Hvernig virka rafræn skil?

Hvernig virka rafræn skil?

  1. Viðskiptavinur sækir eyðublað á PDF formi á Island.is (merkt Skjalaskil) eða vefsíðu stofnunar.
    Eyðublaðið er opið fyrir innslátt í reiti. Hann fyllir út nauðsynlegar upplýsingar og vistar skjalið á tölvunni sinni. Einnig safnar hann saman fylgiskjölum ef við á.
  2. Viðskiptavinur auðkennir sig á Island.is með annað hvort rafrænum skilríkjum eða veflykli ríkisskattstjóra. Auðkenningin er staðfesting á því að sendandinn sé sá sem hann segist vera.
    Rafræn skjalaskil gluggi 1
  3.  Viðskiptavinur hleður upp eyðublaðinu ásamt fylgiskjölum í sérstökum „skilaglugga" á Island.is og gefur einnig upp netfang.
    Rafræn skjalaskil gluggi 2
  4. Skjölin eru send á viðkomandi stofnun og viðskiptavinur fær staðfestingu í tölvupósti um að skjölin hafi verið móttekin.
    Rafræn skjalaskil mynd 3

Listi yfir stofnanir og sveitarfélag sem bjóða upp á rafræn skjalaskil:

Fasteignaskrá Íslands
Fornleifavernd ríkisins
Grindavíkurbær
Matvælastofnun
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Örnefnanefnd - Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum

 

Senda grein



Tungumál



Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica