Upplýsingamiðstöð stjórnvalda

Fyrirspurnum er svarað eftir föngum eða erindum vísað í réttan farveg.

Senda fyrirspurn

Fréttir

Tæplega 70 milljarða króna afgangur á vöruskiptum við útlönd

Hagnaður af vöruskiptum við útlönd nam 68,5 milljörðum króna fyrstu sjö mánuði ársins. Á sama tíma í fyrra voru þau hagstæð um 41,3 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,2 milljörðum króna hagstæðari nú. Lesa meira
 

Aflaverðmæti jókst um tæpan þriðjung

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 57 milljörðum króna á fyrstu fimm mánuðum ársins samanborið við 43,1 milljarð á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 32,4% á milli ára. Lesa meira
 

Hagstæður þjónustujöfnuður

Þjónustujöfnuður við útlönd á öðrum ársfjórðungi 2010 var jákvæður um 13,6 milljarða króna. Lesa meira
 

Verðhjöðnun á ársgrundvelli

Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitala neysluverðs lækkað um 0,7% sem jafngildir 2,9% verðhjöðnun á ári. Lesa meira
 

Staðfesta þarf umsóknir um greiðsluaðlögun einstaklinga

Nú ættu allir sem höfðu lagt inn umsókn um greiðsluaðlögun fyrir 1. ágúst 2010 að hafa fengið bréf frá umboðsmanni skuldara. Mikilvægt er að þeir umsækjendur, sem vilja að umboðsmaður skuldara vinni eldri umsókn eftir nýju lögunum, skili undirritaðri staðfestingu og samþykki sem fyrst. Lesa meira
 

Seðlabankinn lækkar stýrivexti í 7%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans úr 8,0% í 7,0%. Í yfirlýsingu nefndarinnar segir meðal annars að efnahagsbati virðist hafinn en sé enn sem komið er veikur. Lesa meira
 

Aflaverðmæti talsvert minna en í fyrra

Heildarafli íslenskra skipa í júlímánuði, metinn á föstu verði, var 13,2% minni en í júlí 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 13% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði. Lesa meira
 

Spurningar og svör um ný úrræði

Listi með spurningum og svörum um úrræði fyrir einstaklinga og fjölskyldur í greiðsluvanda hefur nú verið uppfærður. Þar er fjallað um úrræði sem standa fólki til boða í samræmi við ný lög og lagabreytingar sem tóku gildi 1. ágúst síðastliðinn.
Lesa meira
 

Þjóðarátakið “Allir vinna” hafið

Með átakinu eru landsmenn hvattir til að taka þátt í stórum sem smáum verkum og þeim bent á að beina viðskiptum sínum að innlendri vöru og þjónustu, fjárfesta í viðhaldi íbúðarhúsnæðis/sumarhúsa og leggja þar með sitt af mörkum til atvinnusköpunar á Íslandi.
Lesa meira
 

Verðmæti seldra framleiðsluvara minnkar milli ára

Heildarverðmæti seldra framleiðsluvara árið 2009 var 574 milljarðar króna sem er rúmlega 28 milljörðum króna, eða 5,3% hærri upphæð en árið áður. Á sama tíma hækkaði vísitala framleiðsluverðs um 11,4% og því hefur heildarverðmæti seldra framleiðsluafurða dregist saman um 6,1% að raungildi milli áranna 2008 og 2009. Lesa meira
 

Vöruskiptajöfnuður hagstæður um 16,6 milljarða í maí

Fyrstu fimm mánuðina ársins nam hagstæður vöruskiptajöfnuður 54,9 milljörðum króna en á sama tíma í fyrra voru þau hagstæð um 35,9 milljarða á sama gengi. Lesa meira
 

Yfirlýsing ríkisstjórnar vegna tilmæla Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitsins

Dómstólar eiga að sjálfsögðu síðasta orðið varðandi réttarágreining sem enn er uppi vegna gengisbundinna lána og verður réttur aðila til að bera mál undir dómstóla auðvitað ekki frá þeim tekinn og er mikilvægt að niðurstaða fáist sem fyrst, segir meðal annars í yfirlýsingunni. Lesa meira
 

Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands senda fjármálafyrirtækjum tilmæli

Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Íslands mælast til þess að fjármálafyrirtæki endurreikni lánasamninga sem að mati viðkomandi fjármálafyrirtækis innihaldi óskuldbindandi gengistryggingarákvæði sbr. dóma Hæstaréttar. Í stað gengistryggingar og erlends vaxtaviðmiðs skal miða við vexti sem Seðlabanki Íslands ákveður með hliðsjón af lægstu vöxtum á nýjum almennum óverðtryggðum útlánum eða ef verðtrygging er valin lægstu vöxtum á nýjum almennum verðtryggðum útlánum og beitt er þegar óvissa ríkir um lánakjör, nema samið sé um annað.

Lesa meira
 

Lög til að létta undir með skuldugum heimilum

Fimm frumvörp er lúta að skuldavanda heimilanna voru samþykkt sem lög frá Alþingi fimmtudaginn 24. júní 2010.

Lesa meira
 

Stýrivextir lækkaðir í 8,0%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans úr 8,5% í 8.0% eða um 0,5 prósentur. Lesa meira
 

Styrkir og stuðningsmöguleikar innanlands og erlendis

Nýsköpunarmiðstöð Íslands hefur tekið saman yfirlit yfir innlenda, norræna og evrópska styrkja- og stuðningsmöguleika til að auðvelda einstaklingum og fyrirtækjum að sjá hvað í boði er. Þetta eru allt frá litlum frumkvöðlastyrkjum til stórra evrópskra áætlana í fjölmörgum atvinnugreinum, t.d. á sviði menningar og skapandi greina, orku, byggðamála og nýsköpunar.

Lesa meira
 

Tekjur úr séreignalífeyrissjóðum skerða ekki atvinnuleysisbætur og húsaleigubætur

Hætt verður að skerða atvinnuleysisbætur og húsaleigubætur vegna tekna úr séreignarlífeyrissjóðum samkvæmt frumvarpi félags- og tryggingamálaráðherra til breytinga á lögum um atvinnuleysistryggingar og lögum um húsaleigubætur sem Alþingi hefur samþykkt. Lesa meira
 

Dómar Hæstaréttar er varða lögmæti gengistryggðra lána

Stjórnvöld hafa fylgst náið með ferli þessara dómsmála og hafa látið greina ítarlega áhrif mögulegra niðurstaðna Hæstaréttar.  Ákvarðanir um aðgerðir af hálfu stjórnvalda verða teknar á grundvelli þessarar greiningar.  Nánar verður skýrt frá þeim ákvörðunum á allra næstu dögum.

Lesa meira
 

Gjaldmiðlaskiptasamningur milli Íslands og Kína

Skrifað var undir tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamning á milli Seðlabanka Kína og Seðlabanka Íslands í morgun upp á 66 milljarða króna eða 3,5 milljarða kínverskra júan. Lesa meira
 

Fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi 2010

Á fyrsta ársfjórðungi 2010 var hið opinbera rekið með 24,2 milljarða króna halla samanborið við 23,9 milljarða króna tekjuhalla á sama tíma í fyrra. Lesa meira
 

Landsframleiðsla jókst á fyrsta ársfjórðungi

Landsframleiðsla er talin hafa aukist um 0,6% að raungildi á 1. ársfjórðungi 2010 miðað við síðasta fjórðung í fyrra. Lesa meira
 

Hagstæður vöruskiptajöfnuður vex um þriðjung á fyrsta ársþriðjungi

Fyrstu fjóra mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 176,8 milljarða króna en inn fyrir 139,1 milljarð króna. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd nemur því 37,7 milljörðum en á fyrsta þriðjungi síðasta árs voru þau hagstæð um 28,5 milljarða á sama gengi. Lesa meira
 

Markaðsátak ferðaþjónustunnar: Inspired by Iceland

Áherslur átaksins snúa að Íslandi sem ferðamannastað og öllu því sem það hefur upp á bjóða s.s. menningu, náttúru, mat, afþreyingu og vellíðan. Engin fyrirtæki verða sérstaklega kynnt heldur lögð áhersla á áfangastaðinn Ísland.

Lesa meira
 

Ríflega hundraðasti hver kjósandi býður sig fram

Alls eru 185 listar í framboði í sveitarstjórnakosningunum 29. maí næstkomandi og á þeim eiga 2846 einstaklingar sæti, eða ríflega 1,2% kjörgengra manna í landinu. Lesa meira
 

Tæplega 19 þúsund nýir kjósendur

Samkvæmt kjörskrárstofni verða 113.663 konur á kjörskrá fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 29. maí og 112.267 karlar eða alls 225.930 manns. Þeir kjósendur sem fá að kjósa í fyrsta sinn til sveitarstjórnar sökum aldurs eru 18.772 eða 8,3% kjósenda.
Lesa meira
 

Afli minnkar mikið milli aprílmánaða

Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa var, metið á föstu verðlagi, 16,5% minni í apríl en á sama tíma í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum Fiskistofu. Það sem af er árinu nemur samdrátturinn um 14,7% miðað við sama tímabil 2009, miðað við fast verð. Lesa meira
 

Útlán Íbúðalánasjóðs minnka um þriðjung

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í apríl námu rúmum 1,2 milljörðum króna.  Samtals námu útlán á fyrstu fjórum mánuðum ársins um 8 milljörðum króna samanborið við rúma 12 milljarða á sama tíma í fyrra. Lesa meira
 

Atvinnuleysi minnkar

Atvinnuleysi í apríl var 9% og minnkaði um 2,6% frá því í mars þegar það var 9,3%. Að meðaltali voru 14.669 atvinnulausir í mars sem er fækkun um 390 frá síðastliðnum mánuði.  Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 9,1%.

Lesa meira
 

Listar fyrir sveitarstjórnarkosningar

Skipan margra lista fyrir sveitarstjórnarkosningar, 29 maí nk., er nú aðgengileg á kosningavef dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins, kosning.is, en upplýsingar um þá eru settar inn jafnóðum og þær berast ráðuneytinu.

Lesa meira
 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla í Laugardalshöll hafin

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí nk. er hafin í Laugardalshöll. Atkvæðagreiðslan er á vegum sýslumannsins í Reykjavík og verður opið alla daga frá kl. 10:00 til kl. 22:00.

Lesa meira
 

Stýrivextir lækkaðir um 0,5%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans úr 9,0% í 8,5%. Lesa meira
 

Atvinnutækifærum námsmanna og atvinnuleitenda fjölgar

Til að auka möguleika námsmanna og atvinnuleitanda á atvinnuleysisskrá, á starfi í sumar hefur Vinnumálastofnun ráðist í átaksverkefni í samstarfi við opinbera aðila.  Það felst í að bjóða fjölda starfa hjá stofnunum ríkis og sveitarfélaga. Lesa meira
 

Lausnir fyrir lántakendur – fundaröð

Á næstu vikum verða haldnir 10 borgarafundir víðs vegar um landið þar sem félags- og tryggingamálaráðherra fjallar um skuldastöðu heimilanna, kynnir helstu úrræði og svarar fyrirspurnum.

Lesa meira
 

Hlutfall atvinnuþátttöku 2009 það lægsta síðan mælingar hófust

Síðan reglulegar mælingar Hagstofunnar hófust árið 1991 hefur hlutfall starfandi fólks á vinnumarkaði aldrei mælst minna og atvinnuleysi meira en árið 2009. Mest atvinnuleysi fram að því var á árunum 1992 til 1995 eða á bilinu 4,3% til 5,3%. Lesa meira
 

Ferðagjaldeyrir lækkaður

Seðlabanki Íslands hefur lækkað hámarksfjárhæð heimildar til kaupa á erlendum gjaldeyri í reiðufé vegna ferðalaga úr 500.000 krónum í hverjum almanaksmánuði í 350.000 krónur. Þetta er í samræmi við ákvæði laga um gjaldeyrismál þar sem mælt er fyrir um að reglur um gjaldeyrismál skuli endurskoðaðar á sex mánaða fresti. Lesa meira
 

Gjaldþrotum fyrirtækja fjölgar um 6% milli marsmánaða

Í mars 2010 voru 106 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 100 fyrirtæki í mars 2009, sem jafngildir 6% fjölgun milli ára.

Lesa meira
 

Áhrif lækkana lífeyrissjóðstekna á rétt til greiðslu frá Tryggingastofnun

Undanfarið hafa borist fréttir af væntanlegum lækkunum lífeyrisgreiðslna frá stærstu lífeyrissjóðum landsmanna og af því tilefni kannar Tryggingastofnun nú hvort mögulegt sé að leiðrétta núgildandi greiðsluáætlun lífeyrisþega hjá stofnuninni í samráði við lífeyrissjóðina. Leiðrétting sem myndi spara öllum hlutaðeigandi töluverða fyrirhöfn og vinnu.

Lesa meira
 

Atvinnuleysi 7,6% fyrsta ársfjórðunginn og langtímaatvinnuleysi eykst

Á fyrsta ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 13.600 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 7,6% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 9,4% hjá körlum og 5,7% hjá konum. Lesa meira
 

Sama atvinnuleysi í mars og febrúar

Atvinnuleysi í mars var 9,3 og stóð svo að segja í stað frá febrúar. Að meðaltali voru 15.059 atvinnulausir í mars sem er fjölgun um 33 frá síðastliðnum mánuði.  Á sama tíma á árinu 2009 var atvinnuleysi 8,9% eða 14.546 að meðaltali. Lesa meira
 

Volcanic eruption - information in english

National route 1 is closed from Þverá, which is to the east of Hvolsvöllur to Þorvaldseyri. The road close to Bleiksá  river, in Fljótshlíð, is impassable in places. The weather forecast for the affected area indicates westerly winds during the day becoming northerly in the evening. 

Lesa meira
 

Volcanic eruption - information in english

The force of the volcanic eruption under the Eyjafjallajökull glacier appears to be steady, although last night and this morning there has been explosive activity that is associated with volcanic ash fall.

The Police have restricted travel on roads into Vík and Myrdalsandur in the west, and to Kirkjubæjarklaustur in the east. Repair work continues on the bridges in Markarfljót .
 
International weather observatories in co-operation with the Icelandic Met Office are monitoring the weather conditions and the projected path of the volcanic ash cloud, which in the present conditions is being carried towards Europe and Scandinavia . Air travel restrictions have been implemented in several European countries.
Lesa meira
 

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs rúmir 3 milljarðar króna í mars

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 3 milljörðum króna í mars. Þar af voru tæplega 1,8 milljarðar króna vegna almennra lána. Samtals námu útlán á fyrsta ársfjórðungi 2010 um 6,8 milljörðum króna samanborið við 9,4 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2009. Lesa meira
 

Fimmtungi minna aflaverðmæti í mars 2010 en á sama tíma í fyrra

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum marsmánuði, metinn á föstu verði, var 21,5% minni en í mars 2009. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 14.2% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði. Lesa meira
 

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis

Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis um aðdraganda og orsök falls íslensku bankanna árið 2008 hefur verið birt. Vefútgáfu skýrslunnar er ætlað að vera aðalútgáfa skýrslunnar enda birtist þar efni sem ekki er í hinni prentuðu útgáfu, m.a. ensk þýðing á hluta skýrslunnar, tölfræðilegt efni og bréfaskipti nefndarinnar og 12 einstaklinga sem veittur var andmælaréttur um atriði sem fram koma í skýrslunni.

Lesa meira
 

Ný samantekt um aðgerðir stjórnvalda

Nú hefur samantekt um einstakar aðgerðir stjórnvalda frá hruni íslenska efnahagskerfisins í október 2008 verið uppfærð. Þar getur að líta yfirlit þess helsta sem unnið hefur verið að á vegum hvers ráðuneytis og snertir efnahagsáfallið.

