Dagvist aldraðra
Dagvist aldraðra
Aldraðir sem þurfa reglulega umönnun til að geta dvalið sem lengst á eigin heimili geta sótt um að komast í dagvist fyrir aldraða. Hinn aldraði fær þar þjónustu og aðhlynningu við hæfi. Dagvist gengur einnig undir nafninu dagdvöl.
Yfirlit
Dagvist / Dagdvöl
Dagvist aldraðra í ýmsum sveitarfélögum
Reykjavík Fljótsdalshérað (dægradvöl)
Garðabær (dagdvöl) Akureyri (dagþjónusta)
Öldrunarstofnanir á landinu á vef Landlæknisembættis
- Sækja þarf um dagvist á eyðublöðum sem fást hjá félagsþjónustu sveitarfélaganna. Umssóknarferli er misjafnt eftir sveitarfélögum en upplýsingar þar má fá hjá félagsþjónustum, viðkomandi dagvist eða þeim sem sjá um þjónustu og hjúkrun aldraðra hjá sveitarfélaginu.
- Dvöl í dagvist getur verið einn eða fleiri daga vikunnar eftir þörfum.
- Í dagvist aldraðra á að meta heilsufar, veita hjúkrunarþjónustu, félagslega ráðgjöf og aðstoð við athafnir daglegs lífs, allt eftir þörfum hvers og eins.
- Sú þjónusta sem dagvist felur í sér getur verið:
- Fæði.
- Leikfimi og þjálfun.
- Tómstundaiðja.
- Hvíldaraðstaða.
- Böðun.
- Akstur að heiman og heim.
- Víða er starfsemi dagvistar á sama stað og í samvinnu við þjónustumiðstöðvar sveitarfélaganna og mögulegt að fá aðgang að starfsemi sem þar fer fram.
- Greitt er gjald fyrir hvern dvalardag og er akstur innifalinn í dvalargjaldi.

