Styrkir, bætur og kjör

Styrkir, bætur og kjör

Ellilífeyrisþegar og eldri borgarar eiga rétt á ýmsum greiðslum frá Sjúkratryggingum Íslands og Tryggingastofnun (TR) til að bæta afkomu sína og hag. Bætur frá Sjúkratryggingum og TR þarf að sækja um.


Áfram veginn - upplýsingarit fyrir eldri borgara
Réttindagátt „mínar síður“ hjá Sjúkratryggingum Íslands
Tryggur, þjónustuvefur Tryggingastofnunar ríkisins

Styrkir og bætur

  • Maka- og umönnunarbætur eru greiddar maka eða þeim sem heldur heimili með ellilífeyrisþega og verður fyrir tekjutapi vegna umönnunar hans.
  • Ellilífeyrisþegi getur sótt um uppbót til kaupa og reksturs á bíl ef honum er nauðsyn vegna hreyfihömlunar. Þeir sem fá uppbót vegna reksturs bifreiðar fá sjálfkrafa fellt niður bifreiðagjald.
  • Vasapeningar eru greiddir þegar lífeyrisgreiðslur frá Tryggingastofnun falla niður vegna dvalar á sjúkrastofnun eða vistheimili.
  • Við andlát getur eftirlifandi maki sem er yngri en 67 ára átt rétt á dánarbótum frá TR.

Uppbætur á lífeyri aldraðra á vef TR

Niðurgreidd heilbrigðisþjónusta

  • Þeir sem greitt hafa árlega hámarksupphæð fyrir læknis- og heilbrigðisþjónustu eiga rétt á afsláttarkorti sem veitir afslátt af læknisþjónustu. Afsláttarkort er afgreitt gegn framvísun kvittana.
    Eldri borgarar - gráa kortið og afsláttarkort

  • Ellilífeyrisþegar fá 50%-100% kostnaðar við tannlækningar endurgreiddan.
    Um endurgreiðslur tannlækningakostnaðar
  • Hægt er að sækja um endurgreiðslur ferðakostnaðar ef meðferð sjúkdóms krefst langra eða ítrekaðra ferða til læknis eða á sjúkrastofnun. Sjúkratryggingar taka líka í vissum tilvikum þátt í kostnaði fylgdarmanns.
    Ferðakostnaður á vef Sjúkratrygginga
  • Ellilífeyrisþegar geta átt rétt á styrk til kaupa á gleraugum og heyrnatækjum uppfylli þeir almenn skilyrði þar um. Þá niðurgreiða Sjúkratryggingar kaup á hjálpartækjum en sækja verður um þau sérstaklega áður en fest eru kaup á þeim.
    Um hjálpartæki

Hjálpartækjamiðstöð
Um endurgreiðslur kostnaðar vegna læknis, lyfja eða þjálfunar

Vörur og þjónusta

  • Ellilífeyrisþegum og öðrum eldri borgurum er víða veittur afsláttur af vörum og þjónustu.
  • Síma- og fjölmiðlafyrirtæki veita mörg hver afslátt af áskrift.
  • Félagsmenn í félögum eldri borgara eiga kost á sérkjörum gegn framvísun félagsskírteina.
  • Innan stéttarfélaga eiga félagsmenn á eftirlaunum ýmis réttindi svo sem til styrkja úr símenntunar- og orlofssjóðum.
  • Sum sveitarfélög veita ellilífeyrisþegum afslátt af fasteignagjöldum.

Vert að skoða

Lög og reglugerðir

Senda grein


Tungumál


Vottun á aðgengi í forgangi 1 og 2, frá Sjá og Ö.B.Í.

Þetta vefsvæði byggir á Eplica