Lesa meira
 

Samkomulag um aðra endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands

Samkomulag hefur náðst um að önnur endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) verði tekin fyrir í stjórn sjóðsins. Stefnt er að því að endurskoðunin verði rædd í framkvæmdastjórn AGS 16. apríl næstkomandi.

Lesa meira
 

Ísland sækir á í nýsköpun

Ísland er í 14. sæti í hópi 33 Evrópulanda í nýjustu mælingu Evrópusambandsins á nýsköpunarvirkni þjóðanna. Styrkleikar Íslands eru á sviði fjármögnunar og stuðnings við nýsköpun og eins í tengslamyndun og frumkvöðlastarfi. Veikleikar Íslands liggja á sviði mannauðsmála, fjölda nýsköpunarfyrirtækja og efnahagslegum áhrifum af nýsköpun okkar. Lesa meira
 

Rúmlega 11 milljarða hagstæður vöruskiptajöfnuður í mars

Vöruskipti við útlönd voru hagstæð um 11,4 milljarða króna í mars samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Útflutningur nam 52,8 milljörðum króna og innflutningur 41,4 milljörðum króna. Lesa meira
 

Metfjöldi erlendra ferðamanna í mars

Samkvæmt talningu Ferðamálastofu fóru 26 þúsund erlendir gestir frá landinu um Leifsstöð í mars síðastliðnum og hafa þeir aldrei verið fleiri í mars mánuði. Í fyrra voru þeir tæplega 24 þúsund. Lesa meira
 

Fjölbreytt úrræði fyrir ungt fólk

Undir merkjum átaksins Ungt fólk til athafna stendur ungu atvinnulausu fólki til boða að sækja ýmis konar námskeið og þjálfun á vegum Vinnumálastofnunar. Á heimasíðu stofnunarinnar getur að líta þá kosti sem nú eru í boði og eru tenglar á hvern og einn hér fyrir neðan.

Lesa meira
 

90 milljarða króna hagstæður vöruskiptajöfnuður í fyrra

Afgangur á vöruskiptum við útlönd nam rúmum 90 milljörðum króna í fyrra. Fyrstu tvo mánuði þessa árs er vöruskiptajöfnuður hagstæður um tæplega 21 milljarð króna.  Lesa meira
 

Gjaldþrotum fyrirtækja og skráningum nýrra einkahlutafélaga fækkar milli febrúarmánaða

Í febrúar 2010 voru skráð 148 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 236 í febrúar 2009, sem jafngildir rúmlega 37% fækkun milli ára. Í síðasta mánuði voru 82 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 88 fyrirtæki í febrúar 2009, sem jafngildir rúmlega 7% fækkun milli ára. Lesa meira
 

Úr meiru að moða fyrir námsmenn í sumar

Reiknað er með að 400 námsmenn fái sumarvinnu við rannsóknar- og þróunarstörf með þreföldun ráðstöfunarfjár Nýsköpunarsjóðs námsmanna. Þá veitir Lánasjóður íslenskra námsmanna framfærslulán fyrir lánshæft nám í sumar. Lesa meira
 

Nýsköpunarsjóði atvinnulífsins fjárfesti fyrir 1 milljarð í fyrra

Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins fjárfesti fyrir samtals 1.042 milljónir króna árið 20009. Fjárfest var í 7 nýjum sprotafyrirtækjum fyrir samtals 370 milljónir króna,  í 10 fyrirtækjum sem sjóðurinn átti í áður fyrir samtals 349 milljónir króna og í 3 samlagssjóðum fyrir samtals 323 milljónir króna. Lesa meira
 

Um 150 ungir atvinnuleitendur til starfa hjá ÍSÍ

Vinnumálastofnun hefur samið við Íþrótta og ólympíusamband Íslands um að skipuleggja og stjórna sjálfboðaliðastarfi fyrir um 150 unga atvinnuleitendur á þessu ári. Samningurinn er hluti af átakinu Ungt fólk til athafna sem félags- og tryggingamálaráðuneytið og Vinnumálastofnunar standa fyrir og miðar að því að koma á fót um 2.200 menntunar- og starfstengdum vinnumarkaðsúrræðum fyrir unga atvinnuleitendur á þessu ári. Lesa meira
 

Aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna

Meðal þess helsta sem nú er lagt til af hálfu ríkisstjórnarinnar er stórbætt greiðsluaðlögunarfrumvarp sem bætir samningsstöðu lántakenda gagnvart sínum lánadrottnum. Samhliða nýju greiðsluaðlögunarfrumvarpi verður sett á fót embætti umboðsmanns skuldara sem  verður talsmaður lántakenda gagnvart lánardrottnum og er ekki hlutlaus. Ennfremur eru kynntar fleiri nýjungar sem bæta stöðu lántakenda enn frekar.

Lesa meira
 

Stýrivextir lækkaðir í 9%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti bankans úr 9,5% í 9%. Lesa meira
 

Aflaverðmæti 115 milljarðar króna í fyrra

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 115 milljörðum króna á árinu 2009, samanborið við 99 milljarða yfir árið 2008. Aflaverðmæti jókst því um tæpa 16 milljarða eða 16% á milli ára. Lesa meira
 

Afborganir námslána frystar til þriggja ára - að uppfylltum skilyrðum

Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur ákveðið að taka upp tímabundið greiðsluerfiðleikaúrræði sem í felst í að frysta afborganir námslána hjá sjóðnum í þrjú ár. Aðeins þeir sem eiga í verulegum fjárhagsörðugleikum geta fengið slíka fyrirgreiðslu.

Lesa meira
 

Tekjubil breikkaði en lágtekjuhlutfall stóð í stað

Tekjubil á Íslandi hefur breikkað ef mið er tekið af þróun Gini-stuðuls og fimmtungastuðls úr lífskjararannsóknum 2004 til 2009. Hlutfall Íslendinga undir lágtekjumörkum hefur hins vegar haldist nær óbreytt á umræddu tímabili. Lesa meira
 

Aflaverðmæti minnkar milli febrúar 2009 og 2010

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum febrúarmánuði, metinn á föstu verði, var 8,5% minni en í febrúar 2009 samkvæmt bráðabirgðatölum. Það sem af er árinu hefur aflinn dregist saman um 8,7% miðað við sama tímabil 2009, sé hann metinn á föstu verði. Lesa meira
 

Réttur einyrkja til atvinnuleysisbóta og hlutabóta

Í lögum um atvinnuleysistryggingar er gert ráð fyrir því að sjálfstætt starfandi einstaklingur teljist án atvinnu hafi hann stöðvað rekstur sinn og kunni því að eiga rétt á atvinnuleysisbótum úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Lesa meira
 

Atvinnuleysi 9,3% í febrúar

Atvinnuleysi jókst um 2,2% að meðaltali milli janúar og febrúar mánaða samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar eða um 321 mann. Í febrúar voru að jafnaði 15.026 án vinnu eða 9,3%. Lesa meira
 

Hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar hækkar

Ný reglugerð hefur tekið gildi um hámarksfjárhæð innheimtukostnaðar vegna innheimtu gjaldfallinna peningakrafna ef sá kostnaður er innheimtur hjá skuldara. Hækkun á einstökum liðum nemur á bilinu 4-10%. Breytingarnar taka til kostnaðar vegna innheimtuviðvörunar, milliinnheimtubréfa og gerð skriflegs samkomulags um greiðslu kröfu. Lesa meira
 

Íbúðalánasjóður lánaði fjórðungi minna fé í febrúar en janúar

Íbúðalánasjóður lánaði rúmlega 1,6 milljarða króna í febrúar. Þar af voru tæplega 1,4 milljarðar króna vegna almennra lána og um 250 milljónir vegna annarra lána. Heildarútlán sjóðsins lækkuðu því um 24% á milli mánaða. Lesa meira
 

Fjármál hins opinbera 2009, bráðabirgðatölur

Hrein peningaleg eign hins opinbera, þ.e. peningaleg eign umfram skuldir, var neikvæð um 615 milljarða króna í árslok 2009, eða sem svarar 41% af landsframleiðslu samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Staðan versnaði um 322 milljarða króna á árinu eða um ríflega 22% af landsframleiðslu. Lesa meira
 

Frestur vegna nauðungarsölu  framlengdur

Frestur vegna nauðungarsölu hefur verið framlengdur um allt að þrjá mánuði til viðbótar en síðasti frestur sem gefinn var rann út um síðustu mánaðamótin. Frumvarp þessa efnis til breytinga á lögum um nauðungarsölu nr. 90/1991 var samþykkt á Alþingi 25. febrúar 2010. Lesa meira
 

Vöruskiptajöfnuður hagstæður um 14 milljarða í febrúar

Vöruskipti í febrúar voru hagstæð um tæpa 14 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Útflutningur nam 44,3 milljörðum króna og innflutningur 30,4 milljarði króna. Þetta er 18. mánuðinn í röð sem vöruskiptajöfnuðurinn er hagstæður.

Lesa meira
 

Lög nr. 1/2010 felld úr gildi í þjóðaratkvæðagreiðslu

93,2% þeirra sem tóku þátt í þjóðaratkvæðagreiðslu um svo kölluð Icesave-lög sögðu nei við spurningunni um hvort lög nr. 1/2010 ættu að halda gildi sínu. 1,8% sögðu já, 4,7% skiluðu auðu og 0,5% atkvæða voru ógild af öðrum ástæðum. Kjörsókn var 62,7%. Lesa meira
 

Landsframleiðslan 2009

Landsframleiðsla dróst saman að raungildi um 6,5% í fyrra. Þessi samdráttur varð eftir samfelldan hagvöxt frá og með árinu 1993 og er samdrátturinn sá mesti sem mælst hefur frá því að gerð þjóðhagsreikninga hófst á Íslandi árið 1945. Hagvöxtur á árinu 2008 er talinn hafa numið 1%. Lesa meira
 

Vefsíðan thjodaratkvaedi.is hefur verið opnuð

Vefsíðan thjodaratkvaedi.is hefur verið opnuð í tilefni af þjóðaratkvæðagreiðslunni 6. mars nk. um lög nr. 1/2010. Þar eru útskýrð á hlutlausan hátt meginatriði máls sem varða atkvæðagreiðsluna, ástæður hennar og mögulegar afleiðingar.

Lesa meira
 

Greiðsla meðlags og fleiri framfærsluframlaga frá TR

Á vef Tryggingastofnunar getur að líta nokkur áhersluatriði um greiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga sem urðu með nýrri reglugerð sem sett var undir lok síðasta árs.

Lesa meira
 

Metfjöldi flutti úr landi í fyrra

Árið 2009 fluttu 4.835 fleiri frá landinu en til þess. Aldrei áður hafa jafn margir flutt frá landinu á einu ári. Næstmest var það árið 1887 en þá fluttu 2.229 fleiri frá landinu en til þess. Þá var mannfækkun vegna búferlaflutninga þó helmingi meiri ef miðað er við miðársmannfjölda, eða 3,1% á móti 1,5%.

Lesa meira
 

Lagastofnun HÍ semur kynningarefni vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur falið Lagastofnun Háskóla Íslands að semja hlutlaust kynningarefni fyrir almenning vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um lög nr. 1/2010, sem fram fer laugardaginn 6. mars 2010. Lesa meira
 

Íbúðalánasjóður lánaði 2,1 milljarð í janúar

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmum 2,1 milljörðum króna í janúar. Þar af voru ríflega 700 milljónir króna vegna almennra lána og um 1,4 milljarðar vegna annarra lána.

Lesa meira
 

Aflaverðmæti minnkar um tæpa tíund milli janúarmánaða

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum janúarmánuði, metinn á föstu verði, var 8,9% minni en í janúar í fyrra samkvæmt bráðabirgðatölum.

Lesa meira
 

Næstu skref í atvinnumálum

Eigið fé Byggðastofnunar verður aukið um 3.6 milljarða í því skyni að stuðla að atvinnuuppbyggingu. Þá er stefnt er að því að á þessu ári verði 500 – 700 milljónir króna tiltækar til uppbyggingar fjölsóttra ferðamannastaða á landinu og lánatryggingasjóður kvenna tekur til starfa á ný samkvæmt tillögum sem kynntar voru á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Lesa meira
 

215 milljónir til vaxtarsamninga

215 milljóna króna árlegu framlagi til vaxtarsamninga iðnaðarráðuneytisins og atvinnuþróunarfélaga árin 2010 til 2013 er skipt niður á átta samningssvæði út frá fólksfjölda, þéttleika byggðar, atvinnuleysi, íbúaþróun og hagvexti á hverju svæði. Lesa meira
 

Atvinnuleysi 9% í síðasta mánuði

Atvinnuleysi jókst um 6,7% að meðaltali milli desember 2009 og janúar 2010 samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar eða um 929 manns. Í janúar voru að jafnaði 14.705 án vinnu eða 9%. Lesa meira
 

Vöruskiptajöfnuður hagstæður um 10 milljarða í janúar

Vöruskipti í janúar voru hagstæð um rúma 10 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Útflutningur nam 42,2 milljörðum króna og innflutningur 32,1 milljarði króna. Lesa meira
 

Efni um Icesave á vef Alþingis

Á vef Alþingis hefur verið safnað saman efni sem tengist setningu laga um ríkisábyrgð vegna Icesave-reikninga Landsbankans í Bretlandi og Hollandi. Meðal annars má sjá skýran samanburð á lögunum sem samþykkt hafa verið. 

Lesa meira
 

Atkvæðagreiðsla utan kjörfundar vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar 6. mars nk. er hafin

Kjósandi sem ekki getur kosið á kjördag 6. mars, getur nú greitt atkvæði. Hægt er að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu, á aðalskrifstofum eða í útibúum þeirra. Í útlöndum er hægt að kjósa á skrifstofu sendiráðs eða fastanefndar hjá alþjóðastofnun, í sendiræðisskrifstofu eða í skrifstofu kjörræðismanns.

Lesa meira
 

Aflaverðmæti 95 milljarðar fyrstu 10 mánuði 2009

Aflaverðmæti íslenskra skipa í októbermánuði 2009 nam 9,7 milljörðum króna miðað við 9,4 milljarða í október 2008. Aflaverðmætið nam rúmum 95 milljörðum króna fyrstu tíu mánuði síðasta árs, samanborið við tæpa 80 milljarða á sama tímabil árið áður. 

Lesa meira
 

Atvinnuleysi í desember 2009 var 8,2%

Atvinnuleysi jókst um 3,1% að meðaltali milli nóvember og desember samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar eða um 419 manns. Lesa meira
 

Aflaverðmæti minnkar um tíund milli desembermánaða

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum desembermánuði, metinn á föstu verði, var 10,3% minni en í desember 2008 samkvæmt bráðabirgðatölum. Árið 2009 jókst aflinn um 2,9% miðað við árið 2008, sé hann metinn á föstu verði. 
Lesa meira
 

Atvinnuleysi í síðasta fjórðungi ársins 2009

Á fjórða ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 12.000 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6,7% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 7,9% hjá körlum og 5,4% hjá konum. Lesa meira
 

Rafræn umsókn um aðstoð vegna greiðsluvanda

Viðskiptavinir Íbúðalánasjóðs sem þurfa að leita sér aðstoðar vegna greiðsluvanda geta nú sent rafrænt inn umsókn til banka, sparisjóða og Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna, en ekki er lengur tekið við umsóknum á pappír. Með þessari breytingu er verið að auka áreiðanleika gagna og flýta fyrir afgreiðslu umsókna þar sem heildarferlið er orðið rafrænt. Lesa meira
 

Útlán Íbúðalánasjóðs 2009 meira en helmingi minni en árið áður

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rétt rúmum 30 milljörðum króna á árinu 2009 samanborið við rúma 64 milljarða króna á árinu 2008 en það samsvarar um 52% samdrætti milli ára. Lesa meira
 

Vöruskiptajöfnuður hagstæður um 73 milljarða árið 2009

Vöruskipti í desember voru hagstæð um tæpa 7 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Þetta er sextánda mánuðinn í röð sem vöruskiptajöfnuðurinn er hagstæður. Hann nam tæplega 73 milljörðum króna á síðasta ári þegar bráðabirgðatölur desembermánaðar eru teknar með í reikninginn.

Lesa meira
 

Breytingar á virðisaukaskatti um áramót

Með lögum um ráðstafanir í skattamálum, sem samþykkt voru frá Alþingi þann 19. desember sl., var virðisaukaskattur í hærra skattþrepi hækkaður úr 24,5% í 25,5%. Þessi breyting tók gildi frá og með 1. janúar 2010. Lesa meira
 

Ríkisstjórnin lýsir vonbrigðum með ákvörðun forseta Íslands

Með ákvörðun forseta Íslands um að staðfesta ekki breytingu Alþingis á lögum nr. 96/2009, svokölluðum Icesave-lögum er þeim árangri sem náðst hefur í endurreisnaráætlun stjórnavalda teflt í mikla tvísýnu. Í viljayfirlýsingu (e. Letter of Intent) íslenskra stjórnvalda til AGS vegna efnahagsáætlunarinnar sem undirrituð var í nóvember 2008 er því heitið að Icesave-málið verði leitt til lykta með samningum og er það ein forsenda lánveitinga frá sjóðnum.

Lesa meira
 

Forseti Íslands staðfestir ekki Icesave lögin

Forseti Íslands kunngjörði í dag að hann staðfesti ekki lög um breytingu á lögum nr. 96/2009, um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda hjá Landsbanka Íslands hf. Alþingi samþykkti lögin 30. desember s.l. sem í daglegu tali eru kennd við Icesave.

Lesa meira
 

Staðgreiðsluhlutfall tekjuskatts og útsvars og persónuafsláttur fyrir árið 2010

Alþingi samþykkti nýverið lög um tekjuöflun ríkisins sem fela í sér margvíslegar breytingar á gildandi lögum um tekjuskatt. Meðal þeirra er að á árinu 2010 verður í fyrsta sinn innheimt þrepaskipt staðgreiðsla á tekjuskatti í þremur þrepum.

Lesa meira
 

Aflaverðmæti fimmtungi meira en í fyrra

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 85 milljörðum króna fyrstu níu mánuðum ársins, samanborið við rúma 70 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 15 milljarða eða 21% á milli ára. Aflaverðmæti í septembermánuði nam 9,5 milljörðum króna miðað við 7 milljarða í september 2008. Lesa meira
 

Fyrsti hluti láns frá Norðurlöndunum greiddur til Íslands

Fyrsti hluti láns frá Norðurlöndunum til Íslands hefur verið afgreiddur í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Þetta eru 300 milljónir evra. Lesa meira
 

Heimilt að taka út samtals 2,5 milljónir króna af séreignarlífeyrissparnaði

Í morgun samþykkti Alþingi frumvarp sem heimilar einstaklingum, að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, að taka út meira af séreignarlífeyrissparnaði sínum en áður var leyfilegt. Nú verður hægt er að fá greiddar út allt að 1,5 milljón króna til viðbótar við þá einu milljón króna sem áður var unnt að taka út.

Lesa meira
 

Skattstigi hjá ríkisskattstjóra

Á vef ríkisskattstjóra getur nú að líta útreikning á því hvernig tekjuskattur og útsvar einstaklinga verður í staðgreiðslu ársins 2010 miðað við forsendur í frumvarpi til laga um tekjuöflun ríkisins. Hafa skal í huga að frumvarpið er til umfjöllunar á Alþingi og gæti tekið breytingum í meðförum þess.

Lesa meira
 

Fjölbreytt tækifæri fyrir ungt fólk án atvinnu

Efnt verður til viðamikils átaks til að skapa fólki án atvinnu fjölbreytt tækifæri fyrir til starfa, menntunar eða annars konar virkni. Á næsta ári verður 1,3 milljarði króna varið í verkefnið. Sérstök áhersla verður lögð á úrræði fyrir ungt fólk og að bregðast við langtímaatvinnuleysi. Um 2.700 ungmenni á aldrinum 16-24 ára eru atvinnulaus um þessar mundir.

Lesa meira
 

Samkomulag íslenskra stjórnvalda og skilanefndar Landsbankans um uppgjör

Íslensk stjórnvöld, skilanefnd Landsbanka Íslands hf. og Landsbankinn (NBI hf) hafa undirritað endanlegt samkomulagi um uppgjör á eignum og skuldum vegna skiptingar bankans. Fulltrúar helstu kröfuhafa hafa tekið þátt í samningaviðræðunum.

Lesa meira
 

Stýrivextir lækkaðir í 10%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti úr 11% í 10% og lækka vexti á viðskiptareikningum innlánsstofnana um 0,5 prósentur í 8,5%. Þetta eru sömu prósentulækkanir og 5. nóvember þegar stýrivöxtum var breytt síðast. Lesa meira
 

Atvinnuleysi 8% í nóvember

Atvinnuleysi jókst um 5,3% að meðaltali milli október og nóvember samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar eða um 675 manns. Í nóvember voru að jafnaði 13.357 án vinnu eða 8%, en á sama tíma í fyrra voru það 3,3% eða 5.445 manns. Lesa meira
 

Innstæður tryggðar áfram

Ríkisstjórnin lýsir því yfir að yfirlýsing frá 3. febrúar sl. um að allar innstæður í innlendum bönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi séu tryggðar, er enn í fullu gildi. Yfirlýsingin verður ekki afnumin fyrr en hið nýja íslenska fjármálakerfi, með breyttri umgjörð, hefur sannað sig og þá verður gefinn aðlögunartími. Lesa meira
 

Útlán Íbúðalánasjóðs jukustu um rúman þriðjung milli mánaða

Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu rúmlega 2,4 milljörðum króna í nóvember. Þar af voru tæpir 1,5 milljarðar vegna almennra lána og rúmar 900 milljónir vegna annarra lána. Lesa meira
 

Viðamiklar breytingar boðaðar á regluverki um hlutafélög og fjármálamarkað

Fjórtán frumvörp til laga og breytinga á gildandi lögum um hlutafélög og fjármálamarkað hafa verið lögð fram af efnhags- og viðskiptaráðherra á Alþingi. Lesa meira
 

Innstæður tryggðar

Athygli skal vakin á að fyrri og ítrekaðar yfirlýsingar ríkisstjórna um að innstæður í innlendum viðskiptabönkum og sparisjóðum og útibúum þeirra hér á landi eru tryggðar að fullu.

Lesa meira
 

Minni tekjuhalli hins opinbera á þriðja ársfjórðungi en öðrum

Tekjuhalli hins opinbera var nokkru minni á 3ja fjórðungi ársins en á öðrum, eða 33 milljarðar króna samanborið við 41 milljarð. Lesa meira
 

Landsframleiðsla minnkaði um 5,7% milli ársfjórðunga

Landsframleiðslan á þriðja ársfjórðungi 2009 er talin hafa dregist saman um 5,7% að raungildi samanborið við annan fjórðung. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 2,1%. Lesa meira
 

Greiðslujöfnun áfram afþökkuð 

Meira en helmingur einstaklinga með lán hjá Íbúðalánasjóði hefur afþakkað sjálfvirka greiðslujöfnun. Rúmlega hálft annað þúsund hefur afþakkað eftir að greiðslujöfnunin komst á 20. nóvember síðast liðinn. Lesa meira
 

Sex milljarða króna hagstæður vöruskiptajöfnuður í nóvember

Vöruskipti í nóvember voru hagstæð um 6 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Útflutningur nam 44,3 milljörðum króna og innflutningur 38,3 milljörðum. Lesa meira
 

Kröfuhafar eignast 87% hlutafjár í Arion banka

Skilanefnd Kaupþings hefur að höfðu samráði við kröfuhafa og að teknu tilliti til ráðgjafar sérfræðinga ákveðið að Kaupþing og þar með kröfuhafar eignist 87% hlutafjár í Arion banka. 13% hlutafjár verða áfram í eigu ríkisins. Lesa meira
 

106 fyrirtæki gjaldþrota í október

Liðlega þriðjungi fleiri fyrirtæki urðu gjaldþrota í síðasta mánuði en á sama tíma í fyrra. Lesa meira
 

Greiðslujöfnun þarf að afþakka 10 dögum fyrir gjalddaga

Útrunninn er frestur til að afþakka sjálfvirka greiðslujöfnun fasteignaveðlána vegna gjalddaga 1. desember. Áfram er hægt að afþakka greiðslujöfnun vegna gjalddaga um miðjan desember og síðar, en það þarf að gerast í síðasta lagi 10 dögum fyrir næsta gjalddaga lánsins.

Lesa meira
 

Hátt í helmingur afþakkar greiðslujöfnun hjá Íbúðalánasjóði

23.146 einstaklingar afþökkuðu sjálfvirka greiðslujöfnun hjá Íbúðalánasjóði á 38.087 lánum. Þetta eru 47,7% þeirra einstaklinga sem eru lántakar hjá Íbúðalánasjóði og 46,7% af fjölda lána.

Lesa meira
 

Nýtt tekjuskattskerfi í burðarliðnum

Nýtt þriggja þrepa skattkerfi verður tekið í gagnið um næstu áramót samkvæmt fyrirætlunum ríkisstjórnarinnar. Jafnframt verður ráðist í heildarendurskoðun á skattkerfinu og tengslum þess við vaxta- og barnabætur sem miðar að enn frekari jöfnun en náðst hefur með fyrirliggjandi tillögum.

Lesa meira
 

Aflaverðmæti 75 milljarðar króna

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 75 milljörðum króna fyrstu átta mánuði ársins, samanborið við rúma 63 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um 19% á milli ára. Lesa meira
 

Greiðslujöfnun afþökkuð á tæpum þriðjungi lána hjá Íbúðalánasjóði

Á morgun rennur út frestur til að afþakka sjálfvirka greiðslujöfnun verðtryggðra fasteignalána fyrir desember.  Í morgun höfðu 15.872 einstaklingar afþakkað greiðslujöfnun á 25.839 lánum hjá Íbúðalánasjóði.  Þetta eru 31% af lánum einstaklinga hjá sjóðnum. Þeir sem hafa sagt sig frá greiðslujöfnun en sjá síðar að þeir kunni að hafa hag af henni, til dæmis vegna breyttra aðstæðna, geta þá sótt um að fá greiðslujöfnun.

Lesa meira
 

Sjálfvirk greiðslujöfnun afþökkuð

Hægt er að afþakka greiðslujöfnun í netbanka, á heimasíðum eða í næsta útibúi lánveitanda en fyrirkomulagið getur verið mismundi milli þeirra. Meðfylgjandi er listi sem vísar beint á hvernig sjálfvirk greiðslujöfnun er afþökkuð hjá hverjum og einum lánveitanda.

Lesa meira
 

Atvinnuleysi 7,6% í október

Atvinnuleysi jókst um 4,4% að meðaltali milli september og október samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar eða um 537 manns. Í október voru að jafnaði 12.682 án vinnu eða 7,6% en á sama tíma í fyrra voru það 1,9% eða 3.106 manns. Lesa meira
 

Frestun nauðungarsölu fram yfir 28. febrúar 2010

Frumvarp til breytinga á lögum um nauðungarsölu nr. 90/1991 hefur verið samþykkt á Alþingi. Samkvæmt lögunum verður ákvörðun um lokasölu á íbúðarhúsnæði því ekki tekin fyrr en eftir 28. febrúar 2010 óski skuldari eftir slíkum fresti að uppfylltum skilyrðum laganna. Frestunin gerist ekki sjálfkrafa heldur verður skuldari að óska eftir fresti, einnig þótt nauðungarsölu fasteignar hafi áður verið frestað. Lesa meira
 

Spurt og svarað um sértæka skuldaaðlögun

Á island.is eru nú komnar liðlega 20 spurningar og svör um sértæka skuldaaðlögun fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem eiga í það miklum greiðsluerfiðleikum að almenn úrræði nægja ekki til lausnar vandans Lesa meira
 

Stýrivextir lækka um 1%

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að lækka stýrivexti úr 12% í 11% og lækka vexti á viðskiptareikningum innlánsstofnana um 0,5 prósentur í 9%. Daglánavextir lækka úr 14,5% í 13%. Lesa meira
 

60 milljarða króna hagstæður vöruskiptajöfnuður á árinu

Vöruskipti í október voru hagstæð um 16,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar og nemur nú 60 milljörðum króna á árinu. Lesa meira
 

Skýrsla AGS vegna endurskoðunar efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS

Endurskoðuð skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um íslenska efnahagskerfið hefur verið birt á vef sjóðsins.

Lesa meira
 

Á fjórða þúsund hafa afþakkað sjálfvirka greiðslujöfnun hjá Íbúðalánasjóði

Í morgun hafði sjálfvirk greiðslujöfnun verið afþökkuð á liðlega 3.100 lánum hjá Íbúðalánasjóði. Heildarfjöldi lána hjá sjóðnum er um 85 þúsund.

Lesa meira
 

Undirritun samninga vegna skuldavanda

Einstaklingar sem vilja lækka greiðslubyrði af fasteignaveðlánum, bílalánum og bílasamningum geta nú sótt um greiðslujöfnun þessara lána og samninga þannig að greiðslubyrðin lækki frá og með gjalddaga í desember. Lesa meira
 

Fyrsta skrefið í afnámi gjaldeyrishafta

Seðlabanki Íslands hefur stigið fyrsta skrefið í afnámi gjaldeyrishafta með því að heimila innstreymi erlends gjaldeyris til nýfjárfestinga og útstreymi gjaldeyris sem kann að leiða af því í framtíðinni. Lesa meira
 

Framkvæmd nýrra úrræða vegna skuldavanda

Samningar við fjármálafyrirtæki, lífeyrissjóði og Íbúðalánasjóð um úrræði vegna skuldavanda einstaklinga og heimila og framkvæmd þeirra verða undirritaðir á morgun og taka gildi um leið. Úrræðin sem samningarnir taka til eru greiðslujöfnun fasteignaveðlána, greiðslujöfnun bílalána og bílasamninga og samkomulag um sértæka skuldaaðlögun. Lesa meira
 

Fyrstu endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands og AGS lokið

Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) samþykkti fyrstu endurskoðun á efnahagsáætlun íslenskra stjórnvalda á fundi sínum í Washington í gær. Lesa meira
 

Nýtt frumvarp um frestun nauðungarsölu

Dómsmála- og mannréttindaráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi til breytinga á lögum um nauðungarsölu. Í því er lagt til að nauðungarsölum á íbúðarhúsnæði verði frestað fram yfir 31. janúar 2010, þannig að ákvörðun um lokasölu verði ekki tekin fyrr en eftir það tímamark. Lesa meira
 

Bankasýslan tekur við hlut ríkisins í bönkunum

Bankasýsla ríkisins hefur tekið við hlut ríkisins í viðskiptabönkunum þremur en fjármálaráðherra sér þó áfram um  samninga við kröfuhafa. Lesa meira
 

Gjaldþrot fyrirtækja í september

Í september 2009 voru 86 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 52 fyrirtæki í september 2008, sem jafngildir rúmlega 65% fjölgun milli ára. Lesa meira
 

Sjálfkrafa greiðslujöfnun verðtryggðra fasteignalána

Samkvæmt lögum um greiðslujöfnun sem samþykkt hafa verið á Alþingi fara verðtryggð fasteignaveðlán sem eru í skilum sjálfkrafa í greiðslujöfnun frá og með gjalddaga í desember nema lántaki sæki sérstaklega um að svo verði ekki.

Lesa meira
 

Greiðslujöfnun verðtryggðra fasteignaveðlána

Frumvarp um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins hefur verið samþykkt á Alþingi og taka lögin gildi 1. nóvember.

Lesa meira
 

65 milljarða króna afli fyrstu sjö mánuði ársins

Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa nam tæpum 65 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2009, samanborið við rúmlega 54 milljarða á sama tímabili í fyrra. Aflaverðmæti hefur því aukist um tæplega 11 milljarða eða hátt í fimmtung. Lesa meira
 

Frumvarp um Icesave lagt fram á Alþingi

Frumvarp um Icesave samninginn var lagt fram á Alþingi í dag. Samningar voru gerðir með fyrirvara um samþykki Alþingis á lagabreytingum. Guðmundur Árnason, ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytis undirritaði samkomulagið um Icesave fyrir hönd Steingríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra.

Lesa meira
 

Frumvarp vegna skuldavanda

Frumvarp um aðgerðir í þágu einstaklinga, heimila og fyrirtækja vegna banka- og gjaldeyrishrunsins hefur verið lagt fram á Alþingi.

Lesa meira
 

Kröfuhafar eignast Íslandsbanka

Skilanefnd Glitnis hefur, fyrir hönd kröfuhafa, ákveðið að nýta sér ákvæði í samningi við íslenska ríkið og eignast 95% hlutafjár í Íslandsbanka. Lesa meira
 

Atvinnuleysi 6% á þriðja ársfjórðungi

Á þriðja ársfjórðungi 2009 voru að meðaltali 10.900 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6% vinnuaflsins. Lesa meira
 

Stjórnvöld semja við Landsbanka Íslands um uppgjör

Samkomulag á milli íslenskra stjórnvalda, skilanefndar Landsbanka Íslands hf. og Landsbankans (NBI hf) um uppgjör á eignum og skuldum vegna skiptingar bankans hefur verið undirritað. Lesa meira
 

Atvinnuleysi minnkar aftur milli mánaða

Atvinnuleysi minnkaði um rúm 9% að meðaltali milli ágúst og september samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar eða um 1.242 manns. Lesa meira
 

Spurt og svarað um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna

Hér á island.is er nú hægt að lesa spurningar og svör þar sem er útskýrt hvað felst í boðuðum aðgerðum stjórnvalda gegn skuldavanda heimilanna sem áætlað er að taki gildi 1. nóvember næstkomandi. Lesa meira
 

Þjóðhagsáætlun fyrir árið 2010

Efnahagsstefnan sem nú er fylgt mótast af þeim miklu erfiðleikum sem við er að glíma í íslensku efnhagslífi og byggist á tveimur meginþáttum. Annars vegar að koma Íslandi út úr dýpstu efnahagskreppu seinni ára eins fljótt og auðið er á forsendum norræns velferðarsamfélags. Hins vegar að koma í veg fyrir að slíkt áfall geti dunið yfir á nýjan leik.

Lesa meira
 

Hagstæður vöruskiptajöfnuður þrettánda mánuðinn í röð

Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir september 2009 nam útflutningur tæpum 43,8 milljörðum króna og innflutningur 40,7 milljörðum króna. Vöruskiptin í september voru því hagstæð þrettánda mánuðinn í röð, nú um 3 milljarða króna samkvæmt þessu. Lesa meira
 

Skrifað undir lánssamning við Pólverja

Íslenska ríkið fær 630 milljónir pólskra slota, sem er jafnvirði um 25 milljarða króna eða 200 milljóna Bandaríkjadala, að láni frá pólska ríkinu samkvæmt samningi sem Jan Vincent-Rostowski, fjármálaráðherra Póllands og Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra Íslands skrifuðu undir fyrir hönd landanna. Lesa meira
 

Fjárlagafrumvarp 2010 lagt fram

Reiknað er með að tekjur ríkissjóðs á næsta ári aukist um 61 milljarð króna frá þessu ári, útgjöldin dragist saman um 43 milljarða og heildarhalli sjóðsins árið 2010 verði liðlega 87 milljarðar króna.

Lesa meira
 

Leiðrétt greiðslubyrði og aðlögun skulda

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur kynnt viðamiklar aðgerðir sem fela í sér umtalsverða leiðréttingu á greiðslubyrði af lánum og nýjar leiðir til að laga skuldir fólks að eignastöðu og greiðslugetu. Lesa meira
 

 Aflaverðmæti eykst um nær fimmtung milli ára

Aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa nam tæpum 54 milljörðum króna á fyrri helming ársins 2009, samanborið við rúmlega 45 milljarða yfir sama tímabil 2008. Aflaverðmæti hefur því aukist um 8,4 milljarða eða 18,6 % á milli ára að því er fram kemur í frétt Hagstofunnar. Lesa meira
 

Óbreyttir stýrivextir Seðlabanka

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að stýrivextir bankans verði óbreyttir eða 12% og aðhald peningastefnunnar þannig óbreytt. Lesa meira
 

Bankasýsla ríkisins tekur til starfa

Fjármálaráðherra hefur skipað í stjórn Bankasýslu ríkisins og hefur hún formlega tekið til starfa. Bankasýsla ríkisins skal samkvæmt lögum leggja áherslu á endurreisn og uppbyggingu öflugs innlends fjármálamarkaðar og stuðla að virkri og eðlilegri samkeppni á þeim markaði, tryggja gagnsæi í allri ákvarðanatöku varðandi þátttöku ríkisins í fjármálastarfsemi og tryggja virka upplýsingamiðlun til almennings. Lesa meira
 

Staða ábyrgðarmanna í tengslum við greiðsluaðlögun

Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna vekur athygli á því á vef sínum að fái einstaklingur greiðsluaðlögun á skuldum sínum þannig að þær séu lækkaðar, lækkar ábyrgð ábyrgðarmanna sem því nemur. Lesa meira
 

Ráðherranefnd um efnahagsmál

Sérstök ráðherranefnd um efnahagsmál hefur verið skipuð. Í henni eru forsætisráðherra, efnahags- og viðskiptaráðherra og fjármálaráðherra. Aðrir ráðherrar sitja fundi nefndarinnar í samræmi við umfjöllunarefni. Lesa meira
 

Hugmyndir Breta og Hollendinga um Icesave

Fulltrúar íslenskra, breskra og hollenskra stjórnvalda hafa verið í sambandi undanfarnar vikur í kjölfar samþykktar l. nr. 93/2009 um ríkisábyrgð á lánum til Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta. Lesa meira
 

Ráðherranefnd um Evrópumál

Ráðherranefnd um Evrópumál, sem í eru forsætisráðherra, utanríkisráðherra, fjármálaráðherra og menntamálaráðherra hefur verið komið á fót. Aðrir ráðherrar koma inn í nefndina eftir ástæðum, t.d. þegar fjallað er um þeirra málaflokka. Lesa meira
 

Atvinnuleysi minnkar milli mánaða

Atvinnuleysi minnkaði um 2,7% að meðaltali milli júlí og ágúst samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar eða um 369 manns. Í ágúst voru að meðaltali 13.387 án vinnu eða 7,7% en á sama tíma í fyrra voru það 1,2% eða 2.136 manns.

Lesa meira
 

Fjármál hins opinbera 2008

Tekjuafkoma hins opinbera var neikvæð um 200 milljarða króna árið 2008, eða 13,6% af landsframleiðslu og 30,6% af tekjum þess. Til samanburðar var tekjuafkoman jákvæð um 5,4% af landsframleiðslu 2007 og 6,3% árið 2006.

Lesa meira
 

Vöruskipti hagstæð um 12,6 milljarða í ágúst

Vöruskipti við útlönd voru hagstæð um tæpa 12,6 milljarða króna í ágúst 2009 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Útflutningur nam tæpum 44,1 milljarði króna og innflutningur 31,5 milljörðum króna í síðastliðnum mánuði. Lesa meira
 

Skýrsla OECD um íslensk efnahagsmál

Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, hefur gefið út nýja skýrslu um íslensk efnahagsmál þar sem koma fram ábendingar um hvernig stofnunin telji að bregðast eigi við yfirstandandi vanda. Lesa meira
 

Tillögur meiri- og minni hluta fjárlaganefndar í Icesave málinu

Önnur umræða um lög sem heimila fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, að ábyrgjast endurgreiðslur láns Hollendinga og Breta til Tryggingasjóðs innstæðueigenda og fjárfesta vegna Icesave – reikninga Landsbankans hófst á Alþingi 20. ágúst.
Lesa meira
 

Önnur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur 100 daga

Önnur ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur nú starfað í 100 daga, en tilkynnt var um myndun hennar á blaðamannafundi í Norræna húsinu þann 10. maí. Ríkisstjórnin gaf strax út ítarlega samstarfsyfirlýsingu auk yfirlits yfir fyrirhugaðar aðgerðir fyrstu 100 dagana og var sú áætlun birt á upplýsingasíðu stjórnvalda island.is. Á 100 daga áætluninni eru 48 mál og hafa 42 þegar verið afgreidd að mestu og flest þeirra sex sem útaf standa verða afgreidd innan tíðar.

Lesa meira
 

Breið samstaða í fjárlaganefnd um afgreiðslu  Icesave-samninga

Breið samstaða hefur náðst í fjárlaganefnd Alþingis um afgreiðslu á frumvarpi um ríkisábyrgð til handa Tryggingasjóði innstæðueiganda og fjárfesta vegna uppgjörs við innstæðueigendur Icesave reikninga Landsbanka Íslands í Bretlandi og Hollandi.

Lesa meira
 

Seðlabankinn spáir minni samdrætti en áður

Seðlabankinn spáir 9% samdrætti í hagkerfinu í ár en hefur áður spáð 11% samdrætti. Bankinn hefur gefið út uppfærða hagspá samhliða ákvörðun um óbreytta vexti. Þetta kemur heim og saman við þá tilfinningu að samdráttur hagkerfisins verði hugsanlega minni en ráð var fyrir gert. Ástæðan fyrir þessu fráviki sem telst verulegt, er fyrst og fremst sú að einkaneysla hefur ekki dregist saman að því marki sem menn töldu.

Lesa meira
 

Atvinnuleysi mælist 8% í júlí

Atvinnuleysi mælist nú örlítið lægra en það var í júní, eða 8% í stað 8,1%. Því miður er óvarlegt að álykta sem svo að þessar tölur séu eins jákvæðar og þær virðast við fyrstu sýn. Ástæðan er sú að árstíðaleiðrétt atvinnuleysi er hærra en það var í apríl, maí og júní – eða sem svarar til 8,6%.

Lesa meira
 

Enn er afgangur af vöruskiptum við útlönd

Afgangur af vöruskiptum við útlönd nam í júlí 6,4 milljörðum króna samkvæmt upplýsingum sem Hagstofa Íslands hefur tekið saman. Á sama tíma í fyrra var 22 milljarða halli á vöruskiptajöfnuði við útlönd, þannig að munurinn nemur rúmum 28 milljörðum króna milli ára.

Lesa meira
 

Stýrivextir óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur tilkynnt að stýrivextir bankans verði óbreyttir, eða 12%. Aðrir vextir bankans haldast óbreyttir sömuleiðis og eru því vextir á viðskiptareikningi 9,5%.

Lesa meira
 

Seðlabanki Íslands skilar skýrslu um peningastefnu

Að ósk forsætisráðherra hefur Seðlabanki Íslands unnið að rannsókn á kostum og göllum þess að breyta umgjörð peningastefnu landsins. Óskað var eftir því að bankinn gerði tillögur um breytingar á stefnunni og þeim markmiðum sem henni eru sett í kjölfar mats á núverandi stöðu. Bankinn hefur skilað áfangaskýrslu, skilgreint skupulega helstu spurningar sem þarf að svara og býst við að ítarleg skýrsla um fyrirkomulag peningamála verði gefin út fyrir lok vetrar 2009 – 2010 Lesa meira
 

Seðlabanki Íslands kynnir áætlun um afnám gjaldeyrishafta

Seðlabanki Íslands hefur lagt fram áfangaskipta áætlun um afnám gjaldeyrishafta. Í skýrslu bankans kemur fram það álit, að þó afnám haftanna sé forgangsverkefni þurfi að ákveða áfangaskiptinguna af kostgæfni. Lesa meira
 

Ný gögn í Icesave málinu á Island.is

Stöðugt bætist í Icesave-upplýsingabrunninn á island.is. Nú er kominn nýr liður þar sem birt eru plögg um forgangskröfur í þrotabú Landsbanka Íslands, sjá má lista yfir trúnaðargögn sem þingmenn hafa fengið til aflestrar en aðrir fá ekki að sjá og einnig hefur bæst við minnisblað fjármálaráðuneytisins um kjör vegna lántöku Íslands í kjölfar bankahrunsins. 

Lesa meira
 

Áætlun um afnám gjaldeyrishafta samþykkt

Ríkisstjórnin hefur nú samþykkt áætlun um afnám gjaldeyrishafta, sem Seðlabankinn samdi í samráði við viðskiptaráðuneytið og Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Til þess að tryggt sé að jafnvægi efnahagslífsins raskist ekki þegar höftin hverfa verður afnámi þeirra skipt í áfanga og hver þeirra háður því að ákveðnum skilyrðum hafi verið fullnægt. Lesa meira
 

AGS frestar umfjöllun um efnahagsáætlun Íslands og sjóðsins

Stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur frestað umfjöllun sinni um endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og sjóðsins. Þetta varð ljóst síðdegis 30. júlí, en fyrirhugað hafði verið að stjórnin tæki málið fyrir 3. ágúst. Búist er við að stjórn sjóðsins taki málið fyrir í ágúst eða byrjun september. Lesa meira
 

Kaupmáttur launa nú sá sami og árslok 2002

Kaupmáttur launa hefur lækkað stöðugt frá ársbyrjun 2008, samtals um 12%, líkt og búist var við, fyrst vegna mikillar verðbólgu en síðan vegna bankahrunsins og samdráttar í efnahagslífinu. Kaupmátturinn nú er um það bil sá sami og hann var í árslok ársins 2002.

Lesa meira
 

Stjórnvöld semja við skilanefndir bankanna

Undanfarna daga og vikur hafa farið fram viðræður milli stjórnvalda og skilanefnda gömlu bankanna, fyrir hönd kröfuhafa þeirra, um uppgjör. Viðræðurnar snérust einkum um tvennt; sanngjarnt mat á eignum, og með hvaða hætti uppgjör færi fram.
Síðastliðinn föstudag náðu samningsaðilar mikilvægum niðurstöðum í viðræðum sínum og hafa þeir undirritað samkomulag þar um.

Lesa meira
 

Alþingi samþykkir aðildarviðræður við ESB

Alþingi samþykkti í dag að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild Íslands að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Var tillagan samþykkt með 33 atkvæðum gegn 28. Lesa meira
 

Umsögn Seðlabanka Íslands um Icesave samninga og greiðsluþol íslenska ríkisins

Fjárlaganefnd Alþingis óskaði eftir skriflegri umsögn Seðlabanka Íslands um Icesave-samningana og upplýsingum um greiðslubyrði af erlendum lánum. Seðlabanki Íslands hefur tekið saman álit og skiptist það í tvennt: umfjöllun um erlenda skuldastöðu Íslands og lögfræðilegt álit á ríkisábyrgð á skuldbindingu Tryggingarsjóðs innstæðueigenda.
Lesa meira
 

Dómsmálaráðherra leggur fram á Alþingi frumvörp um persónukjör í alþingis- og sveitarstjórnarkosningum

Með persónukjöri er kjósendum falið stóraukið vald við val þeirra einstaklinga sem fá umboð þeirra til setu á Alþingi og í sveitarstjórnum. Markmiðið er að efla lýðræði í landinu.

Lesa meira
 

Vöruskipti við útlönd hagstæð tíunda mánuðinn í röð

Vöruskipti við útlönd voru hagstæð um tæpa 8,7 milljarða króna í júní 2009 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands. Það sem af er þessu ári nemur hagstæður vöruskiptajöfnuður við útlönd því alls tæplega 33 milljörðum króna. Þetta er tíundi mánuðurinn í röð þar sem vöruskiptin eru hagstæð. Lesa meira
 

Gögn vegna Icesave samninga bætast á vefinn

Fleiri gögn hafa nú bæst á island.is vegna Icesave samninganna við Hollendinga og Breta.  Fjögur skjöl hafa nú bæst við þau 68 sem áður hafa verið birt.

Lesa meira
 

Spurt og svarað um greiðsluvanda heimila og einstaklinga

Fjölmörgum spurningum er lúta að greiðsluvanda einstaklinga og heimila er nú svarað hér á island.is. Í ítarlegari samantekt sem unnin hefur verið af hálfu fjölmargra ráðuneyta, stofnana og fjármálafyrirtækja, er leitast við að veita nákvæmar upplýsingar um öll þau úrræði sem í boði eru fyrir þá sem aðstoðar þarfnast. Lesa meira
 

Stýrivextir óbreyttir

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 12,0%. Aðrir vextir Seðlabankans eru einnig óbreyttir. Vextir á viðskiptareikningum í Seðlabankanum eru þannig áfram 9,5%. Almennt hafði verið talið ólíklegra að vextir yrðu lækkaðir að þessu sinni, enda hefur gengi krónunnar ekki gefið tilefni til þess og verðbólga aftur látið á sér kræla.

Lesa meira
 

Samningar og kjör lána Norðurlanda til Íslands

Íslendingar hafa í dag tekið að láni jafnvirði 2,5 milljarða bandaríkjadala hjá Svíum, Norðmönnum, Dönum og Finnum sem kemur þó ekki til útborgunar strax. Samningar þar að lútandi voru undirritaðir fyrr í dag. Vextir á lánunum sem eru til 12 ára, eru breytilegir en sem stendur eru þeir 3,835% að meðtöldu 2,75% álagi. 

Lesa meira
 

Icesave skjöl og frumvarp birt

Öll skjöl sem birta má í Icesave málinu hafa nú verið birt og leynd aflétt af þeim. Skjölin eru birt hér á vefnum.  Hér er einnig birt frumvarp fjármálaráðherra sem lagt hefur verið fyrir Alþingi þar sem farið er fram á að Alþingi samþykki ríkisábyrgð á lán sem taka þarf til að standa við skuldbindingar vegna Icesave reikninga Landsbankans.

Lesa meira
 

Ríkisstjórn afgreiðir 2/3 hluta mála af verkefnalista 100 daga áætlunarinnar

Ríkisstjórnin hefur nú afgreitt 32 af 48 málum sem eru á 100 daga lista hennar á þeim 50 dögum sem liðnir eru frá því hún hófst handa. Þetta jafngildir því að afgreidd séu um 2/3 verkefnalistans.
Lesa meira
 

Framtíðarsýn í ríkisfjármálum kynnt á Alþingi

Fjármálaráðherra kynnti í dag fyrir Alþingi skýrslu um áætlun um jöfnuð í ríkisfjármálum 2009–2013. Í áætlun ríkisstjórnarinnar eru dregin saman þau markmið í ríkisfjármálum sem íslensk stjórnvöld hafa einsett sér ná á komandi árum. Þessi markmið eru í samræmi við og byggð á samstarfsáætluninni við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn.

Lesa meira
 

Svíar og Finnar samþykkja lánveitingar til Íslands

Sænska og finnska ríkisstjórnin hafa báðar fallist á að veita Íslendingum lán. Lán Svía svarar til 700 milljóna bandaríkjadala, eða um 90 milljarða íslenskra króna, en lán Finna svarar til um 58 milljarða króna . Lánin eru hluti þeirra aðstoðar sem norrænu ríkin hafa boðið Íslendingum og mun þau nema andvirði 2,5 milljarða bandaríkjadala, um 320 milljarðar íslenskra króna miðað við gengi dagsins. Lánin eru veitt í tengslum við endurreisnaráætlun ríkisstjórnarinnar og Alþjóða gjaldeyrissjóðsins.
Lesa meira
 

OECD spáir minni samdrætti en aðrir

Ný spá um framvindu efnahagsmála af hálfu OECD, Efnahags- og framfarastofnunarinnnar, bendir til þess að samdráttur íslenska hagkerfisins verði minni en áður hefur verið talið og minni en reyndar aðrir hafa spáð, m.a. fjármálaráðuneytið, Seðlabanki Íslands og AGS. OECD telur samdráttinn á árinu vera 7% sem er um það bil þremur prósentustigum lægra en aðrir hafa spáð.
Lesa meira
 

Stöðugleikasáttmáli í höfn

Samningar hafa tekist um stöðugleikasáttmála sem er eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar við endurreisn efnahagslífsins. Forsvarsmenn ríkisstjórnar, sveitarfélaga, atvinnurekenda og verkalýðshreyfingar og stéttarfélaga skrifuðu undir samninginn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Stöðugleikasáttmálinn tekur til margra  þeirra helstu þátta sem mestri óvissu hafa verið háðir síðustu mánuðina og er sáttmálinn ein  þeirra meginstoða sem framtíðar uppbygging efnahagslífsins hvílir á.

Lesa meira
 

Verðbólga hækkar á ný

Verðlag hefur nú tekið að hækka á ný og heldur meira en búist hafði verið við. Hækkunin í júni, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofu Íslands, er 1,38%. 12 mánaða hækkun mælist því 12,2% en var 11,6% í maí en fór hæst í 18,6% í janúar. Verðlag hækkaði um 1% ef horft er framhjá áhrifum skattbreytinga á vísitölu.
Lesa meira
 

Álitsgerð Jakobs Möllers hrl. um Icesave samningana

Að ósk utanríkisráðuneytisins hefur Jakob R. Möller hrl. tekið saman álitsgerð um Icesave samningana við Hollendinga og Breta. Í henni fjallar Jakob um mörg helstu álitamálin sem uppi hafa verið í almennri umræðu frá því skrifað var undir samkomulagið þann 5. júní.

Lesa meira
 

Skýringar við Icesave samninga birtar

Skýringar við allar greinar Icesave samninganna liggja nú fyrir hér á island.is. Með birtingu þeirra er samningurinn skýrður lið fyrir lið. Sömuleiðis eru fjölmörg lögfræðileg hugtök og heiti skýrð eftir því sem við á og sett í samhengi alþjóðlegra samninga.

Lesa meira
 

Ríkisstjórn boðar aðhald og sparnað í ríkisfjármálum

Ríkisstjórnin hefur kynnt aðgerðir í ríkisfjármálum fyrir þetta ár og það næsta. Draga á úr fyrirsjáanlegum hallarekstri um 86 milljarða, að stærstum hluta með niðurskurði útgjalda. Jafnvægi í ríkisfjármálum á að nást á næstu fjórum árum og því er stefnt er að afgangi á fjárlögum árið 2013 til samræmis við efnahagsátætlun íslenskra stjórnvalda og AGS. Lesa meira
 

Icesave samningarnir komnir á island.is

Líkt og greint hefur verið frá áður, eru Icesave samningarnir við Breta og Hollendinga birtir hér í heild sinni. Fyrirspurnum svarað: fyrirspurn@island.is

Lesa meira
 

Fyrirspurnum svarað um Icesave samningana við Holland og Bretland

Fyrirspurnir um Icesave samningana og einstök atriði í þeim má senda á veffangið: fyrirspurn@island.is

Lesa meira
 

Icesave samningarnir verða birtir

Samningar Tryggingasjóðs innistæðueiganda og fjárfesta og íslenska ríkisins við Bretland annars vegar og Holland hins vegar voru undirritaðir 5. júní sl. Um er að ræða einkaréttarlega lánasamninga sem almennt eru ekki gerðir opinberir nema með samþykki allra aðila. Íslenska ríkið óskaði strax eftir samþykki annarra samningsaðila við því að samningarnir yrðu gerðir opinberir. Veitti tryggingasjóðurinn strax leyfi fyrir birtingu.

Lesa meira
 

Bretar aflétta kyrrsetningu eigna Landsbankans

Bresk yfirvöld hafa aflétt kyrrsetningu eigna Landsbanka Íslands í Bretlandi, en þau kyrrsettu allar eignir bankans 8. október á grunni svokallaðra hryðjuverkalaga (Anti Terrorism, Crime and Security Act) frá árinu 2001. Þetta var gert í kjölfar samkomulags þjóðanna tveggja og Íslands og Hollands um uppgjör skuldbindinga vegna innistæðna á Icesave reikningum Landsbankans sem skrifað var undir 5. júní.
Lesa meira
 

100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar – 21 verkefni af 48 afgreidd á fyrstu 33 dögunum

Ríkisstjórninni hefur nú tekist að afgreiða nálega helming allra þeirra verka sem hún setti sér að afgreiða á fyrstu dögum stjórnarinnar. Á fyrstu 33 dögunum hefur hún afgreitt 21 verkefni af 48 og á næstu dögum og vikum mun hún afgreiða mörg stór mál sömuleiðis, einkum þau er varða endurreisn og endurfjármögnun bankakerfisins og ráðstafanir í ríkisfjármálum svo dæmi sé tekið.

Lesa meira
 

Frumvarp um breytingar á Stjórnarráðinu lagt fram

Forsætisráðherra hefur lagt fyrir Alþingi frumvarp þar sem fjallað er um þær víðtæku breytingar sem lagðar eru til á verkefnum ráðuneyta auk annarra umbóta í ríkisrekstri á þessu ári. Breytingarnar eru í raun fyrsti þátturinn í þeim stjórnkerfisumbótum sem ráðast þarf í á næstu árum. Þær snúast um tilfærslu verkefna milli ráðuneyta til þess að bæta stjórnsýslu en í kjölfarið verður síðan ráðist í breytingar á stofnanakerfinu sjálfu.

Lesa meira
 

24 milljarða halli á rekstri hins opinbera

Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs var hið opinbera var rekið með 24 milljarða króna tekjuhalla samanborið við 18 milljarða króna tekjuafgang á sama tíma 2008. Þetta kemur fram í Hagtíðindum Hagstofu Íslands. Sem hlutfall af landsframleiðslu ársfjórðungsins mældist tekjuhallinn 6,9% og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 15,7%. Á sama ársfjórðungi 2008 mældist tekjuafkoma 5,5% af landsframleiðslu og 10,9% af tekjum hins opinbera.

Lesa meira
 

Landsframleiðsla minnkar

Landsframleiðsla er talin hafa dregist saman um 3,6% að raungildi frá 4. ársfjórðungi 2008 til 1. ársfjórðungs 2009 samkvæmt tölum sem Hagstofan hefur sent frá sér. Á sama tíma drógust þjóðarútgjöld saman um 3,3% þar sem einkaneysla jókst um 1,7%, fjárfesting dróst saman um 31,3% og samneyslan um 2,2% frá 4. ársfjórðungi 2008 til 1. ársfjórðungs 2009.
Lesa meira
 

Samkomulag um Icesave-skuldbindingar í höfn

Ríkisstjórnin samþykkti í gær að samninganefnd um Icesave myndi undirrita samning til lausnar Icesave deilunni við Hollendinga og Breta. Samkomulagið er mikilvægur áfangi í endurreisn íslensks efnahags. Breska fjármálaráðuneytið hefur þegar boðað að kyrrsetningu eigna Landsbankans í Bretlandi verði aflétt og mun það gerast strax 15. júní næstkomandi.

Lesa meira
 

Vöruskipti hagstæð í maí

Afgangur var af vöruskiptum við útlönd í maí sem nemur 7,3 milljörðum króna. Útflutningur nam 38,7 milljörðum sem er lítillega minna en á sama tíma í fyrra en hann er að öllu jöfnu nokkuð mikill í maí. Verðmæti innflutnings nam 31,7 milljörðum króna. Þetta kemur fram í bráðabirgðauppgjöri Hagstofu Íslands.

Lesa meira
 

Stýrivextir lækka í 12% - vaxtastig breytist lítið

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur afráðið að lækka stýrivexti bankans um 1 prósentustig, úr 13% í 12%. Þetta er nokkuð í samræmi við væntingar helstu sérfræðinga en minna en margir höfðu vonast til og gefið hafði verið til kynna fyrir mánuði þegar vextir voru síðast ákveðnir.

Lesa meira
 

Endurfjármögnun nýju bankanna

Nú í vikunni munu fulltrúar fjármálaráðuneytisins ásamt fulltrúum nýju viðskiptabankanna og ráðgjöfum þeirra eiga fundi með skilanefndum gömlu bankanna og ráðgjöfum þeirra til að hefja formlegar samningaviðræður í því augnamiði að ná samkomulagi um greiðslu til gömlu bankanna fyrir yfirteknar eignir og ljúka jafnframt eiginfjármögnun nýju bankanna.

Lesa meira
 

Yfirlýsing Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á íslensku

Eins og jafnan sendir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn frá sér yfirlýsingu í lok dvalar sinnar á Íslandi. 11 manna sendinefnd af hálfu sjóðsins hefur dvalist í landinu undanfarna daga og hér fylgir þýðing á tilkynningu sem sjóðurinn sendi frá sér fyrr i dag

Lesa meira
 

Þingsályktunartillaga um ESB aðild lögð fram

Utanríkisráðherra hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar sem kveður á um þingið feli ríkisstjórn að leggja inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Texti ályktunarinnar er svohljóðandi: ,,Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að leggja inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning.” Lesa meira
 

Verðlag hækkar umfram spár í maí

Verðlag hækkaði meira en búist hafði verið við í maí, eða um 1,13% milli mánaða. Almennt hafði verið búist við 0,5% hækkun. Greinilegt er að veikning krónunnar veldur verulega neikvæðum áhrifum á verðbólgustigið. Verðbólga miðað við 12 mánuði mælist nú 11,6%. Augljóst er að þessi þróun auðveldar ekki peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands að lækka stýrivexti jafn hratt og vonir hafa staðið til. Lesa meira
 

Ríkisstjórnin leggur fram þingmálaskrá

Ríkisstjórnin áformar að flytja 38 mál á 137. löggjafarþinginu sem nú er nýhafið. Þetta má lesa úr þingmálaskrá sem lögð var fram um leið og forsætisráðherra flutti stefnuræðu sína.

Lesa meira
 

Ný starfsstöð Ráðgjafarstofu heimilanna

Ný starfsstöð Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna hefur verður opnuð í Sóltúni 26 í Reykjavík. Reiknað er með að átta til tíu ráðgjafar starfi á starfstöðinni sem er sett á laggirnar tímabundið. Einnig er verið að efla starfsemina á Hverfisgötu 6.
Lesa meira
 

Lög um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna taka gildi

Lög um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna tóku gildi í dag, 15. maí. Þau eru hluti þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin hefur gripið til í þeim tilgangi að koma til aðstoðar þeim heimilum og fjölskyldum sem eiga í erfiðleikum vegna of mikillar skuldabyrði. Áður höfðu tekið gildi lög um greiðsluaðlögun samningskrafna og margháttuð úrræði sem taka á vanda skuldsettra heimila.
Lesa meira
 

Drög að þingsályktun um Evrópumál gerði opinber

Drög að tillögu og meðfylgjandi greinargerð vegna fyrirhugaðrar umsóknar Íslands að Evrópusambandinu hafa verið birt opinberlega. Tillagan sjálf hljóðar upp á að Alþingi samþykki að ríkistjórnin leggi inn umsókn um aðild að Evrópusambandinu og að loknum viðræðum við sambandið verði haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um væntanlegan aðildarsamning. Lesa meira
 

Bráðaaðgerðir gegn atvinnuleysi

Í ítarlegum stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar er meðal annars að finna kafla um bráðaaðgerðir gegn atvinnuleysi. Ríkisstjórnin hefur nú þegar ráðist í aðgerðir sem skila eiga allt að 6000 ársverkum á næstu mánuðum og misserum, en því til víðbótar verður efnt til fjölþætts átaks til atvinnusköpunar sem felur m.a. í sér eftirfarandi aðgerðir: Lesa meira
 

Atvinnuleysi mælist 9,1% í apríl

Atvinnuleysi mældist 9,1% í apríl og hækkaði aðeins um 0,2 prósentustig frá því í mars, þá var það 8,9%. Í október var það á hinn bóginn 1,9% og 1% í apríl á síðasta ári. Atvinnuleysi á Íslandi mælist enn sem komið er minna en meðaltal Evrusvæðisins, en þar er það 9,3%. Atvinnuleysisstigið er mjög í takt við spár Vinnumálastofnunar og búist er við að það standi í stað í maí vegna árstíðabundinna þátta.

Lesa meira
 

Fjármálaráðuneyti spáir grynnri og skemmri kreppu en aðrir

Fjármálaráðuneytið hefur birt Vorskýrslu sína um stöðu og horfur í efnahagsmálum eins og hún hún blasir við ráðuneytinu. Ráðuneytið spáir hagvexti strax á næsta ári og telur almennt að kreppan verði grynnri og vari skemur en aðrir hafa haldið fram. Ráðuneytið spáir snöggri aðlögun íslenska hagkerfisins og 5% hagvexti 2011, sem er ríflega tvöfalt meiri vöxtur en Seðlabanki Íslands hefur spáð.

Lesa meira
 

Stjórnvöld senda öllum breskum þingmönnum bréf

Sendiherra Íslands í London hefur, að beiðni Össurar Skarphéðinssonar utanríkisráðherra, sent öllum þingmönnum breska þingsins bréf þar sem brugðist er við skýrslu fjármálanefndar breska þingsins, sem út kom í apríl sl. Alls er um tæplega 1400 bréf að ræða, en þingmennirnir eru 646 í neðri deild og 738 í efri deild. Lokið var við útsendingu bréfanna í síðustu viku.

Lesa meira
 

Ríkisstjórnin kynnir nýjan ítarlegan stjórnarsáttmála

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs starfar á grunni ítarlegs sáttmála sem samþykktur hefur verið í báðum flokkum. Auk aðgerða sem við blasa vegna örðugleika í efnahagsmálum, eru í sáttmálanum fjallað um fjölmörg mál sem horfa til framtíðar, þar með talið það höfuðmarkmið að Ísland verði eitt samkeppnishæfasta land veraldar um 2020, þrátt fyrir þau áföll sem á þjóðinni hafa dunið.

Lesa meira
 

100 daga áætlun ríkisstjórnarinnar gerð opinber

Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar, þau Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra og Steingrimur J. Sigfússon fjármálaráðherra, kynntu á blaðamannafundi í dag þau áform sem ríkisstjórnin hefur uppi og hyggst ljúka á næstu 100 dögum. Listinn er fjölbreyttur og tekur til margra málaflokka meðal annars er varða ríkisfjármálin og bankamálin en einnig mál er varða hag heimila og fyrirtækja.

Lesa meira
 

Ný ríkisstjórn skipuð - fjórir nýir ráðherrar

Í nýrri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur eru 12 ráðherrar. Átta sátu í síðustu ríkisstjórn en frá ríkisstjórnarborði nú hverfa þær Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir. Fjórir nýir ráðherrar setjast í ríkisstjórnina, þau Jón Bjarnason, Katrín Júlíusdóttir, Árni Páll Árnason og Svandís Svavarsdóttir. Lesa meira
 

Ný ríkisstjórn tekur við - kennir sig við norræna velferð í bestu merkingu þeirra orða

Ný ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs hefur verið mynduð. Forystumenn stjórnarinnar, þau Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra, og Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs og fjármálaráðherra, kynntu stefnumið stjórnarinnar á blaðamannafundi 10. maí.

Lesa meira
 

Rökstuðningur peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands birtur

Aðhaldsaðgerðir í opinberum fjármálum sem fyrirséðar eru í sumar, ,,aukinn stöðugleiki krónunnar, hert gjaldeyrishöft, sérsniðnar aðgerðir til að leyfa óþolimóðustu fjárfestunum að selja krónueignir á skipulegan hátt og hraðari verðhjöðnun en áður var gert ráð fyrir eykur svigrúm til að slaka á í peningamálum,” segir m.a. í rökstuðningi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands fyrir vaxtalækkuninni sem tilkynnt var í dag. Lesa meira
 

Stýrivextir lækkaðir í 13 prósent

Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur afráðið að lækka stýrivexti um 2,5 prósentustig, úr 15,5% í 13%. Þetta er meiri lækkun en spár gáfu til kynna. Seðlabankinn lækkar aðra vexti sína jafnframt þessu um 3%. Rökstuðningur nefndarinnar verður gerður opinber kl. 11.00.

Lesa meira
 

Aðgerðir til hjálpar skuldsettum heimilum

Mikil umræða hefur þróast síðustu daga vegna aðgerða ríkisstjórnar til hjálpar skuldsettum heimilum. Af þessu tilefni er rétt að rifja upp það sem gert hefur verið á á þessum vettvangi. Hér fyrir neðan eru þau atriði sem máli skipta, fjallað er um skuldajöfnun lána, hækkun vaxtabóta, séreignasparnað, þau úrræði sem lögð hafa verið í hendur Íbúðalánasjóðs og annarra fjármálastofnana í kjölfarið, greiðslujöfnun og greiðsluaðlögun og fleiri atriði.

Lesa meira
 

Endurreisn fjármálakerfisins – sýn viðskiptaráðherra

Viðskiptaráðherra gerði ríkisstjórn grein fyrir því á fundi stjórnarinnar 5. maí, hver helstu verkefnin á sviði endurreisnar fjármálakerfisins eru. Í minnisblaði sem hann lagði fyrir ríkisstjórn telur hann upp 10 verkefni og fjallar um þau og stöðu þeirra eins og hún liggur nú fyrir. Fjallar ráðherra meðal annars um bankana og þau mál sem þar bíða úrlausnar, um gjaldeyrishöft og viðræður vegna Icesave reikninga Landsbankans svo dæmi séu nefnd.
Lesa meira
 

Misskilnings gætir um greiðsluaðlögun

Í fréttaflutningi og umræðu undanfarinna daga um greiðslaðlögun fasteignaveðkrafna og annarra krafna en veðskulda, hefur þess miskilnings gætt að sú aðgerð gagnist ekki vegna þess að enn skorti reglugerð til að vinna eftir. Hið rétta er, eins og fram kemur í áréttingu dómsmálaráðuneytis í dag, að svo er ekki. Greiðsluaðlögun vegna annarra krafna en veðskulda er þegar komin til framkvæmda og lög um greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna taka gildi 15. maí. Enga reglugerð þarf til að þau komist að fullu til framkvæmda.

Lesa meira
 

Verðlag hækkar í apríl frá fyrra mánuði

Verðbólga mælist nú 11,9% á ársgrundvelli samkvæmt því sem Hagstofan greinir frá í dag og fer hratt lækkandi eins og við var búist. Á sama mælikvarða var hún 15,2% í mars og 18,6% í janúar þegar hún fór hæst. Verðlag hefur þó hækkað örlítið milli mánaða, eða um 0,45% en í mars var verðhjöðnun í fyrsta sinn í langan tíma.Árshækkunin miðað við síðustu þrjá mánuði mælist nú aðeins 1,4%, hefur lækkað úr 10,9% í febrúar en fór hæst í 24% í desember á síðasta ári.

Lesa meira
 

Úrslit alþingiskosninga 2009

Úrslit alþingiskosninga liggja fyrir og má finna á vefnum kosning.is. Heildarúrslit voru þessi; Framsóknarflokkur fékk 27.699 atkvæði eða 14,80% og 9 menn kjörna. Sjálfstæðisflokkur fékk 44.369 atkvæði eða 23,70% og 16 menn kjörna. Frjálslyndi flokkurinn fékk 4.148 atkvæði eða 2,22% og engan mann kjörinn. Borgarahreyfingin fékk 13.519 atkvæði eða 7,22% og 4 menn. Lýðræðishreyfingin fékk 1.107 atkvæði eða 0,59% og engan mann kjörinn. Samfylkingin fékk 55.758 atkvæði eða 29,79% og 20 menn. Vinstri hreyfingin - grænt framboð fékk 40.580 atkvæði eða sem svarar 21,68% og 14 þingmenn kjörna.

Lesa meira
 

Forsætisráðherra hvetur til þjóðarsáttar um endurreisn Íslands

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra ávarpaði fjölsóttan aðalfund Samtaka atvinnulífsins síðasta vetrardag.  Í ávarpi sínu ítrekaði forsætisráðherra afstöðu sína til Evrópumála og sagði meðal annars: “Ég er staðfastlega þeirrar skoðunar að það sé eina trúverðuga leiðin til stöðugleika og farsældar fyrir íslenska þjóð að óska nú þegar eftir viðræðum við Evrópusambandið um fulla aðild og upptöku Evru.”

Lesa meira
 

Skýrsla nefndar um þróun Evrópumála aðgengileg á vefnum

Skýrsla nefndar um þróun Evrópumála er nú aðgengileg á vef forsætisráðuneytisins. Skýrslan var birt á föstudag en hún er afrakstur vinnu nefndar sem skipuð var af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar. Lesa meira
 

Forsætisráðherra vill að næsta ríkisstjórn sæki um ESB-aðild

Forsætisráðherra lýsti þeirri skoðun sinni ákveðnar en áður í ræðu á ársfundi Seðlabanka Íslands 17. apríl að næsta ríkisstjórn ætti að sækja um aðild að Evrópusambandinu og stefna að upptöku Evru.  Ráðherra sagðist þess fullviss að aðild að ESB yrði mikið gæfuspor. Ráðherra boðaði jafnframt fækkun ráðuneyta og aukna samvinnu Seðlabanka Íslands og Fjármáleftirlitsins, og endurskoðun peningastefnunnar og verðtryggingar. Lesa meira
 

Vinnuvikan styttist, raunlaun lækka

Samkvæmt tölum sem teknar hafa verið saman af hálfu forsætisráðuneytisins virðist kaupmáttur ráðstöfunartekna dragast saman umfram það sem áætla má út frá launavísitölu. Þá kemur fram í opinberum gögnum að meðalvinnuvika allra á vinnumarkaði hefur styst frá því sem var fyrir ári, um nálega 2 klukkstundir og var að meðaltali 38,9 klukkstundir fyrstu þrjá mánuði ársins. Þessi fækkun vinnustunda á einnig við þá sem eru í fullu starfi, vinnuvika þeirra hefur sömuleiðis styst um 2 klukkustundir og er nú 44,7 klukkstundir.

Lesa meira
 

Bankaleynd sambærileg á Íslandi og í nágrannlöndum.

Viðskiptaráðuneytið hefur látið vinna fyrir sig sérstaka skýrslu um bankaleynd á Íslandi og samanburð á henni hérlendis og erlendis. Í skýrslunni er að finna yfirlit um ákvæði íslenskra laga um trúnaðar- og þagnarskyldu fjármála- og eftirlitsstofnana og samanburð við sambærilegar reglur í Danmörku, Noregi, Þýskalandi og Bretlandi. Jafnframt er gerður almennur samanburður á íslenskum reglum og reglum Sviss, Lúxemborgar og Liechtenstein sem þekkt eru fyrir ríka bankaleynd.

Lesa meira
 

Niðurstöður verðmats nýju bankanna

Deloitte LLP hefur lokið bráðabirgðaverðmati þeirra eigna sem fluttar  voru út úr gömlu bönkunum til að mynda efnahag Nýja Kaupþings banka, NBI og Íslandsbanka.  Samhliða vinnslu verðmatsins hefur Oliver Wyman yfirfarið framkvæmd þess fyrir hvern banka. Fyrirtækin vinna nú að lokafrágangi matsins. Þess er vænst að fullnaðarútgáfa þess liggi fyrir í næstu viku.

Lesa meira
 

Mikilvæg mál samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti 15. apríl nokkur mjög mikilvæg mál sem ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á að þingið afgreiddi fyrir kosningar. Þar má nefna tvö frumvörp fjármálaráðherra, annað kveður á um 25% hækkun vaxtabóta og hins vegar frumvarp sem samið er til að komast fyrir skattundanskot og skattsvik. Lesa meira
 

Lánasjóðurinn fær 660 milljónir króna til að lána fyrir sumarnámi

Ríkisstjórn Íslands hefur samþykkt að auka framlag til Lánasjóðs íslenskra námsmanna um 660 milljónir króna til að koma til móts við þarfir stúdenta sem vilja stunda nám í sumar. Einnig var samþykkt að menntamálaráðherra ræddi við háskólana um framboð lánshæfra sumarnámskeiða í sumar.

Lesa meira
 

Greiðslujöfnun á myntkörfulán samþykkt

Samkomulag hefur náðst um að gildi taki greiðslujöfnun á erlend lán einstaklinga sem tekin hafa verið með veði í fasteign. Markmið samkomulagsins er að tryggja þau áform ríkisstjórnarinnar, að lækka greiðslubyrði á  myntkörfulánum þannig að lántekendur geti staðið í skilum, án þess þó að grípa til afskrifta úr bankakerfinu og eða stofna til verulegs kostnaðar úr ríkissjóði.

Lesa meira
 

Forsætisráðherra skrifar Gordon Brown og biður um viðbrögð

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hefur skrifað Gordon Brown, forsætisráðherra Bretlands, bréf og óskað eftir viðbrögðum bresku ríkisstjórnarinnar við skýrslu fjármálanefndar breska þingsins. Í skýrslunni sem er sú fyrsta af nokkrum sem nefndin hefur boðað, er fjallað um áhrif aðgerða breskra stjórnvalda á íslensku bankana og fjármálakerfið á Íslandi.

Lesa meira
 

Vextir lækkaðir um 1,5 prósentustig, verða 15,5%

Lækkun stýrivaxta úr 17% í 15,5% var í góðu samræmi við spár en umfram væntingar helstu markaðsaðila. Peningastefnunefndin telur að mikill vaxtamunur milli Íslands og annarra landa gefi tækifæri til varfærnislegra vaxtalækkana næstu mánuði en næsta stýrivaxtaákvörðun verður 8. maí. Verðbólgan ætti nú að lækka hratt og verða um 2,5% í byrjun 2010 miðað við heilt ár.

Lesa meira
 

Staða mála á verkefnaskrá ríkisstjórnar

Verkefnalisti ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs  er varðar heimilin og fyrirtækin var kynntur á blaðamannfundi  7. apríl 2009. Eins og sjá má standa enn nokkur mál útaf og eiga eftir að fá afgreiðslu á Alþingi. Flest málin eru enn í 2. umræðu en afgreiðsla laga um skattamál (undanskot og skattframkvæmd) og lögum um listamannalaun eru í þriðju umræðu

Lesa meira
 

Íslenska krónan veikist enn

Gengi íslensku krónunnar gagnvart öðrum gjaldmiðlum hefur veikst umtalsvert síðustu daga þrátt fyrir að gjaldeyrishöft hafi verið efld.  Í dag, 7. apríl stendur sterlingspundið í 184 krónum, Bandaríkjadalur í 126 krónum og evran kostar 167 krónur. Þá er gengisvísitalan komin upp í 218 stig.

