Sóknaráætlanir fyrir svæði
Landshlutasamtök sveitarfélaga skipulögðu og báru ábyrgð á samskiptum við þá sem hagsmuna eiga að gæta á hverju svæði. Haldnir hafa verið þjóðfundir á hverju svæði með svipuðu sniði og þjóðfundur Mauraþúfunnar sem haldinn var í Laugardalshöll. Þangað var boðið fulltrúum allra helstu hagsmunaaðila ásamt 50-90 íbúum hvers svæðis sem valdir voru með slembiúrtaki. Á þjóðfundunum var leitast við að draga fram sóknarfæri svæðisins til framtíðar byggð á styrkleikum og lykilhæfni sem til staðar er á hverju svæði.
Yfirlit
Skýrslur um sóknaráætlanir fyrir svæði komnar á vefinn
Búið er að ganga frá stöðuskýrslum landshlutasvæða vegna Sóknaráætlunar 20/20 og eru þær birtar á vefnum. Skýrslurnar eru niðurstöður þjóðfunda sem haldir voru í öllum landshlutum. Úrvinnsluhópar fóru yfir tillögur og hugmyndir sem fram komu á fundunum og forgangsröðuðu þeim.
Landshlutaskýrsla Höfuðborgarsvæði
Landshlutaskýrsla Vestfjarðasvæði
Landshlutaskýrsla Norðvestursvæði
Landshlutaskýrsla Norðaustursvæði
Sóknaráætlanir fyrir svæði
- Landshlutasamtök eru tengiliðir við 20/20 Sóknaráætlun, skipuleggja og bera ábyrgð á samskiptum við hagsmunaaðila á svæðinu.
- Landshlutasamtök sjá um gagnaöflun á hverju svæði.
- Þegar gagnaöflun liggur fyrir verða þjóðfundir á hverju svæði undir handleiðslu ráðgjafa þar sem settir eru fram stefnumótandi valkostir og þeir ræddir.
Sóknaráætlanir landshluta kynntar á Akureyri
Niðurstöður þjóðfunda í landshlutum voru kynntar á fundi í húsnæði Háskólans á Akureyri, Sólborg við Norðurslóð, sl. miðvikudag, 7. apríl. Fundinn sóttu ríflega 90 manns víða að. Dagur B. Eggertsson ávarpaði fundinn og flutti fundinum kveðjur forsætisráðherra sem því miður gat ekki setið fundinn. Fulltrúar landshlutasamtaka og atvinnuþróunarfélaga hafa stofnað sérstaka úrvinnsluhópa á hverju svæði sem unnið hafa úr tillögum og hugmyndum þjóðfundanna og forgangsraðað þeim. Á fundinum fóru þeir yfir afraksturinn. Þóroddur Bjarnason prófessor við Háskólann á Akureyri flutti mjög áhugavert erindi um búsetuþróun og Grétar Þór Eyþórsson starfsbróðir hans tók saman niðurstöður allra þjóðfundanna og setti flokkaði. Hér má sjá glærukynningar frá hverju svæði.
- Setning – Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. Í forföllum hennar flutti Dagur B. Eggertsson setningarávarp.
- Niðurstöður Vestfjarðasvæðis: Aðalsteinn Óskarsson, framkvæmdastjóri FV - Fjórðungssambands Vestfjarða og Þorgeir Pálsson, framkvæmdastjóri ATVEST -Atvinnuþróunarfélags Vestfjarða
- Niðurstöður Suðursvæðis: Þorvarður Hjaltason, framkvæmdastjóri SASS - Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga
- Mannfjöldi, fjarlægðir og búsetuþróun: Þóroddur Bjarnason, prófessor við Háskólann á Akureyri
- Niðurstöður höfuðborgarsvæðis: Páll Guðjónsson, framkvæmdastjóri SSH - Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
- Niðurstöður Suðurnesja: Berglind Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri SSS - Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
- Niðurstöður Norðaustursvæðis: Pétur Þór Jónasson, framkvæmdastjóri EYÞINGS – Sambands sveitarfélaga í Eyjafirði og Þingeyjarsýslum
- Niðurstöður Norðvestursvæðis: Jón Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri SSNV - Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
- Þjóðfundir í landshlutum. Hvert er svo ferðinni heitið?: Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri
- Niðurstöður Austursvæðis: Þorvaldur Jóhannsson, framkvæmdastjóri SSA - Sambands sveitarfélaga á Austurlandi og Hafliði Hafliðason, framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands
- Niðurstöður Vestursvæðis: Vífill Karlsson, atvinnuráðgjafi hjá SSV - Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi og lektor við Háskólann á Akureyri
- Samantekt og næstu skref: Dagur B. Eggertsson, formaður stýrihóps Sóknaráætlunar 20/20
Þjóðfundir í landshlutum
- Áttundi og síðasti þjóðfundur Sóknaráætlunar í landshlutum var þjóðfundur höfuðborgarsvæðisins sem haldinn í Rimaskóla í Reykjavík laugardaginn 20. mars. Til fundarins voru boðaðir íbúar og hagsmunaaðilar á svæðinu sem nær frá Álftanesi að Kjósarhreppi. Það voru Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) sem skipulögðu fundinn í samvinnu við stýrihóp Sóknaráætlunar 20/20. Alls tóku um 150 manns þátt í fundinum sem skiptust í 16 hópa. Margar góðar hugmyndir um kjarnahæfni svæðisins litu dagsins ljós og munu þær leggja grunninn að Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins sem síðan verður hluti af Sóknaráætlun fyrir Ísland. Til gamans má geta þess að heimsþekktur fyrirlesari og rithöfundur, Kanadamaðurinn Carl Honoré, sat fundinn og hyggst gera sér mat úr honum í næstu bók sinni.
Þjóðfundur höfuðborgarsvæðisins - myndir
- Þjóðfundur á Suðurnesjum var haldinn laugardaginn 13. mars. Þetta var sjöundi þjóðfundur í landshlutum sem haldinn er undir merkjum Sóknaráætlunar 20/20. Alls voru um sjötíu manns á fundinum sem haldinn var í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Flugvöllurinn og flugvallarsvæðið, jarðhiti og Ásbrú eru meðal þess sem þjóðfundargestir skilgreindu sem kjarnahæfni Suðurnesja. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum mun nú skipa svo kallaðan úrvinnsluhóp sem fer yfir niðurstöður fundarins og mótar Sóknaráætlun fyrir Suðurnes sem síðan verður hluti af Sóknaráætlun fyrir Ísland.
Þjóðfundur á Suðurnesjum - myndir
- Sjötti landshlutaþjóðfundurinn var haldinn í Fjölbrautaskóla Suðurlands 6. mars. Þátttakendur hvaðanæva að af Suðurlandi mættu til fundar og líkt og annars staðar stóð ekki á góðum hugmyndum sem eflt geta svæðið og skerpt á sérstöðu þess. Nú verður unnið úr efniviðnum og hugmyndirnar útfærðar frekar eftir föngum.
Þjóðfundur á Suðurlandi - myndir
- Rúmlega hundrað manns sóttu þjóðfund á Norðausturlandi sem haldinn var á Akureyri laugardaginn 27. febrúar, þrátt fyrir rysjótta tíð og ófærð. Fundargestir skiptu sér í tólf hópa sem hver um sig greindi og lagði fram hugmyndir um sérstöðu og sóknarfæri svæðisins sem nær frá Siglufirði í vestri að enda Langanesbyggðar í austri. Margar áhugaverðar niðurstöður voru kynntar í lok fundarins en þær munu leggja grunn að sóknaráætlun fyrir svæðið og verða hluti af Sóknaráætlun fyrir Ísland.
Þjóðfundur á Norðurlandi eystra - myndir
- Þjóðfundur Sóknaráætlunar á Vesturlandi fór fram í Menntaskóla Borgarfjarðar, Borgarnesi, laugardaginn 20. febrúar sl. Alls tóku rúmlega áttatíu manns þátt í fundinum sem tókst í alla staði mjög vel. Sagnaarfurinn og háskólarnir þrír eru m.a. sú sérstaða eða kjarnahæfni sem flestir komu sér saman um en auk þess hefur þróast á Vestursvæðinu ýmiskonar sérstök ferðaþjónusta sem telst vera sérstaða að mati þátttakenda á fundinum.
Þjóðfundur á Vesturlandi - myndir
- Þjóðfundur fyrir Norðurland vestra var haldinn á Sauðárkróki laugardaginn 13. febrúar. Alls tóku rúmlega níutíu manns þátt í fundinum fyrir utan borðstjóra, sem líkt og á fyrri þjóðfundum, voru starfsmenn úr flestum ráðuneytum. Hópnum var skipt niður á ellefu borð og fóru fram fjörugar umræður og hugmyndaleit. Niðurstöður voru að sama skapi fjölbreyttar og verða þær settar inn hér á vefinn um leið og búið er að vinna úr þeim.
Þjóðfundur á Norðurlandi vestra - myndir - Á annað hundrað manns sóttu þjóðfund á Vestfjörðum sem haldinn var í Bolungarvík laugardaginn 6. febrúar. Unnið var á tólf borðum og komu fram fjölmargar hugmyndir sem leiddu til líflegra umræðna. Farið verður yfir þær og unnið áfram úr þeim sem vænlegastar þykja.
Þjóðfundur á Vestfjörðum - myndir
-
Fyrsti þjóðfundur í landshlutum var haldinn á Egilsstöðum laugardaginn 30. janúar. Þátttakendur voru hagsmunaaðilar sem íbúar, allsstaðar að af Austurlandi. Þeir skiptu sér í sjö hópa og ræddu daglangt um sérstöðu svæðisins. Flestir voru sammála um að hreindýrin og nálægðin við Vatnajökulsþjóðgarð væri ein helsta sérstaða Austurlands en auk þess nefndu margir nálægðina við Evrópu og mikla þekkingu á veiðum og vinnslu á uppsjávarfiski sem sérstöðu eða kjarnahæfni svæðisins. Fjölmargar hugmyndir um sóknarfæri, sem byggja á þessari sérstöðu, voru settar fram og útfærðar lauslega.
Þjóðfundur á Austurlandi – myndir
