Atvinnuleysisbætur
Þeir sem eru atvinnulausir geta skráð sig á atvinnuleysisskrá hjá vinnumiðlunum Vinnnumálastofnunar og átt rétt á atvinnuleysisbótum. Þeir fá jafnframt ráðgjöf og aðstoð við atvinnuleit.
Yfirlit
Umsókn og skilyrði
- Sótt er um atvinnuleysisbætur hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar sem starfa í öllum landshlutum. Umsækjandi um atvinnuleysisbætur skráir sig jafnframt í atvinnuleit.
- Atvinnuleysisbætur eru greiddar út mánaðarlega af Greiðslustofu Vinnumálastofnunar.
Atvinnuleysisbætur - rafræn umsókn
Breytingar á lögum um atvinnuleysistryggingar 2010
Upplýsingar fyrir umsækjendur atvinnuleysisbóta
Upplýsingar um atvinnuleysistryggingar og atvinnuleysisbætur
Vinnumálastofnun
Önnur eyðublöð hjá Vinnumálastofnun
- Sá sem nýtur atvinnuleysisbóta þarf meðal annars að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- vera virkur í atvinnuleit og reiðubúinn að ráða sig til almennra starfa,
- tilkynna til Vinnumálastofnunar einu sinni í mánuði hvort atvinnuleit hafi borið árangur. Staðfesting á atvinnuleit á vef Vinnumálastofnunar,
- tilkynna til Vinnumálastofnunar þegar vinna er fengin og gefa upp allar tekjur.
- Allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur gera starfsleitaráætlun í samráði við starfsráðgjafa sem einnig veitir ráðgjöf um atvinnuleit og úrræði sem atvinnulausum standa til boða.
Það getur valdið missi bóta ef atvinnuleitandi fylgir ekki starfsleitaráætlun eða hafnar úrræðum sem honum bjóðast.
- Bændur, smábátasjómenn og vörubifreiðastjórar sækja um bætur hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar, líkt og aðrir.
Upplýsingar um atvinnuleysistryggingar sjálfstætt starfandi einstaklinga - Telji umsækjendur um atvinnuleysisbætur að afgreiðsla Vinnumálastofnunar hafi verið ófullnægjandi geta þeir skotið máli sínu til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga hjá Atvinnuleysistryggingarsjóði.
Úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga
Bótaupphæð
-
Fyrstu tíu daga atvinnuleysis eru greiddar grunnbætur en síðan eru bætur tekjutengdar í þrjá mánuði ef skilyrði um tekjutengingu bóta eru uppfyllt.
- Sá sem fær fullar atvinnuleysisbætur og hefur börn undir 18 ára aldri á framfæri sínu fær greidd 4% af grunnbótum með hverju barni.
- Greiða þarf lögbundið lífeyrissjóðsgjald af atvinnuleysisbótum en Atvinnuleysistryggingarsjóður greiðir mótframlag sem atvinnurekandi greiðir ella. Vinnumálastofnun sér um greiðslu stéttarfélagsgjalds af bótum sé þess óskað.
Einstaklingar sem fá greiddar fullar atvinnuleysisbætur geta fengið endurgreiðslur vegna kaupa á lyfjum og greiða þá sama gjald og elli- og örorkulífeyrisþegar og börn.
Atvinnulausir og lyf á vef Sjúkratrygginga
Vert að skoða
Lög og reglugerðir
Hafirðu skoðun eða ábendingu um efni sem þér finnst vanta á vefinn, sendu hana þá á tölvupóstfangið: island@island.is
