Hvernig virka netskil?
Netskil er notendavæn og skilvirk rafræn þjónusta sem sparar fólki sporin. Notandi sækir eyðublað á netinu, fyllir það út, auðkennir sig og sendir viðkomandi stofnun rafrænt. Með netskilum er hægt að afgreiða sig á einum stað á Ísland.is, hvar sem er og hvenær sem er.
Yfirlit
Netskil
Eyðublað. Notandi sækir eyðublað á PDF formi á Ísland.is eða á vefsíðu stofnunar (merkt
). Eyðublaðið er opið fyrir innslátt í reiti. Eyðublaðið er útbúið fyrir PDF-lesara af gerðinni Adobe Reader 8,0 eða nýrri. Hægt er að sækja nýjustu útgáfuna af Adobe Reader hér.
- Notandi hægrismellir á skjalið og vistar á vísum stað í tölvunni. Ekki er ráðlegt að opna skjalið í vafra því að sumir vafrar leyfa ekki vistun skjals eða eyðileggja það á annan hátt.
- Notandi fyllir út nauðsynlegar upplýsingar og vistar útfyllt skjalið á nýjan leik. Nauðsynlegt er að fylla í alla reiti í rauðum römmum í skjalinu.
- Notandi safnar saman fylgiskjölum ef við á.
Athugið eftirfarandi: Hægt er að nota aðra PDF-lesara en Adobe, en ekki er hægt að tryggja alla virkni og notendur geta lent í vandræðum með vistun skjala.
Ferlið við netskil
1. Auðkenning. Notandi smellir á hnapp merktan Netskil á vefnum Ísland.is eða á vef viðkomandi stofnunar. Hnappinn er að finna í námunda við eyðublöðin.

Nú opnast innskráningargluggi á Ísland.is þar sem notandi getur auðkennt sig með rafrænum skilríkjum eða veflykli ríkisskattstjóra. Auðkenningin er staðfesting á því að sendandi eyðublaðsins sé sá sem hann segist vera. Rafræn skilríki má fá á debetkortum hjá bönkum og sótt er um veflykil ríkisskattstjóra á vefnum skattur.is. Nauðsynlegt er að tryggja aðgengi sitt að rafrænu skilríki eða veflykli áður en hafist er handa við netskilin.
Skjámyndin sýnir innskráningarglugga þar sem notandinn er auðkenndur.

2. Netskil. Að auðkenningu lokinni opnast skilagluggi á Ísland.is. Mikilvægt er að notandi hlaði upp útfyllta eyðublaðinu í reitinn Eyðublað, og smelli svo á hnappinn Bæta við fylgiskjali til að hlaða upp hugsanlegum fylgiskjölum.
Skjámyndin sýnir hvar notandi hefur skrifað netfang sitt tvisvar og hlaðið upp útfylltu eyðublaði. Staðfestingarpóstur um móttöku skjalsins verður sendur á uppgefið netfang.
Athugið eftirfarandi: Skilaglugginn gefur upp villu ef reynt er að setja í eyðublaðareitinn önnur skjöl en PDF-skjölin sem eru á vefnum og merkt með tákninu
. Einungis má fylla í útfyllanlega reiti í þessum skjölum, en ekki breyta þeim á annan hátt, hvorki skanna inn upplýsingar í þau né eyða úr þeim upplýsingum. Ef það er gert verða þau ónothæf og upp kemur villa. Ef staðfestingarglugginn hér fyrir neðan birtist ekki er líklegt að villa hafi komið upp í kerfinu. Ef grunur leikur á því má hafa samband við Ísland.is, island@island.is eða viðkomandi stofnun.

3. Staðfesting. Skjölin eru send á viðkomandi stofnun og viðskiptavinur fær staðfestingu í tölvupósti um að skjölin hafi verið móttekin.
Skjámyndin sýnir staðfestingu til notanda. Hafið samband við stofnunina ef staðfesting berst ekki í tölvupósti innan eins til tveggja virkra daga.
Listi yfir stofnanir og sveitarfélag sem bjóða upp á netskil:
Breiðdalshreppur
Fornleifavernd ríkisins
Grindavíkurbær
Matvælastofnun
Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Sýslumenn
Þjóðskrá Íslands
Örnefnanefnd - Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum


