Beint í leiðarkerfi vefsins.
Framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar Íslands bendir á mikilvægi hinna svo kölluðu skapandi greina, það er hönnunar, arkitektúrs, bókmennta, kvikmynda, tónlistar, sviðslista og fleiri, sem séu algjörlega vannýttar hér á landi. Í þessum geira fari fram mikil ímyndarvinna fyrir Ísland og tiltölulega lítið fé skili sér margfalt til baka.
Formaður Bændasamtaka Íslands segir íslenskan landbúnað og sveitir landsins hafa margt fram að færa í nýja sóknaráætlun. Einkum og sér í lagi þurfi að tryggja fæðuöryggi þjóðarinnar en jafnframt að huga rækilega að loftslags- og umhverfismálum.
Forseti ASÍ telur aldrei of seint í rassinn gripið að hefja markvissa sókn til framtíðar þótt óneitanlega hefði verið heppilegra að vinna svona verkefni þegar betur áraði. Hann vill sjá unnið í sama anda og gert var með þjóðarsáttinni um árið, þannig að sem allra flestir leggi gjörva hönd á plóg.
Framkvæmdstjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir fjölmörg sóknarfæri fólgin í sínum geira, sérstaklega utan háannatímans. Hampa verði sérstöðu landsins og ekki hvað síst að setja heilsutengda ferðaþjónustu á oddinn, þar sé eftir miklu að slægjast.
Stofnandi og framkvæmdastjóri DataMarket vonast til að ná megi sátt um á hvaða framtíðargildum byggja eigi upp Ísland og menn komist upp úr hjólförum pólitísks stagls og átaka. Endurheimta þurfi traust bæði út á við og á milli manna. Ákvarðanataka eigi að vera gegnsæ og opin.
Formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja væntir þess að með 20/20 megi brjóta niður múra og byggja upp traust. Hann minnir jafnframt á mikilvægi sprota- og hátæknifyrirtæki við uppbyggingu efnahagslífsins og sóknar til framtíðar.
Framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu bindur vonir við að það takist að halda flokkapólitík utan vinnunnar við 20/20. Það sé hugur í sveitarstjórnarmönnum á svæðinu og vonandi takist að virkja alla til góðra verka.
Upptaka af öllum erindum sem flutt voru á ráðstefnunni. Horft var til framtíðar fyrir atvinnulíf og samfélag og kallað eftir sjónarmiðum samtaka, grasrótarhópa og hagsmunaaðila um það sem aukið gæti lífsgæði og samkeppnishæfni Íslands á komandi árum.
Menntamálaráðherra greinir frá þætti síns ráðuneytis í 20/20 og svarar spurningum um hættu á meiri miðstýringu með sóknaráætluninni og hvort ekki sé mótsögn fólgin í því að blása til sóknaráætlunar á sama tíma og mikill niðurskurður standi yfir á flestum eða öllum sviðum þjóðlífsins.
Formaður stýrihóps 20/20 sóknaráætlunar fer yfir sviðið og greinir meðal annars frá tilgangi og markmiði verkefnisins, hverjir taka þátt í því, kostnaði við það, grundvelli svæðisskiptingar landsins og hvernig nafnið 20/20 er til komið.
Umhverfisráðherra segir hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar endurspeglast algjörlega í 20/20. Ráðuneyti sínu og stofnunum þess sé mjög umhugað að vel takist til. Vinna þurfi af djörfung og dug til að markmið sóknaráætlunarinnar náist.