Hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar hækkar
Ný reglugerð hefur tekið gildi um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar vegna innheimtu gjaldfallinna peningakrafna ef sá kostnaður er innheimtur hjá skuldara. Hækkun á einstökum liðum nemur á bilinu 4-10%. Breytingarnar taka til kostnaðar vegna innheimtuviðvörunar, milliinnheimtubréfa og gerð skriflegs samkomulags um greiðslu kröfu.
Frétt Ráðgjafarstofu heimilanna
Reglugerð um breytingu á hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar
Reglugerð um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar
