vafra þú notar og hvaða tungumál vafrinn hefur verið stilltur á.
Ef þú hefur valið að hefja útfyllingu skjalsins í vafra er flóknara að vista það, en það má þó gera með því að fara í File>Save As í þínu PDF-lestrartóli eða smella á til þess gerðan hnapp í aðgerðarstiku efst innan vafrans.
Eyðublaðið er eingöngu hægt að vista einu sinni
Ef notandi lendir í því að geta eingöngu vistað útfyllanlegt eyðublað á netinu einu sinni er það að öllum líkindum vegna þess að notandi er að nota PDF-lestrartól, annað en Adobe Reader 8,1 eða nýrra.
Notandi þarf að að bregðast við þessari villu á eftirfarandi hátt:
1. Nauðsynlegt er að hlaða skjölunum niður af vefnum (ekki opna þau í vafra) og vista þau óútfyllt á vísum stað í tölvunni.
2. Þegar komið er að því að fylla skjölin út eru þau opnuð frá þeim stað þar sem þau voru vistuð. Það er nauðsynlegt að klára útfyllingu skjalsins og ganga úr skugga um að allt sé rétt áður en það er vistað í fyrsta sinn. Í einhverjum tilvikum leyfa þessi tilteknu forrit notendum ekki að vista skjalið aftur og því er nauðsynlegt að koma öllum upplýsingum inn í skjalið áður en það er gert.
Ef skjalið er vistað áður en lokið er við að fylla það út er stundum ekki hægt að vinna með það áfram og notandinn þarf því að byrja með nýtt óútfyllt skjal. Stundum gæti þurft að vista skjalið með því að fara í File>Save As og velja nýtt nafn á skjalið.
Umsóknareyðublaðið mitt vistast ekki
Til að tryggja að eyðublaðið þitt vistist er best að nota forritið Adobe Reader. Ef þú lendir í því að eyðublaðið þitt vistast ekki þarftu að athuga hvaða PDF-lestrartól þú notar til að fylla út skjalið. Ef það eru önnur PDF-lestrartól heldur en:
Adobe Reader 8.1+
Apple Preview
Foxit Reader
þá er nauðsynlegt að reyna nálgast eina af þeim sem eru nefndar hér að ofan. Þó er mælst til þess að notendur nýti sér nýjustu útgáfu af Adobe Reader sem má nálgast á eftirfarandi slóð, fyrir PC-vélar, Apple og flest Linux-stýrikerfi: Adobe Reader
Röð skjala inn í skilaglugga og tengdar villur
Ef notandi á í erfiðleikum með að senda skjal í gegnum skilagluggann er líklegt að um sé að ræða mörg skjöl sem notandinn sé að senda og röð þeirra sé röng, eða að notandi sé að senda fylgiskjöl án þess að umsóknareyðublað fylgi með. Ef ofangreint á við kemur upp eftirfarandi villa í skilaglugganum:
Ekki tókst að senda skjal
Í skjalið vantar upplýsingar um það hvert það á að berast. Athugið hvort rétt skjal hafi verið valið og reynið aftur.
Rangt skjal hefur verið sett inn í fyrsta skjalaskilareitinn. Skjalið sem fer í fyrsta skjalaskilareitinn verður að vera útfyllanlegt eyðublað sem sótt var á netinu, ekki fylgiskjal sem tilheyrir umsókn og er í öðru formi en PDF. Til að bregðast við ofangreindum aðstæðum þarf notandi að huga að tvennu:
1. Að útfyllanlegt umsóknareyðublað frá opinberri stofnun sé í fyrsta reit í skjalaskilunum (merkt „umsókn“ - tryggir að Ísland.is viti hvert eigi að senda skjalið) og önnur skjöl fylgi í kjölfarið, t.d. mynd, excel skjal eða skönnuð skjöl.
2. Ef notandi hefur nú þegar sent inn útfyllanlegt umsóknareyðublað en gleymir að senda nauðsynleg fylgiskjöl og reynir innsendingu skjala aftur – þá verður umsóknareyðublaðið að fylgja með sendingunni aftur og ganga þarf úr skugga um að það sé í fyrsta reit í skilaglugganum.
Styðjast verður við PDF-skjölin á vefnum og má ekki breyta þeim á nokkurn hátt, hvorki skanna inn upplýsingar inn í þau eða eyða úr þeim upplýsingum - ef það er gert verða þau ónothæf og upp kemur villa. Fái notandi ekki staðfestingu senda í tölvupósti innan 1-2 daga er ráð að hafa samband við viðkomandi stofnun.
Skilagluggi tilkynnir að staðfest netfang sé rangt fyllt út þó það sé rétt
Í skilaglugganum er notandi beðinn um að fylla netfang sitt tvisvar út, þetta er gert til að tryggja að engin innsláttarvilla sé í reitnum og að sú stofnun sem ber ábyrgð á meðhöndlun umsóknarinnar fái án nokkurs vafa rétt netfang notanda.
Það getur komið fyrir að skilaglugginn tilkynni notanda að netfangið hafi verið fyllt út rangt þó það sé ekki svo. Eftirfarandi ástæða liggur hér að baki:
Notandi hefur skrifað netfang sitt í viðeigandi innsláttarreit í skilaglugganum, hann hefur svo tekið það og afritað það og límt það yfir í staðfestingarreitinn. Ef notandi gerir þetta þá geta komið upp þær aðstæður að skilagluggi tilkynni að rangt netfang sé í staðfestingarreit.
Til að tryggja að þessar aðstæður komi ekki upp er notanda ráðlagt að skrifa netfang sitt með lyklaborðinu í báða reiti og nota ekki afritun.
Ekki tókst að senda skjal
Ef eftirfarandi texti kemur upp rauðletraður í þrepi 2, þegar búið er að hlaða inn skjölunum er um kerfisvillu að ræða:
Ekki tókst að senda skjal
???Skjalaskil.Villa.nánar???
Kerfisvillur má tilkynna til island@island.is en þær eru einnig sjálfvirkt skráðar í vöktunarkerfi. Ef þú lendir í þessari villu vinsamlegast reyndu að senda umsókn þína aftur síðar.

Mittsvæði