Lesa meira
 

Lánastofnanir taka upp úrræði Íbúðalánasjóðs gagnvart skuldurum

Undirritað hefur verið samkomulag milli stjórnvalda og allra  þeirra fjármálastofnana sem veita lán til húsnæðiskaupa. Með samkomulaginu er leitast við að tryggja að allir lántakendur fasteignaveðlána fái notið sambærilegra úrræða og Íbúðalánasjóður veitir viðskiptavinum sínum lendi þeir í greiðsluvanda.

Lesa meira
 

Áætlun um velferð kynnt

Ríkisstjórnin hefur samþykkt og kynnt á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins áætlun um velferð sem ætlað er að endurspegla áherslur í velferðarmálum til næstu missera. Meðal aðgerða verður stofnun sérstaks mótvægissjóðs sem veita á fé til rannsókna á sviði velferðarmála og verkefna sem bæta á hag þeirra hópa sem verst verða úti í kreppunni.

Lesa meira
 

Vöruskipti við útlönd jákvæð í mars

Um 8,3 milljarða afgangur varð á vöruskiptum Íslands við útlönd í mars, samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Nam útflutningur íslenskra afurða 34,9 milljörðum króna en til landsins voru fluttar vörur fyrir um 26,6 milljarða. Þetta er nokkuð meiri afgangur af vöruskiptum en var í febrúar en þá nam hann um sex milljörðum króna Lesa meira
 

Alþingi samþykkir lög sem heimila frestun nauðungarsölu

Nýsamþykktar breytingar Alþingis á lögum um aðför, nauðungarsölu, gjaldþrotaskipti og vexti og verðtryggingu tóku gildi 31. mars síðastliðinn. Markmið lagasetningarinnar er að tryggja að þeir sem eiga í erfiðleikum með að standa skil á fasteignaveðlánum fái rýmri frest til að endurskipuleggja fjármál sín. 

Lesa meira
 

Neyðarlög vegna gjaldeyrismála samþykkt á Alþingi

Alþingi samþykkti í nótt lög um breytingu á tollalögum og lögum um gjaldeyrismál sem þegar öðluðust gildi. Samkvæmt nýju lögunum er bannað fram til 30. nóvember að skrá viðskiptaverð vöru í krónum heldur verður að skrá það í þeim erlenda gjaldmiðli sem fram kemur á sölureikningi útflytjenda á útflutningsskýrslum, eða þá í evrum eða dollurum ef óljóst er með hvaða gjaldmiðli viðskiptin fara fram.

Lesa meira
 

Hlutabætur vegna atvinnuleysis tryggðar út árið

Alþingi hefur samþykkt frumvarp ríkisstjórnarinnar um að framlengja gildistíma laga um hlutfallslegar atvinnuleysisbætur á móti skertu starfshlutfalli launamanna til 31. desember 2009. Samkvæmt lögunum þarf skerðing starfshlutfalls að vera 10% að lágmarki til að viðkomandi eigi rétt til hlutabóta á grundvelli ákvæðisins. Lesa meira
 

Vöruskipti jákvæð í febrúar, útflutningur dregst saman

Vöruskipti í febrúar voru jákvæð um tæpa 6 milljarða króna líka og gert hafði verið ráð fyrir í spám. Gríðarlegur samdráttur hefur orðið í innflutningi, eða sem svarar 44% fyrstu tvo mánuði ársins samanborið við sama tíma fyrir ári. Innflutningur flutningatækja hefur t.a.m. dregist saman um 78% og neysluvara um 50%. Lesa meira
 

Lög um gjaldþrotaskipti og greiðsluaðlögun samþykkt á alþingi

Alþingi hefur samþykkt stjórnarfrumvarp um breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti og greiðsluaðlögun. Lögin taka gildi 1. apríl. Með þessari breytingu á lögunum er skuldara gert kleift að leita nauðasamnings til greiðsluaðlögunar við kröfuhafa sína með aðstoð umsjónarmanns.

Lesa meira
 

Kaarlo Jännäri skilar skýrslu sinni um fjármálamarkaðinn

Finnski bankasérfræðingurinn, Kaarlo Jännäri, hefur skilað skýrslu sinni um reglur og eftirlit á íslenskum fjármálamarkaði. Tillögur til úrbóta er settar fram í 8 liðum í lok skýrslunnar. Þar er meðal annars lagt til að Seðlabanki Íslands og FME verði sameinað og að hert verði á eftirliti með mörgum þáttum á fjármálamarkaðinum.

Lesa meira
 

28 frumvörp ríkisstjórnar bíða afgreiðslu á Alþingi

Nú bíða 28 frumvörp ríkisstjórnarinnar afgreiðslu á Alþingi. Þeirra á meðal eru frumvörp um lýðræði, stórnskipan og réttlæti, þ.e. frumvörp til laga um breytingar á stjórnarskrá og frumvarp um stjórnlagaþing, einnig frumvarp um persónukjör og enn fremur má nefna í þessum málaflokki frumvarp sem snýr að vörnum gegn skattasniðgöngu í skattaskjólum og frumvarp sem gerir ráð fyrir auknum heimildum embættis sérskipaðs saksóknara

Lesa meira
 

Ráðherrar ekki berir af neinskonar óeðlilegum hagsmunatengslum

Allir ráðherrar ríkistjórnarinnar hafa nú upplýst um fjárhagslega hagsmuni sína og trúnaðarstörf sem þeir gegna utan starfs síns sem ráðherrar. Skemmst er frá því að segja að engin óeðlileg hagsmunatengsl er um að ræðu hjá ráðherrum. Gildir það jafnt um stjórnmálamenn og þá ráðherra sem ráðnir eru faglegri ráðningu. Lesa meira
 

Krónan veikist

Krónan hefur veikst nokkuð síðustu daga og er nú evran í 158 krónum en var nálega 142 krónur í byrjun mars. Veikingin er rúm 10% á síðastliðnum tveimur vikum.

Lesa meira
 

Alþingi samþykkir lög um frestun á nauðungarsölum

Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um aðför, gjaldþrotaskipti, nauðungarsölu og vexti og verðtryggingu.

Lesa meira
 

Embætti sérstaks saksóknara fær auknar fjárveitingar

Dómsmálaráðherra gerði ríkisstjórn grein fyrir því á fundi ríkisstjórnarinnar 24. mars að fjárveitingar til embættis sérstaks sakskóknara yrðu auknar verulega. Á blaðamannafundi upplýsti hún að líklegt væri að kostnaður við embætti verði um 170 milljónir króna á ári, og er þá ótalinn kostnaður við erlenda sérfræðinga sem hingað verða ráðnir. Lesa meira
 

Ráðuneytin birta samantekt á aðgerðum frá falli bankanna

Öll ráðuneyti stjórnarráðsins hafa nú að ósk forsætisráðuneytisins tekið saman allar upplýsingar um aðgerðir, beinar og óbeinar, sem gripið hefur verið til frá falli bankanna í byrjun október á síðasta ári.

Lesa meira
 

Velferðarvaktin með eigið vefsvæði, opið fyrir ábendingar

Eitt mikilvægasta verkefni ríkisstjórnarinnar samkvæmt verkefnaskrá er að verja velferðina. Af því tilefni setti félags- og tryggingamálaráðuneytið á fót sérstaka velferðarvakt.

Lesa meira
 

Verðhjöðnun í mars, verðbólga orðin neikvæð

Verðlag lækkaði í mars samkvæmt mælingum Hagstofunnar. Lækkun vísitölu nemur 0,56% frá fyrra mánuði. Verðbólga undangenginna 12 mánaða mælist nú 15,2% en var 17,6% í febrúar. Umreiknuð hækkun síðustu þriggja mánaða til eins árs er aðeins 1,9%. Lesa meira
 

Endurskipulagning sparisjóðakerfisins í landinu

Stjórnvöld á Íslandi hafa ákveðið að grípa til samhæfðra aðgerða til að verja hagsmuni viðskiptavina sparisjóðanna og tryggja bankaþjónustu um land allt. Með þessum aðgerðum hefur styrkum stoðum verið skotið undir áframhaldandi starfsemi sparisjóða. Þeim verður þar með gert kleift að taka virkan þátt í endurreisn hagkerfisins.

Lesa meira
 

Lög um greiðsluaðlögun fyrirtækja samþykkt

Alþingi hefur samþykkt frumvarp fjármálaráðherra til laga um tímabundna greiðsluaðlögun fyrir fyrirtæki. Þessi nýju lög fela í sér að gerðar eru tímabundnar breytingar á lögum um virðisaukaskatt, lögum um vörugjöld og tollalögum í því skyni að koma til móts við fyrirtæki sem eiga í erfiðleikum með að standa skil á aðflutningsgjöldum og vörugjöldum.

Lesa meira
 

Norðurlöndin og Cayman-eyjar gera samning um baráttu gegn skattaflótta

Eftir umfangsmikla undirbúningsvinnu var í síðustu viku gengið frá samkomulagi milli aðildarríkja Norrænu ráðherranefndarinnar og Cayman-eyja um undirritun upplýsingaskiptasamnings. Samningurinn er liður í sameiginlegri viðleitni samningsaðilanna til að stöðva undanskot frá greiðslu opinberra gjalda.

Lesa meira
 

Fjölgun starfslauna listamanna

Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp til laga um endurskoðun á listamannalaunum. Í frumvarpinu er lagt til að starfslaunum fjölgi um 400 mánaðarlaun á næstu þremur árum þannig að þau verði alls 1600 mánaðarlaun frá árinu 2012 í stað 1200 núna. Launasjóðum fjölgar um þrjá, en hins vegar verður listasjóður lagður niður. Lesa meira
 

Kjördagur ákveðinn 25. apríl

Boðað hefur verið til almenna kosninga til Alþingis með forsetabréfi dagsettu 13. mars síðastliðinn. Þing verður rofið sama dag. 

Lesa meira
 

Fjármálaráðherra gerir grein fyrir skuldastöðu þjóðarbúsins

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra hefur gert grein fyrir helstu stærðum þjóðarbúskaparins og ríkisfjármálanna. Ítarlegt yfirlit yfir þessar stærðir í fortíð og nútíð og spár fyrir framtíðina er að finna í upplýsingum fjármálaráðherra.

Lesa meira
 

Kaupþingi veitt málskotsheimild

Dómstóll í Bretlandi (High Court of England) hefur heimilað Kaupþingi banka hf. að fylgja eftir kröfu sinni um að fram fari lögfræðileg endurskoðun (e. Judicial Review) á réttmæti ákvörðunar breskra stjórnvalda um að framselja til þriðja aðila, án bóta, innstæður á Kaupthing Edge reikningum hjá dótturfélagi bankans í Bretlandi, Kaupthing Singer & Friedlander, þann 8. október 2008. Lesa meira
 

Efnahagsáætlun skilar árangri að mati sendinefndar AGS

Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) hefur undanfarnar rúmar tvær vikur unnið með íslenskum stjórnvöldum að fyrstu endurskoðunar efnahagsáætlunar stjórnvalda vegna lánafyrirgreiðslu sjóðsins. Sendinefndin, undir stjórn Mark Flanagans, hefur einnig átt fundi með fjölda hagsmunaðila til þess að kynna sér þróun íslensks efnahagslífs og áhrif efnahagshrunsins. Lesa meira
 

Vaxtabætur hækkaðar um fjórðung, greiðslujöfnun í boði á myntkörfulánum

Á fundi ríkistjórnarinnar sem fór fram 10. mars voru samþykktar aðgerðir til að styrkja stöðu heimila í landinu. Þessar aðgerðir felast í greiðslujöfnun myntkörfulána, hækkun vaxtabóta, greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna og endurskoðun lánaflokka hjá Íbúðarlánasjóði með endurfjármögnun í huga. Lesa meira
 

Séreignasparnaður - útgreiðsla hefst innan skamms

Ætla má að vörsluhafar séreignasparnaðar eigi að geta tekið á móti umsóknum um úttektir þegar í stað, en vegna tæknilegra útfærsluatriða getur endurgreiðsla þó ekki hafist fyrr en eftir rúmlega viku.
Lesa meira
 

Frumvarp um séreignasparnað samþykkt

Frumvarp um útgreiðslu séreignasparnaðar var samþykkt á Alþingi í dag með 44 samhljóða atkvæðum. Frumvarpið gerir ráð fyrir því að fólk geti tekið út í áföngum séreignasparnað sinn, að hámarki einni milljón króna. Þessi aðgerð er hluti af verkefnaskrá ríkisstjórnarinnar og þeim aðgerðum sem miða að því að aðstoða þá einstaklinga og þær fjölskyldur sem í vanda eiga. Lesa meira
 

Forsætisráðherra mælir fyrir frumvörpum um breytingar á stjórnarskrá og kosningalögum

Forsætisráðherra hefur mælt fyrir frumvarpi til stjórnskipunarlaga og breytingum á stjórnarskrá Íslands og frumvarpi um breytingu á konsingalögum sem heimilar persónukjör. Lesa meira
 

Ríkisstjórn með stórátak í endurreisn atvinnulífs

Á ríkisstjórnarfundi föstudaginn 6. mars samþykkti stjórnin aðgerðaáætlun í atvinnumálum. Markmið aðgerða er að stemma stigu við auknu atvinnuleysi og stuða að endurreisn atvinnulífs í landinu. Bæði er um að ræða skammtímaaðgerðir en einnig átaksverkefni sem koma til með að skila nýjum störfum til frambúðar. Við skipulagningu endurreisnarátaksins voru hagsmundi landsins alls hafðir að leiðarljósi. Reikna má með að aðgerðir ríkisstjórnarinnar skapi í það minnsta 4000 störf á ársgrundvelli.

Lesa meira
 

Allt að 4 þúsund ársverk í atvinnusköpun

Ríkisstjórnin fjallaði í morgun um tillögur Stýrihóps ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í atvinnumálum til þess að sporna gegn atvinnuleysi. Samþykkt var að vinna að framgangi ellefu tillagna sem gætu skapað ríflega 4000 ársverka á næstu misserum. Þegar einnig er litið til stöðu fimm verkefna sem tengjast virkjun Búðarháls og orkutengdum iðnaði, öðrum en fyrirhuguðu álveri í Helguvík, þá gæti verið um að ræða 6000 ársverk í heildina.

 

Lesa meira
 

Ríkisstjórn styrkir embætti sérstaks saksóknara

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri-grænna hyggst leggja fyrir alþingi frumvarp sem rýmkar mjög heimildir sérstaks saksóknara til að afla og krefjast upplýsinga og gagna vegna rannsóknar einstakra mála sem tengjast efnahagshruninu. Komið verður á fót upplýsinga- og tilkynningaskyldu og bankaleynd aflétt.

 

Lesa meira
 

Einkaneysla og fjárfesting hraðminnka

Einkaneysla féll um 7,7%  á síðasta ári miðað við 2007. Hún dróst saman um 23,8% á fjórða ársfjórðungi og á síðasta ári nam hún aðeins 54,2% af landsframleiðslu. Það hlutfall hefur ekki verið lægra í 15 ár. Nýleg gögn benda til enn meiri samdráttar einkaneyslu það sem af er þessu ári.

 

Lesa meira
 

Eftirlaunafrumvarp ríkisstjórnarinnar samþykkt á Alþingi

Frumvarp ríkisstjórnarinnar um afnám laga nr. 141/2003 um eftirlaun forseta, ráðherra, þingmanna og hæstaréttardómara var samþykkt með öllum greiddum atkvæðum á þingfundi Alþingis 5. mars. Þar með falla úr gildi áðurnefnd lög um sérréttindi ofangreindra embættismanna og þingmanna en þau hafa allt frá innleiðingu verið afar umdeild.

