Auðkenning

Auðkenning

Ísland.is sér um að auðkenna inn á lokaðar síður stofnana og sveitarfélaga ásamt því að auðkenna notendur sem senda inn rafræn skjöl. Notendur geta valið um tvær leiðir eru til auðkenningar, annars vegar rafræn skilríki á debetkorti og hins vegar veflykil ríkisskattstjóra.

Rafræn skilríki

  • Hægt er að fá rafræn skilríki á debetkorti hjá bönkum og sparisjóðum. Þeir sem ekki eiga debetkort geta keypt skilríki hjá Auðkenni og leitað sér frekari upplýsinga á skilríki.is.
  • Kynningarmyndband um rafræn skilríki.

Veflykill ríkisskattstjóra

  • Allir Íslendingar 16 ára og eldri geta fengið veflykil. Hægt er að óska eftir veflykli hjá ríkisskattstjóra og fá hann sendan strax í heimabanka.

Notkun veflykils

  • Notandi slær inn kennitölu í auðkenningarglugganum og gefur upp veflykilinn. Ef slegin er inn gölluð kennitala, þá verður ramminn utan um hana rauður.
  • Ef notandi fær tilkynningu um að veflykill sé ógildur þá hefur annað hvort rangur veflykill verið sleginn inn eða veflykillinn er ekki svokallaður varanlegur aðalveflykill.
  • Þessi auðkenning er í samvinnu við Ísland.is og ríkisskattstjóra. Veflykillinn sjálfur er aldrei afhentur þeirri stofnun sem auðkennt er fyrir.

Senda fyrirspurn


Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica