Spurt og svarað - Auðkenning

Innskráning/auðkenning

Erfiðleikar við innskráningu þrátt fyrir að nýr veflykill hafi verið sóttur

Notendur sem skrá sig inn með ógildum veflykli og sækja nýjan á vefsvæði Ríkisskattstjóra gætu lent í því að ná ekki að skrá sig inn með nýjum veflykli.
Ástæðan fyrir því er að svokallað flýtiminni í þeim netvafra sem er í notkun (t.d. Mozilla Firefox, Microsoft Internet Explorer eða Safari) nær ekki að endurnýja sig. Hægt er að hreinsa flýtiminni vafrans með því að ýta á hnapp sem endurhleður síðunni (e. refresh) en halda þarf inni eftirfarandi tökkum á meðan það er gert:
Windows: ctrl + F5
Mac/Apple: Apple + R eða command + R
Linux: F5
Ef ofangreint virkar ekki er best að slökkva á vafranum og opna nýjan og reyna aftur með nýja lyklinum.

Veflykill minn virkar ekki til innskráningar/auðkenningar

Ef veflykill Ríkisskattstjóra virkar ekki eru eftirfarandi ástæður mögulegar:
1. Notandi skráir sig inn með röngum veflykli.
Eingöngu aðallykill (varanlegur veflykill) þinn virkar sem auðkenning á Ísland.is Aðrir veflyklar, s.s. óbreyttur framtalsveflykill, skilalykill fagaðila eða veflyklar fyrir staðgreiðslu eða virðisauka duga ekki til auðkenningar. Athugið enn fremur að hjón eru hvort með sinn veflykil þó svo að annar veflykill hjóna hafi verið látinn duga til þess að skila skattframtali fyrir bæði hjá skattinum. Það er í raun undantekningin, því almennt þarf fólk að framvísa sínum aðallykli til þess að fá aðgang að sínum gögnum. Þannig að ef þú ert ekki viss um hvaða lykil þú hefur þá er rétt að skrá sig inn á skattur.is og kanna þar hvort viðkomandi lykill sé aðallykill. Ef ekki þá er lykillinn ekki nothæfur, jafnvel þótt hægt sé að skrá sig inn á skattur.is með honum. Þá er um tvennt að gera, þ.e. að breyta lykli í aðallykil eða óska eftir nýjum veflykli frá þinni kennitölu frá Skattur.is. Þar getur þú valið um að fá hann sendan í heimabankann þinn á netinu eða á lögheimili þitt.
2. Veflykillinn minn er týndur og ég á ekki rafræn skilríki
Hafir þú gleymt eða glatað veflyklinum má sækja um nýjan á skattur.is (velja „týndur veflykill“ vinstra megin á skjánum). Nýr lykill er þá sendur um hæl í heimabanka þinn. Ef þú hefur ekki aðgang að heimabanka er hægt að óska eftir veflykli á sama hátt og lýst er hér að ofan í venjulegum pósti heim til þín en slíkt getur tekið nokkra daga að berast á heimili þitt.

Hvernig finn ég út hvaða veflykil ég hef?

Ef þú færð villutilkynningu í auðkenningu og þú telur þig hafa aðallykil þarftu að ganga úr skugga um það á vef skattsins. Skráðu þig inn á skattur.is og að þeim stað þar sem þú sérð hvaða veflykil þú hefur. Þetta er gert undir Stillingar>Veflyklar. Sjá frekari upplýsingar  Þegar aðallykli sem aðili fékk úthlutað af Ríkisskattstjóra er breytt í fyrsta sinn verður hann varanlegur. Aðallykill veitir jafnframt réttindi til að breyta lyklum og skrá sig inn í auðkenningu á Ísland.is.

Ég hef ekki kortalesara (rafrænt skilríki) og engan skattalykil. Hvað gerir maður þá?

Ef þú hefur aðgang að heimabanka á netinu, getur þú sótt um veflykil og fengið hann sendan strax í netþjónustu þess banka, þú sækir um það hér: Umsókn um týndan veflykil
Leiðbeiningar um hvernig þú nálgast lykilinn í þeim banka sem þú ert í viðskiptum við má finna hér: Leiðbeiningar


Veflyklar fyrirtækja

Fyrirtæki fá sendan veflykil í bréfpósti frá Ríkisskattstjóra og verða að ganga úr skugga um að veflykillinn sé varanlegur aðallykill rétt eins og einstaklingar. Hægt er að sækja um lykilinn á skattur.is. Í stillingum veflykils þarf að ganga þarf úr skugga um að merkt sé í alla reiti í "aðallykli".

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica