Félagslíf
Félagslíf
Eldri borgarar geta sótt félagsskap og dægradvöl í þjónustumiðstöðvum eða félagsmiðstöðvum aldraðra sem starfa í flestum sveitarfélögum landsins.
Yfirlit
Þjónustumiðstöðvar
- Hlutverk þjónustumiðstöðva er að tryggja eldra fólki félagsskap, bjóða upp á tómstundastarf og draga þannig úr hættu á félagslegri einangrun.
- Aðgangur að þjónustumiðstöðvum er opinn og eldri borgarar velkomnir eftir eigin hentugleikum.
- Greiða þarf gjald fyrir þá þjónustu sem veitt er en starfsemi félagsmiðstöðvanna er niðurgreidd og gjaldi stillt í hóf.
- Fjölbreytt starf fer fram í félagsmiðstöðvunum og reynt er að finna sem flestum iðju við hæfi. Þar er til dæmis boðið upp á:
- listsköpun og hannyrðir,
- leikhúsferðir og ferðalög,
- spilamennsku og kórstarf,
- námskeið og skemmtun,
- leikfimi,
- aðstoð við banka- og verslunarferðir.
- Máltíðir eru seldar í sumum félagsmiðstöðvanna og víða hægt að fá akstur að heiman og heim.
Dæmi um félagsstarf eldri borgara í ýmsum sveitarfélögum
Borgarbyggð Kópavogur
Reykjavík Mosfellsbær
Skagafjörður Garður
Akureyri Garðabær
Vesturbyggð Akranes
Borgarbyggð Fjarðabyggð
Blönduósbær Ísafjarðarbær
Félagsstarf
- Félagasamtök eldri borgara um land allt vinna að almennum hagsmunum eldri borgara og standa fyrir öflugu félagsstarfi; tómstunda-, fræðslu- og menningarmálum. Félögin eru opin öllum sem eru 60 ára og eldri og mökum þeirra þó þeir séu yngri.
- Landssamband eldri borgara eru regnhlífasamtök sem samanstanda af öllum félögum eldri borgara á landinu. Þeirra hlutverk er kjara- og réttindabarátta eldri borgara og að efla samtök eftirlaunafólks.
- Innan stéttarfélaga eiga félagsmenn á eftirlaunum í ýmsum tilvikum réttindi svo sem til úthlutana á orlofshúsum auk aðgangs að almennu félagsstarfi.
- Upplýsingar um félagasamtök eldri borgara er oft að finna á vefjum sveitarfélaganna.
Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni
Vert að skoða
- Gamli Nói: Kirkjustarf eldri borgara
- Heimsóknarvinir Rauða Kross Íslands
- Hverfið mitt, hverfavefir Reykjavíkurborgar
- Réttindi fatlaðra og hreyfihamlaðra flugfarþega - umfjöllun á island.is
- Sjálfboðaliðastarf Rauða krossins: upplýsingar og skráning
- Sundlaugar Reykjavíkur: afgreiðslutímar, sundnámskeið, vatnsleikfimi
- Ökuréttindi eldri borgara á vef Umferðarstofu

