Velferðarvaktin

Velferðarvaktin

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur komið á fót velferðarvakt sem ætlað er að fylgjast með félagslegum jafnt sem fjárhagslegum afleiðingum bankahrunsins fyrir fjölskyldur og einstaklinga í landinu.

Velferðarvaktin

Velferðavaktin skal með markvissum hætti gera tillögur um aðgerðir í þágu heimilanna. Fyrir velferðavaktinni fer stýrihópur sem skal samhæfa upplýsingaöflun og tillögugerð. Lögð er áhersla á að stýrihópurinn leiti í starfi sínu eftir samráði við aðrar stofnanir og frjáls félagasamtök sem láta sig málefni fjölskyldna og einstaklinga varða, þar á meðal að stýrihópurinn standi fyrir reglulegum samráðsfundum með þessum aðilum.

Á vef velferðarvaktarinnar má finna ábendingar um hvert hægt sé að leita sér hjálpar, senda inn fyrirspurnir, fá fréttir og leita sér upplýsinga um hvað sé á döfinni í þeim málefnum sem undir nefndina heyra. Þar má einnig finna áfangskýrslur og fundargerðir nefndarinnar með ályktunum hvar hjálpar sé þörf, minnisblöð og annað áhugavert efni.

Ábendingar til velferðarvaktar


Velferðarvaktin óskar eftir ábendingum frá stofnunum, félögum eða einstaklingum um málefni sem ætla má að þarfnist skoðunar og varða félagslegar eða fjárhagslegar afleiðingar bankahrunsins fyrir heimilin. Einnig þiggur vaktin tillögur eða upplýsingar um aðgerðir til að mæta vandanum sem gætu verið öðrum góð fyrirmynd. Velferðarvaktin tekur ekki til afgreiðslu málefni einstaklinga.






Senda grein


Tungumál




Þetta vefsvæði byggir á Eplica