EllilífeyrirVið 67 ára aldur má sækja um ellilífeyri og tengdar greiðslur til Tryggingastofnunar ríkisins. Lífeyrisgreiðslur skiptast í nokkra flokka auk styrkja og bóta sem hægt er að sækja um. |
LífeyrirÞeir sem starfa á íslenskum vinnumarkaði safna upp rétti til lífeyris með lífeyrissparnaði. Persónulegur sparnaður, getur tryggt fjárhagslega afkomu á efri árum til viðbótar við lögbundið framlag í lífeyrissjóði og ellilífeyri almannatrygginga. |
Styrkir, bætur og kjörEllilífeyrisþegar og eldri borgarar eiga rétt á ýmsum greiðslum frá Sjúkratryggingum Íslands og Tryggingastofnun (TR) til að bæta afkomu sína og hag. Bætur frá Sjúkratryggingum og TR þarf að sækja um. |
TekjutengingarEllilífeyrir er tekjutengdur sem þýðir að greiðslur almannatrygginga lækka þegar mánaðartekjur lífeyrisþega fara yfir ákveðin tekjumörk. Upphæð ellilífeyris er reiknuð út frá tekjuáætlun og mikilvægt að hún sé rétt. |
