Rafræn skilríki

Rafræn skilríki

Rafræn skilríki eru hliðstæður annarra skírteina sem gera fólki kleift að sanna með rafrænum hætti einkenni sitt eða rétt sinn til aðgangs að upplýsingum eða þjónustu á netinu.

Rafræn skilríki, notkun og útbreiðsla


  • Með rafrænum skilríkjum geta notendur auðkennt sig líkt og þeir hafi framvísað vegabréfi á netinu og stundað rafræn samskipti við fyrirtæki og stofnanir.
  • Rafrænt skilríki byggir á öruggri tækni. Það einfaldar aðgengi og er hagræðing fyrir almenning, fyrirtæki og stofnanir. Skilríkin spara almenningi sporin, flýta fyrir þjónustu og auka öryggi í viðskiptum.
  • Rafrænt skilríki sem gefið er út á debetkorti uppfyllir íslenskar og evrópskar lagareglur. Það dugir bæði til auðkenningar og undirskriftar og kemur í stað notendanafns og lykilorðs. 
  • Sama skilríki nýtist hjá öllum sem bjóða upp á rafræna þjónustu. Nauðsynlegt er að hafa kortalesara sem tengist tölvu. 
  • Notandi auðkennir sig með fjögurra stafa leyninúmeri en til undirritunar rafrænna skjala þarf sex stafa leyninúmer.
  • Hægt er að fá rafræn skilríki á debetkorti hjá bönkum og sparisjóðum. Þeir sem ekki eiga debetkort geta keypt skilríki hjá Auðkenni
  • Nánari upplýsingar er að finna á vefnum skilríki.is 
  • Kynningarmyndband um rafræn skilríki



Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica