Fréttir

Verðmæti seldra framleiðsluvara minnkar milli ára

1.7.2010

Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2009 var 574 milljarðar króna sem er rúmlega 28 milljörðum króna, eða 5,3% hærri upphæð en árið áður. Á sama tíma hækkaði vísitala framleiðsluverðs um 11,4% og því hefur heildarverðmæti seldra framleiðsluafurða dregist saman um 6,1% að raungildi milli áranna 2008 og 2009. Framleiðsla fiskafurða og framleiðsla á málmum vega sem fyrr þyngst, þannig námu fiskafurðir 34,8% af heildarverðmæti og framleiðsla málma 33,4%. Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2009 án fiskafurða og framleiðslu málma nam tæplega 183 milljörðum króna og dróst saman um 4 milljarða frá fyrra ári.

Hagtíðindi - Verðmæti seldra framleiðsluvara



Tungumál




Þetta vefsvæði byggir á Eplica