Ellilífeyrir

Ellilífeyrir

Við 67 ára aldur má sækja um ellilífeyri og tengdar greiðslur til Tryggingastofnunar ríkisins. Lífeyrisgreiðslur skiptast í nokkra flokka auk styrkja og bóta sem hægt er að sækja um.


Áfram veginn - upplýsingarit fyrir eldri borgara
Reiknaðu út hugsanlegar lífeyrisgreiðslur þínar
Tryggur, þjónustuvefur Tryggingastofnunar ríkisins
Umsóknir og eyðublöð fyrir ellilífeyri, tekjuáætlun og fleira á vef TR

Umsóknir

  • Nauðsynlegt er að sækja um að útborgun ellilífeyris hefjist. Ellilífeyrir myndast þó sjálfkrafa hjá örorkulífeyrisþegum næsta mánuð eftir að viðkomandi nær 67 ára aldri.
  • Tryggingastofnun ríkisins (TR) sér um afgreiðslu lífeyris. Umboðskrifstofur TR eru á skrifstofum sýslumanna um land allt.
  • Tilvonandi lífeyrisþegar fá umsóknareyðublað sent frá TR skömmu áður en 67 ára aldri er náð, ásamt helstu upplýsingum um lífeyrisréttindi sín.
  • Þegar sótt er um ellilífeyri þarf jafnframt að skila inn tekjuáætlun. Allar breytingar á tekjum frá því sem TR hefur upplýsingar um þarf að tilkynna.
  • Lífeyrisgreiðslur eru skattskyldar eins og launa- og lífeyrissjóðstekjur.
  • Skattkorti má skipta á milli TR og lífeyrissjóða eða annarra launagreiðenda ef lífeyrisþegi hefur aðrar tekjur en ellilífeyri. Einnig má nýta ónýttan persónuafslátt maka.

Um réttindi eldri borgara á vef TR

Lífeyrisþegar

  • Greiðslur ellilífeyris hefjast við 67 ára aldur.
  • Þeir sem hefja töku lífeyris eftir 1. janúar 2007 geta frestað lífeyristöku allt til 72 ára aldurs en bótafjárhæð hækkar um 0,50% fyrir hvern mánuð sem frestað er.
  • Sá sem stundað hefur sjómennsku í 25 ár getur fengið lífeyri frá 60 ára aldri.
  • Sá sem búið hefur hér á landi í 40 ár á aldrinum 16-67 ára á rétt á fullum ellilífeyri. Greiðslur eru annars í hlutfalli við búsetutíma.
  • Þeir sem dvalið hafa eða starfað erlendis geta átt rétt á lífeyrisgreiðslum í viðkomandi landi. TR hefur í mörgum tilvikum milligöngu um umsóknir.
    Lífeyrisréttindi erlendis

Lífeyrisréttindi

  • Ellilífeyrisgreiðslur samanstanda af:
    1. ellilífeyri,
    2. tekjutryggingu og
    3. heimilisuppbót - greidd þeim er sjá einir um heimilisrekstur og hafa tekjutryggingu.
  • Ellilífeyrisþegi getur til viðbótar átt rétt á uppbót á lífeyri sem er greidd þeim sem ekki getur framfleytt sér að öðrum kosti.
  • Sótt er sérstaklega um uppbót þegar þannig aðstæður skapast.
  • Upphæð uppbótar er metin í hverju tilviki og eru greiðslurnar tímabundnar.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica