Fréttir
Íbúðalánasjóður lánaði fjórðungi minna fé í febrúar en janúar
Íbúðalánasjóður lánaði rúmlega 1,6 milljarða króna í febrúar. Þar af voru tæplega 1,4 milljarðar króna vegna almennra lána og um 250 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins lækkuðu því um 24% á milli mánaða. Meðalútlán almennra lána voru um 9 milljónir króna í febrúar sem er tæplega 22% hækkun frá fyrra mánuði.
Frétt Íbúðalánasjóðs