 

Lesa meira
 

Ríkisstjórn leggur fram þingmálaskrá

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri-hreyfingarinnar-græns framboðs lagði fram 3. febrúar á blaðamannafundi 30 mála lista sem stjórnin hefur lagt fyrir Alþingi og vonast til að koma í gegn fyrir þinglok sem enn eru óákveðin. Kosningar verða 25. apríl en deilt er um hversu lengi þingið skuli starfa. Á fréttamannafundinum lýstu forsætis- og fjármálaráðherra því að ekki væru mörg mál ókláruð sem leggja ætti fyrir þingið.

Lesa meira
 

Jákvæð vöruskipti í febrúar ýta undir endurreisn hagkerfisins

Um sex milljarða afgangur var af vöruskiptum í febrúar samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Nam útflutningur íslenskra afurða um 32,3 milljörðum króna en til landsins voru fluttar vörur fyrir um 26,4 milljarða. Þetta eru mjög jákvæðar fréttir fyrir íslenska hagkerfið því þessi afgangur í vöruskiptum er í raun nauðsynlegur til að fjármagna hagkerfið og gefur um leið jákvæðar vísbendingar um aðlögunarhæfni þess. Lesa meira
 

Norðurlönd vilja umhverfisvænan vöxt

,,Norðurlöndin hafa alla burði til að taka forystu í heiminum á sviði nýsköpunar í orkumálum og umhverfisvænnar orku. Fjárfestingar í umhverfistækni og sjálfbærri orkunýtingu munu skapa tækifæri til vaxtar” sagði Jóhanna Sigurðardóttir meðal annars á blaðamannafundi norrænna forsætisráðherra á Hnattvæðingarþingi Norðurlandanna sem lauk 27. febrúar.

 

Lesa meira
 

Forsætisráðherrar Norðurlandanna og heimsþekktir fyrirlesarar á hnattvæðingarþingi

Forsætisráðherrar Norðurlandanna, þau Jóhanna Sigurðardóttir, Anders Fogh Rasmussen, Fredrik Reinfeldt, Jens Stoltenberg og Matti Vanhanen taka þátt í hnattvæðingarþingi sem haldið verður í Bláa Lóninu 26. og 27. febrúar.

 

Lesa meira
 

Sendinefnd AGS kemur til landsins

Sendinefnd á vegum Alþjóða gjaldeyrissjóðsins (AGS) verður hér á landi til 10. mars og mun á þeim tíma fara yfir helstu atriði efnahagsáætlunar ríkisstjórnarinnar og sjóðsins og eiga viðræður við stjórnmála- og embættismenn. Lesa meira
 

Erlendir sérfræðingar koma víða að endurmati og uppbyggingu fjármálakerfisins

Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum 10. febrúar að ráða erlenda sérfræðinga til að vinna að samningum fyrir hönd ríkissjóðs við uppgjör milli nýju og gömlu bankanna vegna eigna sem fluttar voru á milli þeirra.

Lesa meira
 

Ný stjórn Lánasjóðsins skal endurskoða úthlutunarreglur

Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra hefur skipað nýja stjórn Lánasjóð íslenskra námsmanna.
Fyrsta verkefni nýrrar stjórnar er að fara yfir allar úthlutunarreglur lánasjóðsins og skoða þá stöðu sem margir námsmenn erlendis eru í. Leitað verður leiða til að laga lánareglur LÍN að efnahagsumhverfinu. Sérstaklega verður hugað að samspili atvinnuleysibóta og námslána.

Lesa meira
 

Ríki og borg tryggja framtíð tónlistarhússins

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra og Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um framkvæmdir við Tónlistarhús og ráðstefnumiðstöð við Austurhöfnina í Reykjavík. Í viljayfirlýsingunni felst ekki aðeins að tryggð sé áframhaldandi uppbygging svæðisins við Austurhöfn heldur einnig mjög mikilvægur stuðningur við menningarlíf í landinu. Um leið skapast hátt í 600 störf við framkvæmdirnar.

Lesa meira
 

Menningar-, mennta- og íþróttahreyfingunum ætlað stórt hlutverk við uppbyggingu Íslands

Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, hefur óskað eftir því við yfirmenn menningar- og menntastofnana og sérsambanda í íþróttum að þeir skilgreini hlutverk þessara hagsmunaaðila við uppbyggingu Íslands á komandi misserum.

Lesa meira
 

Ríkisstjórn óskar eftir áframhaldandi frystingu myntkörfulána

Ríkisstjórn Íslands fjallaði á fundi sínum, 20. febrúar, einkanlega um tvennt, annars vegar fyrirhugað frumvarp til breytinga á stjórnskipunarlögum sem fellur undir fyrirheit stjórnarinnar um lýðræðislegar umbætur í landinu, og hins vegar um mál er varða hag einstaklinga sem tekið hafa erlend lán, svokölluð myntkörfulán.

Lesa meira
 

Losað um séreignarsparnað

Fjármálaráðherra hefur lagt fram frumvarp sem heimilar að losað verði um séreignasparnað að hluta. Frumvarpið hefur verið lagt fyrir Alþingi og bíður afgreiðslu þar. Samkvæmt því getur hver og einn sem á frjálsan séreignasparnað tekið út sem svarar 1 milljón króna. Hægt verður að sækja um úttektarheimild frá og með 1. mars 2009 til 1. október 2010.

Lesa meira
 

Stöðuskýrsla vegna efnahagsáætlunar í samstarfi við AGS

Efnahagsáætlun stjórnvalda sem unnin er í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS) gengur almennt vel samkvæmt skýrslu starfsmanna AGS. Skýrslan er birt að beiðni íslenskra stjórnvalda, en hún byggir a vinnu sendinefndar sjóðsins sem hér var í desember.

Lesa meira
 

Nefnd um endurreisn fjármálakerfisins birtir fyrstu skýrslu sína

Nefnd um endurreisn fjármálakerfisins birti fyrstu skýrslu sína á fundi með blaðamönnum sem haldin var 11. febrúar í Þjóðmenningarhúsinu. Mats Josefsson, sænskur bankasérfræðingur sem leiðir nefndina, kynnti vinnu hennar, áherslur og þau verkefni sem fram undan eru.

Lesa meira
 

Þáttaskil í vinnu stjórnvalda við að byggja upp fjármálakerfið

Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun var m.a. fjallað um mál er varða endurreisn fjármálakerfisins í landinu og staðfest starfsáætlun nefndar sem skipuð hefur verið til að vinna að því verkefni samkvæmt samkomulagi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, AGS. Lesa meira
 

Forsætisráðherra skipar ráðgjafahóp vegna breytinga á stjórnarskrá

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur sett á fót ráðgjafahóp sem vinna á tillögur um breytingar á stjórnarskrá Íslands og undirbúa frumvarp til stjórnskipunarlaga sem lagt verður fram á næstu vikum.

Lesa meira
 

Seðlabankastjóri rekur orsakir hrunsins

Ingimundur Friðriksson Seðlabankastjóri segir í ítarlegu erindi sínu, sem birt er í heild sinni á vef Seðlabanka Íslands og rekur ástæður bankahrunsins frá sjónarhóli bankans, að bankinn hafi verið hlynntur því síðastliðið sumar að íslenskir bankar, einn eða fleiri, flyttu höfuðstöðvar sínar til útlanda.

Lesa meira
 

Frumvarp um Seðlabanka Íslands lagt fram á Alþingi

Frumvarpið er eitt af fyrstu málum hinnar nýju stjórnar sem lagt er fyrir Alþingi. Í því er meðal annars kveðið á um að aðeins verði einn seðlabankastjóri í stað þriggja eins og nú er og að staða hans verði auglýst. Lesa meira
 

Forsætisráðherra hvetur til samstöðu þings og þjóðar í stefnuræðu sinni

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra hvatti til samstöðu þings og þjóðar í stefnuræðu sinni sem flutt var á Alþingi 4. febrúar. Hún lagði áherslu á að raddir almennings fengju að hljóma og þeir sem í stjórnmálum störfuðu finndu leiðir til þess að skoðanir sem flestra fengju að heyrast.

Lesa meira
 

Forsætisráðherra skrifar stjórnendum seðlabanka bréf og óskar eftir afsögn

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra, sendi 2. febrúar sl. bréf til bankastjóra Seðlabanka Íslands þar sem gerð var grein fyrir fyrirhuguðu frumvarpi ríkisstjórnarinnar um Seðlabanka Íslands og reifuð sú hugmynd að þeir létu af störfum sjálfviljugir og greiddu þar með götu nauðsynlegra umbóta í fjármálakerfinu.

Lesa meira
 

Að sækja um atvinnuleysisbætur

Nokkur atriði sem vert er að huga að, úr auglýsingu frá Vinnumálastofnun.

Lesa meira
 

Metnaðarfullur verkefnalisti nýrrar ríkisstjórnar

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs tók við völdum af ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar í dag, 1. febrúar. Hún hefur ákveðið að kosningar verði 25. apríl, en fram að þeim tíma hefur hún sett sér fjölmörg markmið sem miða að því að koma heimilum og fyrirtækjum til aðstoðar. Verkefnalista nýrrar ríkisstjórnar má finna hér.

Lesa meira
 

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs tekur við

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs tók við stjórnartaumum í dag, 1. febrúar.  Meginverkefni hennar verður að hrinda í framkvæmd brýnum aðgerðum til aðstoðar heimilum og fyrirtækjum, að endurreisa banka- og fjármálakerfi og koma fram mikilvægum umbótum á stjórnsýslu og lýðræði.

Lesa meira
 

Stefnuskrá nýrrar ríkisstjórnar og ráðherralisti birtur

Forsvarsmenn nýrrar ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs, með stuðningi Framsóknarflokks, sem kynnt var formlega í dag, hafa sent frá sér stefnuskrá og ráðherralista nýju stjórnarinnar. Formleg ríkisstjórnarskipti fóru fram í dag, sunnudag.

Lesa meira
 

Ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar lokið

Ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar er lokið. Forsætisráðherra gengur á fund forseta Íslands í dag klukkan 16 og biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt.

Lesa meira
 

Aðgerðir stjórnvalda

Í ræðu sinni á Alþingi, 22. janúar rakti Geir H. Haarde forsætisráðherra margar þeirra aðgerða sem ríkisstjórnin hefur ráðist í til að bregðast við efnahagsvandanum sem skapaðist við hrun bankanna í október.

Lesa meira
 

Kannað hvort losa má frekar um viðbótarlífeyrissparnað

Til athugunar er hjá stjórnvöldum að leyfa útgreiðslu viðbótarlífeyrissparnaðar landsmanna en binda hann ekki við ákveðinn aldur eins og nú er.

Lesa meira
 

Yfirlit um skuldastöðu ríkissjóðs

Skuldir hins opinbera aukast hröðum skrefum í kjölfar bankahrunsins og gætu orðið yfir 70% á næsta ári. Þetta er mikil aukning frá árunum 2006 og 2007 þegar hreinar skuldir hins opinbera voru nærri 7% af landsframleiðslur eftir að ríkissjóður hafði greitt niður stóran hluta skulda sinna.

Lesa meira
 

Upplýsingamiðstöð stjórnvalda Sími 800 11 90

Vakin er athygli á 800 1190, gjaldfrjálsu símanúmeri Upplýsingamiðstöðvar stjórnvalda. Þar getur almenningur fengið upplýsingar um einstök mál, aðgerðir stjórnvalda og hvert á að snúa sér með eigin vandamál.

Lesa meira
 

Þorskveiðikvóti aukinn um 30 þúsund tonn

Sjávarútvegsráðherra hefur gefið út reglugerð þar sem hámarksafli í þorski er aukinn um 30 þúsund tonn. Heildaraflamark verður því 160 þúsund tonn á yfirstandandi fiskveiðiári, í stað 130 þúsund tonna sem áður hafði verið ákveðið.

Lesa meira
 

Fjármálaráðuneyti endurskoðar þjóðhagsspá

Fjármálaráðuneytið hefur endurskoðað þjóðhagsspá fyrir árin 2008 til 2010. Niðurrstöðurnar birtast í heild sinni á vef ráðuneytisins. Í spánni fjallað er um framvindu og horfur helstu þátta efnahagsmála 2008-2010 og breytingar frá haustspá ráðuneytisins útskýrðar. 

Lesa meira
 

Bankahrunið verkefni Rannsóknarnefndar Alþingis

Rannsóknarnefnd Alþingis hefur hafist handa við að rannsaka aðdraganda og orsakir falls íslensku bankanna á síðasta ári. Meginhlutverk rannsóknarnefndarinnar er að safna upplýsingum um staðreyndir málsins, draga upp heildarmynd af aðdraganda að falli bankanna og segja til um hverjar hafi verið orsakir þess.

Lesa meira
 

Vöruskiptajöfnuður í desember aldrei hagstæðari

Afgangur af vöruskiptum Íslands við útlönd var 24,1 milljarðar króna í desember 2008 samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar. Vöruskiptajöfnuður hefur aldrei mælst meiri frá því byrjað var að safna mánaðarlegum vöruskiptatölum árið 1992.

Lesa meira
 

Ríkisstjórn Íslands kannar málsókn fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu

Ríkisstjórn Íslands hefur ákveðið að kanna til þrautar möguleika á að leita réttar Íslendinga fyrir Mannréttindadómstóli Evrópu vegna beitingar breskra stjórnvalda á svonefndum hryðjuverkalögum (Anti Terrorism, Crime and Security Act) frá árinu 2001 gegn Landsbankanum á síðasta ári.

Lesa meira
 

Tímalína efnahagsáætlunar stjórnvalda

Stjórnvöld hafa frá byrjun nóvember unnið samkvæmt efnahagsáætlun sem sett var fram í tengslum við fjárhagslegan stuðning Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF).

Lesa meira
 

IMF sendinefnd segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar á áætlun

Sendinefnd frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum hefur verið hér á landi undanfarna daga til að fara yfir þróun efnahagsmála á Íslandi, fjármála ríkisins og endurskipulagningu bankakerfisins. Í yfirlýsingu sem gefin var út fyrir hönd sendinefndarinnar lýsir hún yfir ánægju með hvernig mál hafa þróast á Íslandi á undanförnum vikum.

Lesa meira
 

Markvissari rannsókn með sérstöku saksóknaraembætti

Dómsmálaráðuneytið hefur auglýst embætti sérstaks saksóknara sem rannsaka skal grun um refsiverða háttsemi sem tengjast kunna hinum sérstöku aðstæðum á fjármálamarkaði sem skapast hafa á Íslandi í haust eftir fall bankanna. Talið var nauðsynlegt að stofna embættið með sérstökum lögum og að með því verði rannsóknin markvissari.

Lesa meira
 

Séreignasparnaður verði laus á einu bretti

Lagafrumvarp um breytingar á lífeyrissjóðum gerir ráð fyrir að þeim sem orðnir eru 60 ára og eldri verði heimilað að taka út séreignasparnað sinn í einu lagi í stað þess að dreifa honum á 7 ár eins og segir í gildandi lögum. Einnig yrði afnumið gildandi aldurshámark á töku lífeyris sem nú er 75 ár.

Lesa meira
 

Áformaðar breytingar á greiðslum barnabóta 1. febrúar 2009

Áformað er að bjóða upp á mánaðarlega greiðslu barnabóta á árinu 2009. Samkvæmt því á fyrsta greiðslan að berast fjölskyldum 1. febrúar nk. Lesa meira...

 

Fleiri fréttir


Áskrift að fréttum div>

Tungumál




Þetta vefsvæði byggir á Eplica