Fréttir

Þjóðarátakið “Allir vinna” hafið

8.7.2010

Með átakinu eru landsmenn hvattir til að taka þátt í stórum sem smáum verkum og þeim bent á að beina viðskiptum sínum að innlendri vöru og þjónustu, fjárfesta í viðhaldi íbúðarhúsnæðis/sumarhúsa og leggja þar með sitt af mörkum til atvinnusköpunar á Íslandi. Átakið felur í sér 100% endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu við eigið íbúðarhúsnæði og sumarhús og skattafrádrátt til þeirra sem fjárfesta í viðhaldi á eigin húsnæði sem nemur allt að 200 þúsund króna lækkun á tekjuskattstofni hjá einstaklingum og 300 þúsund króna lækkun hjá hjónum og samsköttuðum. Átakinu er einnig ætlað að stemma stigu við svartri vinnu. Þeir sem bregðast við hvatningunni fá persónulega ráðgjöf fagmanna um handbragð við viðhaldsframkvæmdir undir leiðsögn byggingadeildar Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Leitað hefur verið til fjármálastofnanna varðandi framkvæmdalán til almennings á hagstæðum kjörum og býður Byggðastofnun fyrirtækjum á landsbyggðinni verðtryggð lán til viðhaldsverkefna til 12 ára á 7% vöxtum. Sömuleiðis verða íslensk fyrirtæki með tilboð vikulega á viðeigandi vörum og þjónustu.
Að átakinu standa stjórnvöld, Alþýðusamband Íslands og aðildarfélög, VR, Samtök atvinnulífsins, Samtök iðnaðarins, Samtök verslunar og þjónustu og Nýsköpunarmiðstöð Íslands.

Allar nánari upplýsingar um átakið Allir vinna og reiknivél á vefnum allirvinna.is
Spurt og svarað um átakið Allir vinna


Tungumál




Þetta vefsvæði byggir á Eplica